Fréttablaðið - 17.05.2017, Qupperneq 14
MERKIÐ
MITT
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
1 7 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R14 S p o R t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
sport
GoLF Það var gott hljóðið í forsvars-
mönnum Golfsambands Íslands á
kynningarfundi fyrir Golfsumarið
sem fór fram á Korpúlfsstöðum í
gær. Ísland hefur líklega aldrei átt
betri hóp af afrekskylfingum en
auk þess hafa vorið og veturinn
líka farið einstaklega vel með golf-
vellina.
„Þetta byrjar um næstu helgi á
Suðurnesjunum með fyrsta mótinu
á Eimskipsmótaröðinni. Við hlökk-
um gríðarlega til en vellirnir koma
vel undan vetri,“ segir Brynjar Eldon
Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ.
Fyrsta mótið í raun mót númer 3
Golftímabilið 2016-17 hófst í raun
með tveimur mótum síðasta haust.
Fyrsta mót sumarsins er því í raun
þriðja mót tímabilsins en með þessu
mynda menn mót hinna fjögurra
fræknu hvert sumar þar sem aðeins
góð spilamennska skilar kylfingum
þátttökurétti. Átta mót telja til stiga-
meistaratitils hjá körlum og konum
en mótin hafa mismunandi vægi.
Síðustu mótin á tímabilinu gefa
fleiri stig en þau í upphafi.
„Þetta kemur mjög vel út. Fólkið
er enn að læra á þetta en þetta
er komið til að vera og er mjög
skemmtilegt fyrirkomulag,“ segir
Brynjar en hvað er það besta við
nýja formið?
Með þá bestu á lokamótunum
„Þú þarft að vinna þér inn rétt
til að komast inn í þessi síðustu
fjögur mót á árinu og þau mót eru
fámenn en góðmenn. Þar erum
við með okkar allra bestu kylfinga
sem hafa lagt eitthvað á sig til að
komast þangað. Við erum búin að
einangra þá bestu og köllum þetta
orðið mótaröð þeirra bestu,“ segir
Brynjar.
Fjögur síðustu mótin, Íslandsmót
í höggleik og holukeppni, og loka-
mótin tvö hafa nú fengið heitið hin
fjögur fræknu upp á íslensku.
Tvö fyrstu mót þessa tímabils
fóru fram í Vestmannaeyjum og
á Akranesi síðasta haust en þetta
golfsumar byrjar á Hólmsvellinum
á föstudaginn og veðurspáin er góð.
Íslandsmótið í holukeppni fer fram
í Vestmannaeyjum 23. til 25. júní
og Íslandsmótið í höggleik verður
á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði 20. til
23. júlí.
Golfið með frábærar fyrirmyndir
Það er meðbyr með íslensku golfi
þessa dagana og Brynjar er mjög
ánægður með þróun mála.
„Það gengur ótrúlega vel hjá
okkur í golfinu. Það gengur vel
með vellina, það er að fjölga í
hreyfingunni og við erum að sjá
okkar besta afreksfólk blómstra
og þá sérstaklega stelpurnar. Svo
eru strákarnir að reyna að hlaupa
á eftir þeim. Við erum komin með
frábærar fyrirmyndir í þeim sem
hafa náð að brjóta sig í gegn og
eru kyndilberar fyrir okkur. Við
eigum mikið af ungum stelpum
og strákum í klúbbunum sem
eru ótrúleg efni,“ segir Brynjar.
Ísland á nú konur á bæði PGA-móta-
röðinni (Ólafía Þórunn Kristins-
dóttir) og Evrópumótaröðinni (Val-
dís Þóra Jónsdóttir) og báðar hafa
verið duglegar að skrifa íslenska
golfsögu að undanförnu. Það kom
fram á fundinum í gær að þær eiga
nú möguleika á því að komast inn á
Ólympíuleikana í Tókýó haldi þær
áfram að standa sig svona vel.
Strákarnir verða að taka sig á
„Strákarnir verða að fara að taka
sig á. Stelpurnar eru búnar að vera
frábærar, bæði Valdís og Ólafía
Þórunn. Við eigum fleiri stelpur og
það er því von á fleirum í fremstu
röð. Ég er alveg viss um að við sjáum
það á næstu árum. Það er virkilega
ánægjulegt hvað stelpurnar eru
orðnar góðar og það hjálpar okkur
líka að kveikja áhugann hjá konum
almennt á íþróttinni,“ segir Brynjar.
ooj@frettabladid.is
Fámennt en góðmennt
á úrslitastundu í sumar
GSÍ hefur sett saman úrvalshóp fjögurra golfmóta og þar munu úrslit Eimskips-
mótaraðarinnar ráðast á þessu golfsumri sem hefst um helgina. „Við erum búin
að einangra þá bestu,“ segir framkvæmdastjórinn Brynjar Eldon Geirsson.
Við erum að sjá
okkar besta afreks-
fólk blómstra og
þá sérstaklega
stelpurnar.
svo eru
strákarnir að
reyna að
hlaupa á eftir
þeim.
Brynjar Eldon Geirsson
Valsmenn í lykilstöðu
Skothöndin munduð Valsmenn eru aðeins einum sigri frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla eftir fimm marka sigur á FH-
ingum, 24-29, í þriðja leik liðanna í gærkvöldi. Allir þrír leikirnir í úrslitaeinvíginu hafa unnist á útivelli. Anton Rúnarsson, sem sést hér láta vaða á
markið, skoraði sex mörk fyrir Val í gær. Valsmenn fá tækifæri til að tryggja sér titilinn á heimavelli annað kvöld. Fréttablaðið/eyþór
FH - Valur 24-29
Markahæstir: Ásbjörn Friðriksson 5/4, Einar
Rafn Eiðsson 5, Arnar Freyr Ársælsson 4,
Óðinn Þór Ríkharðsson 3, Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 3 - Anton Rúnarsson 6, Sveinn Aron
Sveinsson 5, Heiðar Þór Aðalsteinsson 3/2,
Orri Freyr Gíslason 3, Ólafur Ægir Ólafsson
3, Alexander Örn Júlíusson 3.
Staðan er 2-1 fyrir Val.
Nýjast
Olís-deild karla - lokaúrslit
Valur - Stjarnan 1-3
0-1 Sigrún Ella Einarsdóttir (4.), 1-1 Elín
Metta Jensen (47.), 1-2 Katrín Ásbjörns-
dóttir (60.), 1-3 Agla María Albersdóttir (62).
Grindavík - ÍbV 0-4
0-1 Katie Kraeutner (2.), 0-2 Kristín Erna
Sigurlásdóttir (41.), 0-3 Kristín Erna (56.),
0-4 Cloé Lacasse (64.).
efri
Þór/KA 12
Stjarnan 10
FH 9
Breiðablik 9
ÍBV 7
Neðri
Grindavík 6
Valur 3
Fylkir 3
KR 0
Haukar 0
Pepsi-deild kvenna
18.35 S’oton - Man. United Sport
18.40 S.Wed. - Huddersf. Sport 3
18.50 Celta - real Madrid Sport 4
19.05 Fylkir - breiðablik Sport 2
20.45 Pepsi-mörk kvenna Sport
20.00 Fram - Stjarnan Framhús
Í dag
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-5
D
0
0
1
C
E
0
-5
B
C
4
1
C
E
0
-5
A
8
8
1
C
E
0
-5
9
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K