Fréttablaðið - 17.05.2017, Qupperneq 41
Tölvuleikir skáka tónlistinni
Ósk Heiða Sveinsdóttir var ráðin
markaðsstjóri Krónunnar og Kjar-
vals fyrir rúmu ári síðan en hún sinnti
áður sambærilegu starfi í markaðs-
deild Íslandshótela. Hún segir það
hafa reynst sér vel að eiga bakgrunn í
hótelbransanum og nefnir einnig starf
sitt sem markaðsstjóri hugbúnaðar-
fyrirtækisins HugarAx. Ósk er með
mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum og
markaðsfræði frá Háskóla Íslands, og
tók hluta námsins við Copenhagen
Business School, er gift með tvö börn,
og situr hér fyrir svörum í Svipmynd
Markaðarins. .
Hvað hefur komið þér mest á óvart
á undanförnum mánuðum? Úrslit for-
setakosninganna í Bandaríkjunum
komu töluvert á óvart. Einnig kom það
mér ánægjulega á óvart hvað ég lærði
mikið á því að fara í markþjálfum. Það
er alltaf gott að læra eitthvað nýtt og
rýna í hlutina.
Hvaða app notarðu mest? Fyrir utan
hið hefðbundna app fyrir tölvupóst-
inn nota ég langmest Facebook.
Hvað gerir þú í frístundum þínum?
Af því að vikan hjá mér er alltaf þétt-
bókuð og mjög mikið að gera, þá reyni
ég að hafa frístundir eins lítið skipu-
lagðar og hægt er. Finnst mjög nota-
legt að vakna um helgar með ekkert
planað og láta daginn bara ráðast með
fjölskyldunni. Annars elska ég ferða-
lög og reyni að ferðast mjög reglulega.
Hvernig heldur þú þér í formi? Það
hefur verið tekið í skorpum hjá mér
en núna er ég mest í því að hlaupa á
eftir börnunum mínum. Huganum
held ég í formi með því að grúska á
bókasöfnum og sökkva mér í eitthvað
sem ég veit lítið um, það er alveg nauð-
synlegt.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Það fer
algjörlega eftir skapi hverju sinni, en
það vill svo skemmtilega til að ég er á
leiðinni á Rammstein tónleika þannig
að það er svoldið verið að hlusta á þá
þessa dagana.
Ertu í þínu draumastarfi? Að vinna
við markaðsmál, koma hlutunum í
framkvæmd og geta unnið að verkefn-
um sem geta haft áhrif til góðs skiptir
mig miklu máli. Þetta er allt eitthvað
sem ég hef færi á í dag. Þegar ég byrj-
aði hjá Krónunni var sagt við mig: „Við
réðum þig ekki til að segja þér hvað þú
átt að gera, þú átt að segja okkur hvað
við eigum að gera.“ Það hentar mér vel
og er algjör draumur. Starfið verður að
styðja við þína ástríðu og eldmóð, þá
gerast hlutirnir.
Býr sig undir tónleika Rammstein
Tekjur af sölu miða á kvikmyndina
Avatar náðu milljarði dollara á ein-
ungis 17 dögum um jólahátíðina
2009. Stórmyndin The Avengers náði
því marki á 19 dögum. Milljarðinum
var náð þremur dögum eftir útgáfu
tölvuleiksins Grand Theft Auto V.
Í örum vexti
Vöxtur tölvuleikjaiðnaðarins hefur
verið mun meiri undanfarin ár en í
heimi kvikmynda, ritverka og tón-
listar. Skv. spá PWC fram til ársins
2020 heldur þessi þróun áfram, en nú
þegar skapa tölvuleikir talsvert meiri
tekjur en allur tónlistariðnaðurinn
og kvikmyndahús samanlagt. Þetta
kann að koma á óvart þar sem lítið
er fjallað um leiki í fjölmiðlum en
hvaðan koma allir þessir fjármunir?
