Fréttablaðið - 17.05.2017, Síða 39
„Það er mikilvægt að stjórnarmenn, hluthafar eða aðrir séu ekki með afskipti af eignum VÍS, og enn síður að þeir skipti sér af mínum fjárfestingum.“ Fréttablaðið/anton brink
selt eða hyggjast selja hluti í félag-
inu hafa ekki sett sig í samband
við okkur til að ræða þessi mál eða
önnur sem tengjast félaginu. Von-
andi verður breyting þar á svo hlut-
irnir skýrist og við þurfum auðvitað
að huga vel að upplýsingamiðlun til
okkar hagsmunaaðila. Hins vegar
hafa allir rétt á því að kaupa og selja
bréf í félaginu en mér finnst það
hljóma eins og tylliástæða að vísa
til ávirðinga um óeðlilega stjórnar-
hætti sem byggja ekki á haldbærum
rökum eða gögnum. Í því samhengi
er rétt að nefna að fyrrverandi
stjórnarformaður sat engan fund í
félaginu eftir að stjórn skipti með
sér verkum eftir aðalfund í mars.“
Hræðist ekki þessa umfjöllun
Hefur Fjármálaeftirlitið (FME) séð
ástæðu til að skoða þessi eigna-
tengsl sem eru á milli VÍS og Kviku
og banka?
„Við fengum fyrirspurn frá FME
um fyrirætlanir okkar með þessa
eign í Kviku en svör okkar til eftir-
litsins voru þau að þetta væri aðeins
eign í fjárfestingabók, og að svo
yrði áfram, og að við ætluðum að
einbeita okkur að uppbyggingu
tryggingarekstursins. Samstarf
milli þessara félaga kemur til greina
í framtíðinni en það er einhver tími
þangað til slíkt getur orðið að veru-
leika.“
Sumir stórir einkafjárfestar í hlut-
hafahópi VÍS telja að eignarhald
ykkar hjónanna í Kviku sé óheppilegt
og hafa komið þeirri skoðun sinni á
framfæri við þig að það færi best á
því að þið mynduð losa um hlutinn
í bankanum til að friður skapist um
störf stjórnar VÍS. Kemur til greina
að selja hlut ykkar í Kviku?
„Í stjórnum allra tryggingafélaga
eru aðilar sem hafa fjárfest í félögum
sem einnig er að finna í fjárfestinga-
bókum tryggingafyrirtækjanna. Það
er ekki óeðlilegt og nokkuð sem
fylgir því að vera fjárfestir á mark-
aði. Eins og áður sagði kom fjár-
festing mín í Kviku banka til áður
en fyrri stjórn VÍS, undir forystu
Herdísar, ákvað að kaupa í Kviku og
er því alls ótengd mér. Ég hef komið
að fleiri fjárfestingum sem ég og yfir-
maður eignastýringar VÍS virðast
deila trú á, meðal annars í Icelandair
og Högum. Það sem er mikilvægast í
þessum efnum er að hvorki stjórnar-
menn, hluthafar eða aðrir séu með
afskipti af þessum eignum VÍS, og
enn síður að þeir séu að skipta sér
af mínum eigin fjárfestingum.“
Sérðu fyrir þér að það komist á
starfsfriður um störf stjórnar félags-
ins við þessar aðstæður?
„Það var ljóst frá upphafi að það
yrði ósætti við breytta verkaskipt-
ingu stjórnar. Það sem við vissum
ekki var hvaða mynd slíkt ósætti
ætti eftir að taka á sig eins og við
höfum orðið vitni á síðustu dögum
og vikum. Ég hræðist ekki þessa
umfjöllun eða rakalausar ásakanir.
Ég trúði lengi vel á að maður ætti
einungis að láta verkin tala og að
það yrði á endanum ofan á. Mér var
hins vegar nýlega bent á að það eru
ekki verk sem tala, heldur fólk. Ég
er mjög bjartsýn á framtíð VÍS og
tel við séum komin langt á veg með
að ýta úr vegi stærstu hindrunum.
Ég hef mikla trú á starfsmönnum
og stjórnendum VÍS og veit að
þau stýra félaginu í gegnum þessa
umfjöllun.“
kom framboð Herdísar á óvart
Kom þér á óvart þegar Herdís ákvað
að segja sig úr stjórninni aðeins
tveimur vikum eftir aðalfund?
„Já, en hitt kom mér meira á óvart
að hún hefði ákveðið að bjóða sig
fram, ef formannssætið skipti svona
miklu máli, því öllum mátti vera
ljóst að við vildum sjá breytingar á
stjórninni sem á endanum myndu
skila betri afkomu félagsins. Það
á enginn tilkall til formannsemb-
ættisins en það reyndi aldrei á sam-
starf okkar í stjórninni og því komu
ávirðingarnar á óvart.“
Afsögn Herdísar heldur áfram að
draga dilk á eftir sér og í síðustu viku
bárust fréttir af því að Lífeyrissjóður
verslunarmanna, stærsti hluthafi VÍS
og sá sem hafði stutt Herdísi, hafi í
hyggju að fylgja í fótspor Gildis og
selja verulegan hluta af eign sinni í
félaginu. Hlutabréfaverð VÍS, eins
og fyrirsjáanlegt var, lækkaði mikið
í kjölfarið. Er þetta ekki áhyggjuefni?
