Norðurslóð - 23.07.2003, Side 6
MÁ FG KYINNA?
Tímamót
Munir og minjar
Á Byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera
vitni um horfna starfshætti og margir þeirra
koma nútímabörnum ef til vill spánskt fyrir sjón-
ir. íris Ólöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggða-
safnsins í Hvoli gerir hér lítilleg skil munum og
minjum af safninu, auk þess sem birtar eru mynd-
ir af skrýtnum hlutum sem lesendur mega ráða í
til hvers voru notaðir. Ef þið hafið einhverjar
upplýsingar um munina hvetjum við ykkur til að
hafa samband við írisi á byggðasafninu í síma
466-1497 eða 892-1497.
Nr. 962.
Gefendur: Halldór og Ingibjörg frá Jarðbrú.
Tæki til að smeygja spenagúmmíum á mjaltatæki.
Ekki höfum við neitt nafn á þennan grip en kúa-
bændur og aðrir fjósamenn kannast mætavel við
hann og hafa margsinnis brugðið honum þegar
spenagúmmi voru endurýjuð.
Mynd 11. Hvað er þetta?
Svarfdælsk byggð & bær
Norðurslóð árnar heilla.
Kolbrún og Ari á sólpallinum í
Árgerði. Á bak við þau leika þau
sérStefanía dóttirþeirra ogfrœnd-
inn Baldurfrá Grýtubakka.
sagði Kolbrún frá hugmynd sem
hún hefur aðeins verið að viðra
upp á síðkastið þess efnis að yfir
ferðamannatímann verði boðið
upp á eina siglingu á dag frá
Grenivík til Dalvíkur og þannig
búin til hringleið um Eyjafjörð-
inn. Til þessa vill hún nýta ferj-
urnar sem fyrir eru og samræma
ferðirnar áætlunum þeirra og
áætlunarbíla við fjörðinn. Þetta
þyrfti ekki að þýða mikinn
kostnað en myndi óneitanlega
auka fjölbreytnina til muna fyrir
ferðafólk og heimamenn og
tengja byggðirnar við Eyjafjörð
betur.
Kolbrún og Ari eru bæði kerf-
isfræðingar að mennt. Hann er
auk þess rafeindavirki og tón-
listarmaður og hún með meist-
arapróf í rakaraiðn. Þau eiga
þrjú börn.
hjhj
Brúðkaup
Þann 21. júní voru gefin saman í
Tjarnarkirkju Margrét Víkingsdóttir
og Klemens Bjarki Gunnarsson. Sr.
Jón Helgi Þórarinsson gaf brúðhjónin
saman.
Þann 12. júlí voru gefin saman í hjóna-
band í Grundarkirkju Helga Kristín
Þorsteinsdóttir (Björnssonar) og Tim-
othy John Senior. Heimili þeirra er í
Sutton-in Ashfield, Englandi. Sr.
Magnús G. Gunnarsson gaf brúðhjón-
in saman.
Skírn
Þann 19. júlí var skírður í Dalvíkurkirkju Eggert Bjarni. Foreldr-
ar hans eru Þóra Soffía Bjarnadóttir og Bogi Eggertsson.
Afmæli
Þann 2. júlí sl. varð 70 ára Ingibjörg Ólafs-
dóttir Hátúni, Árskógsströnd.
Andlát
Petrína Soflía Þórarinsdóttir Eldjárn Suður-
byggð 1, Akureyri, andaðist á heimili sínu mið-
vikudaginn 9. júlí sl. Petrína fæddist á Tjörn í
Svarfaðardal 17. febrúar 1922. Foreldrar
hennar voru hjónin Þórarinn Kr. Eldjárn, f. 26.
maí 1886, d. 4. ágúst 1968, kennari og bóndi á
Tjörn, og Sigrún Sigurhjartardóttir húsfreyja
þar, f. 2. ágúst 1888, d. 5. febrúar 1959.
Systkini Petrínu eru Þorbjörg Eldjárn hús-
freyja í Hafnarfirði, f. 6. mars 1914; Kristján Eld-
járn forseti íslands, f. 6. desember 1916, d. 14.
september 1882; Hjörtur Friðrik Eldjárn, f. 24. febrúar 1920, d. 1.
apríl 1996.