Ólík þróun tónlistar og leikja
Tekjur tónlistariðnaðarins hafa
dregist saman ár frá ári samhliða
vexti stafrænnar dreifingar og eðli-
lega hafa tónlistarfólk og útgefendur
af því miklar áhyggjur. Óumflýjan-
legt er að framtíð tónlistar sé stafræn
en Spotify, YouTube, Apple Music og
fleirum gengur illa að skapa ásættan-
legar tekjur. Við virðumst ekki vilja
greiða jafn mikið og áður fyrir tónlist.
Þetta er ekki vandamál í tölvu-
leikjaiðnaðinum. Niðurhal, áskriftir
og öpp hafa aukið tekjur iðnaðarins
til muna og tekjumöguleikar útgef-
enda eru fleiri en áður. Fleiri en 20
milljónir áskrifenda greiða fyrir
aðgang að PlayStation Plus þjónustu
Sony, en auk þess fyrir staka leiki
sem hlaðið er niður stafrænt. Tekjur
tölvuleikjaþjónustunnar Steam
nema um 3,5 milljörðum dollara,
tvöfalt meiru en stafrænt streymi
tónlistar skilar á heimsvísu. Raunar
nær öll útgáfa tónlistar rétt sambæri-
legum tekjum og fást af tölvuleikjum
í snjalltækjum, sem þó er einungis
fjórðungur tölvuleikjaiðnaðarins.
Auglýsendur hafa áttað sig á
þessum spennandi markaði og eyða
nú um 70% hærri upphæðum í að
koma vörumerkjum sínum á fram-
færi í tölvuleikjum en fyrir fimm
árum síðan.
Tökum leikina alvarlega
Það skiptir í raun litlu máli hvort
okkur finnst tölvuleikir kjánalegir
og hvaða skoðun við höfum á þeim
sem eyða í þá miklu fjármagni eða
lifa jafnvel á að keppa á stórmótum.
Þetta er mun stærri iðnaður en
flestir gera sér grein fyrir og það er
löngu tímabært að hann sé tekinn
alvarlega.
Björn Berg
Gunnarsson
fræðslustjóri VÍB
Ósk Heiða Sveinsdóttir er markaðsstjóri Krónunnar og Kjarvals. FréTTaBlaðið/anTon BrinK
Í 7. grein reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð eru tilgreindar heimildir
sjóðsins til að veita sérstaka styrki:
A) Styrkir til verkefna sem stuðla að samdrætti í olíunotkun til
húshitunar eða rafmagnsframleiðslu utan veitna.
B) Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda
rafkyndingu húsnæðis eða mannvirkja í eigu sveitarfélaga.
C) Styrkir til verkefna sem leiða til orkusparnaðar.
Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs
á árinu 2017 verði til verkefna samkvæmt B) lið ofangreindra heimilda.
Eingöngu er um fjárfestingarstyrki að ræða þ.e. styrki til kaupa á tækjum og
búnaði. Styrkur nemur 50% af kaupverði, þó að hámarki 2,5 m.kr.
Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til:
• Að fyrir liggi raunhæf áætlun um olíusparnað.
• Áætlaðs olíusparnaðar í hlutfalli við kostnað.
• Að verkefnið sé vel undirbúið og að fyrir liggi ítarleg verk- og kostnaðaráætlun.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2017
Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi
síðar en 20. ágúst 2017
Orkustofnun fylgir stefnu stjórnvalda um rafræna stjórnsýslu og skal senda
rafrænar umsóknir af vef Orkustofnunar www.os.is
Nánari upplýsingar hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg, 603 Akureyri
í síma 569 6083 – Netgang Orkusjóðs er jbj@os.is - Orkusjóður á www.os.is
ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2017
Svipmynd
Ósk Heiða Sveinsdóttir
7M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . M A í 2 0 1 7 markaðurinn
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
0
-5
8
1
0
1
C
E
0
-5
6
D
4
1
C
E
0
-5
5
9
8
1
C
E
0
-5
4
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K