„Gengi hlutabréfa sveiflast upp og
niður en aðalatriðið er að línan sé
upp á við til lengri tíma litið. Sjálf er
ég langtímafjárfestir í félaginu og er
sannfærð um að mínu fé sé þar vel
varið. Þrátt fyrir lækkunina undan-
farna daga er gengið talsvert hærra
nú en það var fyrir aðalfundinn í
mars. Hitt skal ósagt látið hvort það
sé almennt skynsamlegt fyrir fjár-
festa að láta fyrirætlanir sínar um
að minnka eignarhlut í skráðu félagi
spyrjast út því seljandi hlýtur alltaf
að vilja hámarka verðið sem hann
Við fengum fyrir-
spurn frá FME um
fyrirætlanir okkar með þessa
eign í Kviku.
Námskeið
í LEAN
HAGNÝT NÁLGUN VIÐ AÐ
SETJA UPP FYRSTU TÖFLUNA
Þetta námskeið í sýnilegri stjórnun er
hugsað fyrir þá sem hafa áhuga á að
kynna sér VMS töflur vel eða eru að hefja
innleiðingu á töflu. Námskeiðið nýtist
einnig þeim sem eru að nota töflu en
vilja þróa hana áfram.
Farið er yfir tilgang sýnilegrar stjórnunar
og hugmynda- og aðferðafræði kynnt.
Áhersla er lögð á hagnýta nálgun
og lausnir við töfluinnleiðingu og
þátttakend ur því hvattir til að mæta með
hugmyndir til þess að fá sem mest út úr
námskeiðinu.
Námskeiðið dreifist á tvo daga til þess
að þátttakendur geti spreytt sig áfram
með töflur milli kennsludaga og dregið
lærdóm af notkun á eigin töflu.
Fyrri dagur : Fim. 18. maí kl. 9-12
Seinni dagur : Mið. 24. maí kl. 9-11
Verð : 29.900 kr.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
Lárus G. Lúðvígsson, sérfræðingur á
ráðgjafarsviði KPMG. Námskeiðið verður
haldið á skrifstofu KPMG, Borgartúni 27.
Skráning á námskeiðið og nánari
upplýsingar er að finna á kpmg.is
Þrír forstjórar á einu ári
Tilkynnt var um það á dögunum að Helgi Bjarnason, sem hefur verið
framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka, hefði verið ráðinn
forstjóri VÍS og tæki við starfinu af Jakobi Sigurðssyn, en hafði gegnt því í
aðeins átta mánuði, og sagði því lausu þann 19. apríl síðastliðinn.
Svanhildur segir aðspurð að það hafi vissulega komið nokkuð óvænt
upp þegar Jakob tilkynnti um ákvörðun sína en hún hafi gefið stjórninni
færi á því að vanda til verka þegar leitað var að eftirmanni Jakobs.
„Ráðningin á Helga var afrakstur mikillar yfirlegu þar sem áherslan var
lögð á faglega nálgun frá upphafi til enda með utanaðkomandi ráðgjöf
frá Capacent. Við erum afar ánægð með niðurstöðuna og ráðningin
hefur mælst vel fyrir enda hefur Helgi fjölbreytta reynslu sem nýtist
vel í starfi forstjóra tryggingafélags og nýtur augljóslega mikils traust á
markaði. Hann verður þriðji forstjóri félagsins á einu ári, en ég trúi því að
með honum verði ákveðin vatnaskil og festa komist á stjórnun fyrir-
tækisins. Ég vænti þess að það sama eigi við stjórnina sjálfa.“
fær fyrir hlut sinn. Á hinn bóginn
skapast kauptækifæri fyrir aðra,
sérstaklega ef einhverjir hluthafar
eru að selja bréfin á útsölu. Ég tel að
það séu mikil tækifæri fólgin í félag-
inu og fagna öllum nýjum fjárfestum
sem sjá þessi sömu tækifæri og við.“
Ákvörðun lífeyrissjóðanna um að
selja virðist vera gagnrýni á þig per-
sónulega, ekki satt?
„Það er erfitt fyrir mig að svara
því en ef svo er þá vona ég að það
sé vegna þess að fólk þekki mig ekki
eða fyrir hvað ég stend. VÍS þarf
á breytingum að halda. Hlutverk
stjórnarinnar er skýrt – að tryggja
góðan rekstur og hag hluthafa sem
ég vil að fái sanngjarnan arð af sinni
fjárfestingu. Við erum lögð af stað í
þá átt og stjórnarmenn eru samstíga
í sínum fyrirætlunum eins og sást
meðal annars í ráðningu á nýjum
forstjóra sem einhugur var um í
stjórninni og staðfestir áherslur
stjórnarinnar á að hlúa að innviðum
tryggingafélagsins. Við höfum mikl-
ar væntingar til hans og munum
styðja við hann með ráðum og dáð.“
markaðurinn 5M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . M A í 2 0 1 7 M K
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-6
B
D
0
1
C
E
0
-6
A
9
4
1
C
E
0
-6
9
5
8
1
C
E
0
-6
8
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K