Fréttablaðið - 17.05.2017, Side 4
samgöngur „Sú gagnrýni er vægast
sagt villandi,“ segir Jón Gunnarsson,
ráðherra samgöngu- og sveitar-
stjórnarmála, spurður um þá kröfu
að ríkið veiti öllum tekjum ríkisins
af skattheimtu af bílum og umferð
til samgöngubóta, í stað þess að fjár-
magna einstakar framkvæmdir með
veggjöldum.
„Einhverjir aðilar sem gagnrýnt
hafa það að aðeins hluti tekna
ríkisins í formi skatta af bílum og
umferð renni til uppbyggingar
vegakerfisins, reikna samtölu yfir
öll gjöld og skatta sem lagðir eru
á bifreiðaeigendur, samtals um 70
milljarða króna. Þar með eru talin
vörugjöld og virðisaukaskattur af
kaupum á nýjum bílum, eldsneyti
og varahlutum. Upphæðin er mun
hærri en samtala þeirra skatta og
gjalda sem innheimt eru af akstri
bifreiða og er slíkur samanburður
því alls ekki sanngjarn að mínu
mati,“ segir Jón.
Eins og Fréttablaðið sagði frá í
gær er að störfum starfshópur sam-
gönguráðherra sem er að greina
hvernig umfangsmiklum fram-
kvæmdum við stofnleiðir út frá
höfuðborgarsvæðinu verði best
háttað. Á þessu ári sé fjárveiting til
nýframkvæmda á öllu landinu um
ellefu milljarðar króna. Á sama tíma
er starfshópurinn að vega og meta
samgöngubætur sem eru af stærðar-
gráðunni 100 milljarðar.
Í skriflegu svari Jóns við fyrirspurn
Fréttablaðsins kemur fram að þessar
samgöngubætur verði ekki kláraðar
í nánustu framtíð vegna kostnaðar
og vill Jón því láta kanna aðkomu
einkaaðila og veggjöld til að flýta
framkvæmdum. „Í þessu samhengi
má líka halda því til haga að sam-
félagið ber ýmsan annan kostnað af
ökutækjum en útgjöld til vegamála.
Umferðarslys eru til dæmis talin til
mestu álagsvalda á heilbrigðiskerfið.
Aukið umferðaröryggi er einmitt
ein þeirra jákvæðu afleiðinga sem
stórbættar samgöngur út frá höfuð-
borgarsvæðinu munu leiða af sér og
er sannarlega samfélagslegur ábati.
Um það ættum við að geta verið
sammála,“ segir Jón. – shá
Samgönguráðherra segir gagnrýni byggða á villandi talnaleikfimi
Upphæðin er mun
hærri en samtala
þeirra skatta og gjalda sem
innheimt eru af
akstri bifreiða
Jón Gunnarsson,
samgöngu- og
sveitamálaráð-
herra,
FRUMSÝNING
Laugardaginn 20. maí
Opið frá 12 - 17
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-17
stjórnmál Búist er við hörðum og
hreinskiptnum umræðum á mið-
stjórnarfundi Framsóknarflokksins
á laugardag. Fundurinn er fyrsti stóri
fundur Framsóknar frá flokksþing-
inu síðastliðið haust þegar Sigurður
Ingi Jóhannsson sigraði Sigmund
Davíð Gunnlaugsson, sitjandi for-
mann, í formanns kosningu .
Í aðdraganda fundarins hafa
svæðis félög Framsóknarflokksins
haldið aðalfundi þar sem staða flokks-
ins hefur verið rædd en heimildir
herma að nokkuð þungt sé í mönnum.
Eftir aðalfund Framsóknarmanna á
Seltjarnarnesi í síðustu viku var til að
mynda send út ályktun þar sem hvatt
var til þess að flýta flokksþingi svo for-
ystan gæti endurnýjað umboð sitt. Sjö
og hálfur mánuður er síðan Sigurður
Ingi hafði betur gegn Sigmundi með
370 atkvæðum gegn 329.
„Ég held að það sé ljóst að það
verða hreinskiptnar umræður um
stöðu flokksins. Flokkurinn skiptist í
tvær eða jafnvel þrjár fylkingar,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður.
Staða flokksins sé ömurleg. „Slæm
útreið í kosningum, við fengum ekki
stjórnarmyndunarumboðið og hækk-
um ekkert í könnunum á meðan fylgi
allra annarra er á hreyfingu. Menn eru
ekki sáttir.“
Í stjórnarmyndunarviðræðunum
sem stóðu frá kosningum í lok októ-
ber og fram í janúar fengu Fram-
sóknarmenn ekki stjórnarmyndunar-
umboðið þegar búið var að reyna alla
stærri flokka. Þess í stað ákvað forseti
Íslands að enginn einn flokksformaður
fengi umboðið. Á meðan stjórnarþreif-
ingar fóru fram skrifaði Fréttablaðið
ítrekaðar skýringar þar sem tæpt var
á fjarveru Framsóknarflokksins við
stjórnarmyndunarborðið. Gunnar
Bragi segir það hafa reynst flokks-
mönnum skellur að fá ekki umboðið.
