Fréttablaðið - 17.05.2017, Blaðsíða 42
Markaðurinn
@stjornarmadur
Stjórnar-
maðurinn
Miðvikudagur 17. maí 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Róbert Marshall og Guðmundur Steingríms-
son, fyrrverandi þingmenn Bjartrar framtíð-
ar, hafa stofnað útgáfufélagið Vertu úti utan
um nýtt tímarit sem hefur fengið
nafnið Úti. Samkvæmt skrán-
ingu félagsins hjá fyrirtækja-
skrá Ríkisskattstjóra mun það
gefa tímaritið út á íslensku og
ensku en einnig framleiða
annað fjölmiðlaefni og
skipuleggja viðburði
og fræðslu sem tengist útivist.
Félagarnir tveir sitja í stjórn útgáfufélags-
ins ásamt Brynhildi Ólafsdóttur, fyrrverandi
fréttakonu og eiginkonu Róberts, og
Alexíu Björg Jóhannesdóttur, fyrr-
verandi kynningarstjóra Borgar-
leikhússins og eiginkonu Guð-
mundar. Útgáfufélagið hét áður
Reykjavík Casting ehf. og var
stofnað 2006 af Alexíu
Björgu. – hg
Fyrrverandi þingmenn skrifa um útivist
Róbert
Marshall
Guðmundur
Steingrímsson
Það er það sem ég er ofboðslega
ósátt við að ekki lágu fyrir
nægilegar upplýsingar, en þrátt fyrir það
var hæstv. fjármála- og efnahagsráð-
herra Íslands tilbúinn að segja að
það væri jákvætt að vogunarsjóðir
væru að veðja á Ísland.
Lilja Alfreðsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins
15.5.2017
Skrifstofuhúsnæði til leigu
á besta stað í miðbænum.
• Komið er inn í rýmið í gegnum sameiginlegt stigahús í miðju húsinu.
• Björt skrifstofa með stórum gluggum og fallegu útsýni.
• VSK húsnæði.
• Stærð 209,8 m2.
• Húsnæði er laust strax og þarf að innrétta það.
Skrifstofuhúsnæði til leigu á 1. hæð á Hverfisgötu 4, 101 Reykjavík.
Óskum eftir tilboðum, áhugasamir hafi samband við svava@ipstudium.is
Sú umræða er ekki séríslensk að
ómögulegt sé fyrir ungt fólk að eign-
ast húsnæði. Hins vegar hefur slík
umræða verið áberandi hér á landi
undanfarið, en skemmst er að minn-
ast þess írafárs sem varð á dögunum
vegna auglýsingar Íslandsbanka þar
sem bankinn reyndi að fullvissa ungt
fólk um að raunhæft væri að leggja
skipulega til hliðar fyrir afborgun að
fyrstu fasteign. Bankinn hlaut slíka
gagnrýni fyrir að auglýsingastofunni
sem bar ábyrgð á auglýsingunni var
snarlega skipt út.
Auðvitað skal ekki gert lítið úr
því að það er heljarinnar átak fyrir
venjulegt fólk að safna sér fyrir
fyrstu fasteign. Þannig á það líka
að vera. Varla eru sjálfsögð mann-
réttindi að fá afhenta lykla að
þriggja herbergja íbúð á besta stað í
miðborginni á tuttugu og fimm ára
afmælisdaginn. Staðreyndin er líka
sú að fasteignaverð í Reykjavík er
ekki sérlega hátt í alþjóðlegu sam-
hengi, og það jafnvel þótt krónan
hafi sennilega aldrei verið sterkari og
helstu samanburðarmyntir veikst til
samræmis. Fjörutíu milljónir myndu
til dæmis varla duga fyrir bærilegri
fasteign, á bærilegum stað í neinni
af höfuðborgum Norðurlandanna.
Hvað þá þegar litið er enn lengra,
eins og t.d. til Bretlands, þar sem
gjaldmiðillinn er þó í sögulegri krísu.
Við þetta má svo bæta að aðgengi
að lánsfé er auðveldara á Íslandi en
víðast hvar annars staðar. Vissulega
eru kjörin á lánunum slæm. Það
kemur þó ekki í veg fyrir að fólk geti
eignast húsnæði og er raunar önnur
og flóknari umræða um framtíðar
gjaldmiðilsskipan þjóðarinnar.
Hinum megin á hnettinum, í Ástr-
alíu, hefur víst verið hávær umræða
um sama mál – ungt fólk á húsnæðis-
markaði. Ástralski auðkýfingurinn
Tim Gurner lét þá hafa eftir sér að
ungt fólk ætti einfaldlega að sleppa
því að heimsækja hipsterakaffihús
og fá sér mörg þúsund króna avó-
kadóbrauðsneiðar ef það vildi eiga
raunhæfa möguleika á að eignast
fasteign. Auðvitað mun enginn
pólitíkus taka undir með Gurner, en
er þetta ekki hluti vandans?
Það verður ekki bæði sleppt og hald-
ið. Það að koma undir sig fótunum
kostar fórnir. Á meðan er ekki hægt
að láta allt eftir sér, og það þarf alltaf
að gera málamiðlanir. Fyrsta eignin
verður sennilega ekki draumaeignin.
Kannski þarf húsnæðisumræðan á
Íslandi á smá hreinskilni að halda.
Hvar er hinn íslenski Tim Gurner?
Fasteign eða
avókadó-
brauðsneið
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
0
-5
3
2
0
1
C
E
0
-5
1
E
4
1
C
E
0
-5
0
A
8
1
C
E
0
-4
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K