Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1972, Blaðsíða 16

Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1972, Blaðsíða 16
- 13 - 11. gr. Frá tekjum skal draga, áður en skattur er á bær lagður: A. Rekstrarkostnað, það er þau gjöld, sem eiga á árinu að ganga til að afla teknanna, tryggjja þær og halda beim við, þar á meðal vexti af skuldum, er beinlínis stafa af atvinnu eða öflun tekna, svo og fyrningu, sbr. 15. gr., aðstöðugjald, landsútsvör og það, sem varið er til tryggingar og nauðsynlegs viðhalds á arðberandi eignum gjaldanda. Til rekstrarkostnaðar telst enn fremur launa- uppbót greidd starfsmönnum og verkamönnum, hvort sem hún er goldin i reiðufé eða hlutabréfum. Með rekstrar- kostnaði telst ekki það, sem gjaldandi hefur varið sér og skylduliði sínu til framfsris og notkunar, eigi heldur kaup handa lionum sjálfum né neinum af skylduliði hans, nema sá telji tekjur sínar fram sér i lagi. Eigi má gjaldandi heldur telja til rekstrarkostnaðar vexti af fé, sem hann hefur sjálfur lagt i atvinnurekstur sinn, né félag eða stofnun vexti af hlutafé, stofnfé t eða trvggingafé, or ekki má færa til gjalda greiðslu fyrir einkaleyfi eöa verzlunarleyfi. B. Tap á útistandandi skuldxun, enda stafi skuldin beinlinis af atvinnurekstri aðila og vitanlegt, að hún sé töpuð. Það árið kemur töpuð skuld til frádráttar, er vitanlegt þykir, að hún sé töpuð. Nú greiðist skuld, er áður var talin töpuð, að einhverju eða öllu leyti, og skal hið greidda bá talið til tekna það ár, sem greiðsla átti sér stað. Tap, sem verður á atvinnurekstri félaga eða ein- staklinga og skattþegn hefur eigi valið að mæta með færslu úr arðjöfnunarsjóði eða varasjóði samkvæmt 9. gr., má flytja milli ára um fimm áramót og draea frá skatt- skyldum tekjiim, þar til það þannig er að fullu jafnaö enda hafi verið gerð fiillnægjandi grein fyrir tapinu á framtali til tekju- og eignarskatts fyrir það ár, þegar tapið varð. Þann hluta rekstrartapa, sem myndazt hefur vegna fyrninga, samkvsmt C-lið 15. gr., og ekki hefur verið jafnaður að fullu samkvæmt 1. málslið, má flytja á milli ára og draga frá skattskyldum tekjum, unz hann er að fullu jafnaður. A sama hátt má flytja á milli ára þann hluta rekstrartapa, sem myudazt hafði til ársloka 1970 vegna fyrninga samkvæmt B-lið 15. gr. laga nr.

x

Tímarit um endurskoðun og reikningshald

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um endurskoðun og reikningshald
https://timarit.is/publication/1257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.