Nýtt flokksþing Framsóknar hefði
átt að fara fram næsta vor. Háværar
raddir eru uppi um að flýta því til
haustsins. Þeir sem Fréttablaðið
ræddi við töldu þó ekki líklegt að slík
tillaga yrði samþykkt á miðstjórnar-
fundinum um helgina. Líklegra væri
að hugmyndin fengi að gerjast lengur.
En ef til flokksþings kæmi í haust yrði
tilraun gerð til að skipta formannin-
um út til að skapa ró innan flokksins.
Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður
flokksins, segir ljóst að fólk muni
skiptast á skoðunum á fundinum.
„Svo fer örugglega eftir stemningu
hvort komi tillaga um að flýta flokks-
þingi. Það er ótímabært að segja til
um það.“ Hún segir það hafa verið
óheppilegt að hafa flokksþingið
svo skömmu fyrir kosningar síðasta
haust. „Svo fóru kosningarnar eins
og þær fóru. Því er ekki að neita að
árangurinn hefði mátt vera betri.
Það er alveg ljóst að menn verða að
ná flokknum saman. Það er lykilatriði
að árangri,“ segir Lilja
Ekki náðist í Sigurð Inga, formann
Framsóknarflokksins, við vinnslu
fréttarinnar.
snaeros@frettabladid.is
Búist við átökum hjá Framsókn
Svo gæti farið að Framsóknarmenn velji sér nýjan formann strax í haust. Rúmir sjö mánuðir eru síðan
Sigurður Ingi tók við en flokksmenn eru orðnir óþreyjufullir að uppskera betur í skoðanakönnunum.
Sigurður Ingi Jóhannsson var kjörinn formaður Framsóknarflokksins með 52,7 prósent atkvæða gegn Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, sem þá var sitjandi formaður. FréttablaðIð/anton brInk
Slæm útreið í
kosningum, við
fengum ekki stjórnarmynd-
unarumboðið og hækkum
ekkert í könnunum.
Gunnar Bragi Sveins-
son, þingmaður
Framsóknar-
flokksins
slYs Úrskurðarnefnd í vátrygginga-
málum hefur hafnað greiðslu konu
úr ábyrgðartryggingu vegna tjóns
sem hún varð fyrir er hún gekk á
glerhurð verslunar.
Konan ætlaði að ganga inn í
verslun í gegnum glerhurð sem hún
taldi alla jafna opna á sumartíma.
Hurðin opnaðist ekki og gekk hún á
hurðina og slasaði sig. Taldi hún að
verslunin hefði brotið gegn reglum
með því að merkja ekki greinilega
að hurðin opnaðist ekki.
Vátryggingafélag verslunarinnar
sagði hins vegar að umrædd hurð
væri aldrei opin. Alltaf sé stafli af
vörum við hana og „ætti enginn að
ganga á hurðina nema meiningin
sé að ganga yfir vörurnar fyrir aftan
hana“.
Úrskurðarnefndin taldi að ekki
hefði verið sýnt fram á að frágangur
glerhurðarinnar bryti gegn reglum.
Ekki var heldur talið að frágangur
verslunarinnar á vörunum hefði
verið óforsvaranlegur. Bótaskyldu
var því hafnað. – jóe
Bótalaust labb
á glerhurð
jaFnrÉttI Sýn ungra karla í Egypta-
landi, Marokkó og Palestínu á konur
er jafn neikvæð og sýn eldri karla í
þessum löndum. Þetta er niðurstaða
nýrrar rannsóknar á vegum UN
Women og samtakanna Promundo
sem byggð er á viðtölum við 10
þúsund karla og konur í Marokkó,
Egyptalandi, Líbanon og Palestínu.
Það er aðeins í Líbanon sem ungir
karlar eru jafnréttissinnaðri en eldri
karlar.
Í skýrslu um niðurstöðu rann-
sóknarinnar kemur fram að annar
hver karl í Marokkó og sex af hverj-
um tíu körlum í Egyptalandi segjast
hafa áreitt konur eða stúlkur kyn-
ferðislega. – ibs
Með neikvæða
sýn á konur
1 7 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K u D a g u r4 F r É t t I r ∙ F r É t t a B l a Ð I Ð
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-6
1
F
0
1
C
E
0
-6
0
B
4
1
C
E
0
-5
F
7
8
1
C
E
0
-5
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K