Fréttablaðið - 17.05.2017, Qupperneq 16
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Kjörís hefur stefnt Emmessís og
vill staðfestingu héraðsdóms á
lögbanni sem Sýslumaðurinn
í Reykjavík lagði á framleiðslu-
vöru samkeppnisaðilans í
lok nóvember. Forsvarsmenn
Emmessís hafa lagt fram gagn-
stefnu og fara fram á bætur enda
telja þeir að einkaleyfi ísfram-
leiðandans í Hveragerði á vöru-
merkinu Toppís hafi runnið út.
„Við fórum fram á lögbanns-
beiðni í lok nóvember á vöru
þeirra Toppís sem var samþykkt
og þeir komu með nýtt nafn á
ísinn sinn sem heitir nú Happís.
Þeir hafa aftur á móti ekki viður-
kennt að við eigum vörumerkið
Toppís, og vilja fá nafnið afskráð hjá
Einkaleyfastofu á þeirri forsendu að
við höfum ekki notað vörumerkið
nógu mikið. Við áttum okkur ekki
á framgangi þeirra og höfum varið
okkar vörumerki,“ segir Valdimar
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Kjöríss.
Emmessís hóf í nóvember í fyrra
sölu á ís í boxi undir heitinu Toppís.
Forsvarsmenn Kjöríss fóru í kjölfar-
ið fram á að nafninu yrði breytt og
vísuðu til skráningar fyrirtækisins
á vörumerkinu hjá Einkaleyfastofu
árið 1996 og endurnýjun hennar
tveimur áratugum síðar. Kjörís
framleiðir vörur undir merkinu
Lúxus toppís.
„Við höfum notað þetta
meira og minna alla tíð. Þeir hafa
notað vörumerkið Toppur og eiga
það skráð,“ segir Valdimar.
Ragnar Birgisson, framkvæmda-
stjóri Emmessís, segir fyrirtækið
hafa orðið fyrir tjóni vegna lög-
bannsins enda hafi sala og dreifing á
vörunni verið hafin.
„Við höfðum unnið með aug-
lýsingastofu við að finna nafnið og
hanna vörumerki. Okkur fannst það
í takt við að við erum með vin-
sælasta toppinn á Íslandi, Hnetu-
topp, og annað af okkar slagorðum
er „Emmessís toppurinn á ísnum“.
Okkur láðist að athuga hjá Einka-
leyfastofu hvort þetta væri skráð
en höfðum ekki orðið vör við neinn
Toppís á markaðnum og töldum því
ekki að nafnið væri frátekið,“ segir
Ragnar.
„Við höfðum svo samband við
lögfræðing sem benti okkur á að
þegar þú hefur ekki notað vöru-
merki í fimm ár fellur einkaleyfið
úr gildi. Síðan kom í ljós að þeir eru
ekki að selja undir vörumerkinu
Toppís heldur Lúxus toppís. Þar
kemur nafnið fram en eingöngu
sem lýsing en ekki vörumerki. Kjör-
ís þurfti að leggja fram tryggingu í
lögbanninu og síðar að stefna okkur
til að fá hana til baka. Við erum fyrst
og fremst að endurheimta eitthvað
af því tjóni sem við urðum fyrir. Ef
lögbannið dæmist ógilt þurfa þeir
að borga okkur tjón sem við höfum
orðið fyrir,“ segir Ragnar.
haraldur@frettabladid.is
Kjörís og Emmessís
takast á fyrir dómi
Sýslumaðurinn í Reykjavík lagði lögbann á notkun Emmessíss á vörumerkinu
Toppís. Stjórnendur Emmessíss breyttu nafninu, hafa gagnstefnt Kjörís í Hvera-
gerði og vilja bætur. Verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag.
Fyrirtaka í máli Kjöríss gegn Emmessís verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag. FRéttablaðið/GVa
Emmessís
kynnt í
nóvember
nýja vöru
sem hét þá
toppís en
var síðar
breytt í
Happís.
Gengið var endanlega frá sölu á 69
prósenta hlut í Ölgerðinni þann 27.
apríl síðastliðinn. Ný stjórn fyrir-
tækisins var kjörin sama dag og tóku
fulltrúar framtakssjóðanna Akurs
fjárfestinga og Horns III þá sæti í
stjórninni.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðarinnar, staðfestir í samtali
við Markaðinn að eigendaskiptin
séu nú frágengin. Akur og Horn III
eru að mestu í eigu lífeyrissjóða og
keyptu framtakssjóðirnir 69 pró-
senta hlutinn ásamt hópi einka-
fjárfesta. Söluverðið nam um fimm
milljörðum króna þegar ekki er
tekið tillit til skulda Ölgerðarinnar
og handbærs fjár. Kom það fram í
dómsmáli sem fyrrverandi hluthafi
í Ölgerðinni höfðaði eftir að Sýslu-
maðurinn á höfuðborgarsvæðinu
hafnaði beiðni hans um lögbann á
söluna.
