Fréttablaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 24
Þetta er fyrst og
fremst skemmtileg
leið fyrir fyrirtæki að
koma sínum vörum á
framfæri.Samtök iðnaðarins eru sam-starfsaðilar Amazing Home Show ásamt Nýsköpunar-
miðstöð Íslands. Að sögn Jóhönnu
Klöru Stefánsdóttur, viðskipta-
stjóra á framleiðslusviði hjá Sam-
tökum iðnaðarins, er það hlutverk
samtakanna að efla íslenskan iðnað
og samkeppnishæfni hans. „Við
reynum að gera það með eins fjöl-
breyttum leiðum og hægt er. Það
er því hluti af starfsemi okkar að
koma að hinum ýmsu sýningum
á einn eða annan hátt og undan-
farið höfum við verið þátttakendur
í þeim fjölmörgum. Má þar nefna
Verk og vit, UT messuna og Matur-
INN á Akureyri. Fyrir skömmu
vorum við einnig með tvær stórar
sýningar á HönnunarMars.“
Jóhanna segist þekkja það í sínu
starfi hversu öflug fyrirtæki finnast
hér á landi. „Í heimsóknum mínum
til þeirra tekst þeim oftar en ekki
að koma mér verulega á óvart. Við
viljum gjarnan vera með mismun-
andi farvegi til að gera atvinnulífið
sýnilegt og aðgengilegt almenningi.
Sýningar sem þessar eru ákveðin
leið til að kynna starfsemi fyrir-
tækjanna og öll þau fjölbreyttu
störf sem þar eru unnin.
Jóhanna segir fjölmörg fyrirtæki
koma að Amazing Home Show
og er spennt að sjá hvað þau ætla
að kynna. „Eins verðum við hjá
Samtökum iðnaðarins og fjögur
fagfélög innan okkar raða með á
sýningunni. Það eru Meistarafélag
bólstrara, Félag íslenskra gullsmiða,
Félag íslenskra snyrtifræðinga og
Klæðskera- og kjólameistarafélagið.
Gestir geta komið við hjá okkur
og spjallað við þetta flotta fagfólk
og kynnt sér starfsemina. Eins
ætla gullsmiðir að aðstoða gesti
við hreinsun á skarti og snyrti-
stofur ætla að vera með kynningar
á nýjum meðferðum sem eru að
koma á markað.“ Jóhanna segir
virkilega skemmtilegt að kynnast
þessum iðngreinum enda sé mikil
vöruþróun í gangi og fagmennska í
fyrirrúmi.
En hvaða þýðingu hefur sýning
sem þessi fyrir markaðinn?
„Þetta er fyrst og fremst skemmti-
leg leið fyrir fyrirtæki að koma
sínum vörum á framfæri. Það er
líka ákveðin uppsöfnuð þörf fyrir
sýningar á borð við þessa þar sem
fyrirtæki hafa haft aukin tækifæri
og fjármagn til að þróa vörulínur
sínar og rekstur undanfarin ár. Auk
þess eru ný fyrirtæki að koma inn
á markaðinn sem vilja taka þátt og
vera sýnileg. Fyrir vanafasta neyt-
endur eins og mig þá verður mjög
áhugavert að kynna sér það sem er
í boði. Það er ávinningur fyrir alla
því fyrirtækin fá einstakt tækifæri
til að ná til landsmanna og við sem
leggjum leið okkar í Laugardalshöll-
ina um helgina fáum á einum stað
yfirgripsmikla sýn á það nýjasta á
markaðnum.“
Allt það nýjasta á einum stað
Amazing Home Show gefur fyrirtækjum tækifæri til að koma vörum sínum
á framfæri. Að sögn Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur hjá Samtökum iðnaðarins
gefur hún líka neytendum yfirgripsmikla yfirsýn yfir allt það nýjasta.
Við bjóðum upp á einkaviðtöl við
viðskiptavini til að fara yfir möguleikana,
skipuleggjum skoðunarferðir og aðstoð-
um við allt kaupferlið frá upphafi til enda.
Þú ert í öruggum höndum hjá íslenskum
löggiltum fasteignasölum með áralanga
reynslu af sölu fasteigna á Spáni.
Af hverju að kaupa?
Fyrir fjárfesta
Af hverju Spánn? Einkaviðtöl
Viltu vita meira?
Miðjarðarhafssvæðið á sér langa sögu og
í gegnum aldirnar hafa íbúar svæðisins
fullkomnað listina að lifa. Hvort sem það
er í mat eða drykk, útiveru eða afslöpp-
un kunna íbúar Costa Blanca að njóta
lífsins. Þeir eru vingjarnlegir og taka vel
á móti gestum. Verðlagið er hagstætt og
þar hægt er að lifa góðu lífi, þótt tekjurnar
séu takmarkaðar.
Menningin og loftslagið gera þetta svæði
einstakt.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) telur
loftslagið vera eitt það besta í heimi og
möguleikarnir til útiveru eru fjölmargir;
hjólreiðar, tennis, golf, vínsmökkun,
líkamsrækt...
Eða bara njóta lífsins á ströndinni.
Langar þig að fjárfesta? Nú er góður tími
til að kaupa fasteign á Spáni, verðið gott,
gjaldeyrishöftin farin og gengi íslensku
krónurnnar hagstætt. Spánareignir bjóða
upp á mikið úrval góðra eigna á Costa
Blanca svæðinu, hannaðar og byggðar
af traustum aðilum. Við seljum bæði
nýjar eignir og endursölueignir.Ýmsar
fjármögnunarleiðir eru í boði. Hægt er að
velja um íbúðir, raðhús eða einbýlishús
í góðum hverfum stutt frá alþjóðlegum
flugvöllum og þar sem stutt er á strönd, í
golf, verslanir, veitingastaði og alla helstu
þjónustu.
Við bjóðum upp á ýmsar hagstæðar
lausnir vegna kaupa og reksturs á orlofs-
húsnæði fyrir fyrirtæki, starfsmannafélög
og félagasamtök. Einnig erum við með
spennandi fasteignaþróunarverkefni og
fjárfestingaverkefni á Spáni fyrir stærri
fjárfesta.
Skoðaðu úrvalið á heimasíðunni okkar:
WWW.SPANAREIGNIR.IS
Allar upplýsingar veitir Aðalheiður Karls-
dóttir, löggiltur fasteignasali.
info@spanareignir.is eða
GSM 893 2495.
„Fyrir vanafasta neytendur eins og mig verður mjög áhugavert að kynna sér
það sem í boði er,“ segir Jóhanna. MYND/ANTONBRINK
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
4 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . m A í 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-8
E
6
0
1
C
E
0
-8
D
2
4
1
C
E
0
-8
B
E
8
1
C
E
0
-8
A
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K