Fréttablaðið - 17.05.2017, Qupperneq 54
STUÐ Í ÚTILEGUNNI
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Áreiðanlegir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir ýmsar
gerðir af ferðatækjum, s.s. hjólhýsi, fellihýsi o.fl.
Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
72
19
4
Exide fæst hjá útibúum Olís um land allt. Sími 515 1100 • pontun@olis.is • olis.is
Kronik Live tónlistar-hátíðin verður haldin í sumar í Laugar-dalshöllinni. Síðan tilkynnt var um við-burðinn í vetur, sem
bandaríski rapparinn Young Thug
kórónar, hefur verið bætt við ein-
valaliði íslenskra rappara og plötu-
snúða. Þar má nefna Úlfur Úlfur,
Gísla Pálma, Sturlu Atlas, Herra
Hnetusmjör, Birni, Alexander Jarl,
B-Ruff, Egil Spegil og Karitas.
„Þetta er svona mini-festival, það
er kannski ekki alveg rétt að kalla
þetta tónlistarhátíð því
að þetta er bara í einn
dag. En þetta er svo
sannarlega rapp-
veisla. Þannig
að allir þessir
listamenn spila
sama kvöldið.
Húsið verður
o p n a ð m j ö g
snemma og það
verður margt sem
er hægt að gera og
borða á svæðinu svo fólk
getur verið þarna allt
kvöldið án þess að
svelta og kafna úr
leiðindum,“ segir
Gauti Þeyr Másson,
eða Emmsjé Gauti,
sem er einn af for-
s v a r s m ö n n u m
þessarar miklu
rapphátíðar.
„Það er náttúru-
lega sturlað „line-up“
á landinu í sumar; það
eru rosalega margir rapp-
arar að koma til landins,
en Young Thug er efstur
á óskalistanum hjá svo
mörgum, þannig að þetta
er alveg einstakt. Svo má ekki
gleyma Krept and Konan en
þeir eru alveg „huge“ í Bret-
landi og ég mæli með að
fólk sem ekki þekkir
til þeirra skoði þá
betur.“
Gauti segir að
þó að þessi listi sé
orðinn ansi lang-
ur þá sé stefnt að
því að bæta fleiri
listamönnum við.
Hann vill þó ekki
fullyrða neitt um
hverjir það verði
en ef útilokunarað-
ferðinni er beitt á
íslensku rappsen-
una ætti kannski
ekki að vera neitt svo
erfitt að koma með
ágætis ágiskanir.
Krept and Konan
London grime rappar-
arnir Krept og Konan eru
ungstirni í grime senunni
bresku. Senan sjálf er nú
ekkert sérstaklega gömul en það er
ekki langt síðan hún fór að dreifast
víðar en um Bretland. Nöfn eins og
Stormzy og Novelist eru oft nefnd
í sömu andrá og Krept og Konan
enda er um upprennandi stjörnur
að ræða sem ættu að eiga greiða leið
á toppinn nú, þegar vinsældir grime
stefnunnar eru í algleymingi.
Gæti orðið góður tími til að sjá
Thugga
Young Thug ættu allir betri rapp-
aðdáendur að þekkja en hann hefur
vakið mikla athygli á síðustu árum
fyrir frumlega nálgun sína að, tja,
nánast bara öllu. Hann hefur bæði
gefið út ógrynnin öll af lögum á
stuttum tíma og síðan skipt yfir í
að vera þögull sem gröfin í langan
tíma. Fyrir örfáum vikum sagðist
hann vera í þann mund að gefa út
eitthvað sem hann kallaði „söng-
plötu“ en ekkert gerðist. Einnig
hefur hann ítrekað talað um að gefa
út sína fyrstu breiðskífu, Hy!£UN35
(eða HiTunes, og já, stafað svona) en
lítið hefur borið á henni. Sitt sýnist
hverjum um Young Thug, en eitt er
víst að hann vekur mikil viðbrögð
með tilvist sinni einni saman – hann
hefur verið kallaður Prince rappsins
(skírskotun í sérstaka hegðun popp-
goðsins sáluga) og gagnrýndur af
helstu menningarvitum Íslands
(Egill Helgason er ekki aðdáandi).
Young Thug, eða Thugga eins og
hann er oft kallaður, gæti verið
á ákveðnum krossgötum á
ferlinum þegar hann mætir
til landsins – mögulega
nýbúinn að gefa út
þessa „söngplötu“ eða
jafnvel farinn að kynna
HiTunes fyrir heims-
byggðinni.
stefanthor@frettabladid.isÞað besta beggja
vegna Atlantshafsins
Útvarpsþátturinn Kronik leggur nafn sitt við hátíðina Kronik Live
sem verður haldin í júlí. Rapparinn Young Thug mun verða aðal-
númerið en nánast öll íslenska rappsenan mun koma við sögu.
Stór sneið íslensku rappsenunnar er hér saman komin í hring. Mynd/EyGló GíSla
Emmsjé Gauti rappari
young Thug hefur verið kallaður
Prince rappsins.
1 7 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð
1
7
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
0
-5
D
0
0
1
C
E
0
-5
B
C
4
1
C
E
0
-5
A
8
8
1
C
E
0
-5
9
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K