Októ Einarsson, sem á ásamt
Andra Þór alls 31 prósents hlut í
Ölgerðinni í gegnum OA eignar-
haldsfélag ehf., var kjörinn stjórnar-
formaður fyrirtækisins á fundinum
í lok apríl. Hermann Már Þórisson,
framkvæmdastjóri Horns III, fór þá
inn í stjórn félagsins ásamt Jóhann-
esi Haukssyni, framkvæmdastjóra
hjá Íslandssjóðum sem reka Akur.
Það gerðu einnig þær Rannveig Eir
Einarsdóttir, forstöðumaður flug-
þjónustudeildar Icelandair, og Sylvía
Kristín Ólafsdóttir, starfsmaður
Landsvirkjunar.
Eins og Markaðurinn greindi frá
um miðjan mars biðu þáverandi og
núverandi eigendur Ölgerðarinnar
eftir samþykki Samkeppniseftirlits-
ins fyrir sölunni í rúma fjóra mánuði
að óþörfu. Salan var ekki tilkynn-
ingarskyld og úrskurðaði stofnunin
endanlega um það í byrjun mars. - hg
Salan á 69% í Ölgerðinni í höfn
Kaupsamningurinn var undirritaður í
október FRéttablaðið/anton bRinK
Þetta er nýbúið að gerast,“ svarar Guðni Rafn Eiríks-son, framkvæmdastjóri og
eigandi Eplis, spurður hvort fyrir-
tækið hafi tryggt sér umboðið fyrir
farsíma Apple hér
á landi. Síminn,
Vodafone á Íslandi
og Nova hafa verið
umboðsaðilar á
farsímum banda-
ríska raftækjafram-
leiðandans síðan
þeir fóru fyrst í
sölu hér landi árið
2009.
„Við höfum hing-
að til verið með
umboð á öllum
vörum Apple nema
Iphone. Fjarskipa-
fyrirtækin hafa átt
það síðan fyrsti sím-
inn kom á markað
en Apple vill nú fara
í gegnum einn aðila
en ekki þrjá,“ segir
Guðni í samtali við
Markaðinn.
Epli er bæði heild-
og smásali á vörum
Apple og rekur tvær
verslanir, við Laugaveg og í Smára-
lind. Fyrirtækið nýtur ákveðinna
sérkjara á vörum frá Apple en hefur
hingað til þurft að kaupa Iphone
til endursölu af fjarskiptafélög-
unum þremur. Það er í eigu einka-
hlutafélagsins Skakkaturns sem
Guðni keypti í desember í fyrra af
þeim Bjarna Ákasyni, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Eplis, og Valdi-
mar Gíslasyni, fjárfesti og fyrr-
verandi handboltakappa. Guðni á
í dag 80 prósenta hlut í fyrirtækinu
en Bjarni á 20 prósent.
„Þú getur keypt
símana hvar sem
er því það er ekki
lengur til neitt sem
heitir einkaumboð
á raftækjum. Apple
veitir aftur á móti
ákveðna ábyrgð
sem við þjónust-
um og síðan geta
allir komið með
símana hingað í
þjónustu óháð
því hvar þeir voru
keyptir,“ segir
Guðni.
„Menn leita
að besta verðinu
og þar þurftum
við að vera sam-
k e p p n i s h æ f .
Þegar það kemur
nýr Iphone á
markað snýst þetta
einnig um að fá vöruna á
réttum tíma en fyrir okkur skiptir
mestu að fá þjónustuna. Það er ekki
mikill hagnaður af símasölu en við
munum þjónusta símafyrirtækin
hér heima og verðum þeirra birgir.
Neytendur munu aftur á móti ekki
finna fyrir neinum breytingum og
áfram verður hægt að kaupa símana
í öllum helstu verslunum.“ - hg
Símafélögin missa Iphone
umboðið yfir til Epli
Epli rekur verslun við laugaveg og í Smáralind. FRéttablaðið/anton bRinK
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
1 7 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K u D a g u R2 markaðurinn
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-5
8
1
0
1
C
E
0
-5
6
D
4
1
C
E
0
-5
5
9
8
1
C
E
0
-5
4
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K