Petrína giftist 1945 Stefáni Árnasyni starfsmanni Rafmagns-
veitna ríkisins á Akureyri. Þau eiga sex börn: Þórarinn f. 11.
október 1945, kona hans er Sigurbjörg Jónsdóttir; Sigrún f. 19.
mars 1947, maður hennar er Yngvar Bjprnshol; Gunnhildur f. 4.
apríl 1952, maður hennar er Árni Björn Stefánsson; Árni f. 10.
október 1953, kona hans er Herdís Clausen; Páll f. 25. mars 1960,
kona hans er Gíslína Erlendsdóttir; Ólöf f. 20. maí 1965, maður
hennar er Ágúst Birgisson.
Petrína ólst upp á Tjörn, fór í Menntaskólann á Akureyri, tók
gagnfræðapróf þaðan, var í Húsmæðraskólanum á Laugalandi í
Eyjafirði og aðstoðarkennari þar einn vetur. Hún starfaði lengi á
Amtsbókasafninu á Akureyri. Petrína var mjög virk í sönglífi á
Akureyri, söng með Kantötukór Akureyrar, Söngfélaginu Gígj-
unni en lengst þó í Kór Akureyrarkirkju þar sem hún var for-
maður um skeið.
Utför Petrínu var gerð frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 15.
júlí sl. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir jarðsöng.
Þann 18. júlí andaðist á Dalbæ Soffía Gísladóttir frá Hofi. Hún
verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju fimmtudaginn 24. júlí kl. 13:30.
Jarðsett verður að Völlum. Soffíu verður minnst í næsta blaði.
Ari og Kolbrún
í Árgerði sótt heim
í byrjun sumars sögðum við hér
í blaðinu frá nýjum ábúendum í
Árgerði, þeim Ara Baldurssyni
og Kolbrúnu Reynisdóttur.
Norðurslóð leit við hjá þeim
hjónum nú á dögunum til að
forvitnast um starfsemina. Þau
sögðu fólk almennt taka þeim
opnum örmum og greinilega
væri mikill áhugi á að halda
áfram gistihúsarekstri í Árgerði.
„Við viljum vera í sem mestu
samstarfi við alla þá sem eru að
fást við ferðaþjónustu hér á
svæðinu. Þetta er frábært svæði
sem hefur upp á allt að bjóða
fyrir ferðafólk en menn verða að
bretta upp ermarnar ef þeir ætla
ekki að missa af lestinni,“ segir
Kolbrún.
Hjónin í Árgerði segjast stað-
ráðin í að stunda vistvæna ferða-
þjónustu. Þau stefna að því að
Árgerði verði aðili að Green
Globe-samtökunum sem eru
samtök umhverfisvænna fyrir-
tækja í ferðaþjónustu.
Það sem af er sumri hefur
traffíkin verið þolanleg að sögn
Ara. Lítið er um fyrirfram bók-
anir en meira er um að gestir
komi með litlum fyrirvara. Eink-
um gerist það þegar mikið er um
að vera á Akureyri og öll hótel
full þar. í Árgerði er hægt að
leigja reiðhjól og einnig eru þar
leigðir út kanóar til siglinga á
ánni. Blaðamaður Norðurslóðar
fór í róðrartúr frá Vallavaði og
niður að Ágerði og mælir þeirri
reynslu ríkari hiklaust með þess-
ari frábærlega skemmtilegu og
heilsusamlegu afþreyingu fyrir
heimamenn jafnt sem ferðafólk.
Svarfaðardalsá og vatnasvæði
hennar er kjörin til kanóasigl-
inga. Áin er lygn og breið, og
náttúrufegurðin og fuglalífið
engu líkt.
Ætlunin er að bjóða upp á
svokallaða tvíþraut á fiskidaginn
mikla í samvinnu við Sveinbjörn
Hjörleifsson og hestaleigu hans.
Þá er riðið á hestbaki fram með
Svarfaðardalsá og síðan siglt á
kanó til baka. Kolbrún og Ari
hafa ýmsar fleiri hugmyndir í
pokahorninu. Meðal annars