Ráðunautafundur - 11.02.1980, Blaðsíða 37
29
Ein slík hola í nágrenni verksmiðju væri nógu öflug og
gæfi tiltölulega ódýran þurrkara (miðað við 90°C heitt vatn
hins vegar), ef varminn væri nýttur frá t.d. 120°C. Slík hola
er talin geta kostað um 100 m.kr að Hveravöllum (1930). Veniu-
leg óvissa ríkir að sjálfsögðu um árangur og verð.
Verð t.d. 4 km langrar 0 200 mm einangraðrar stálæðar
myndi þ6 verða um 350 m.kr auk borkostnaðar.
Mjög vandlega þyrfti að athuga kost og löst þess, að
staðsetja verksmiðjuna þar sem hægt væri að bora nærri henni
og nýta hið heita vatn, sem mögulega fengist nær Hveravöll\Am.
Þar sem asbestlögn (0 250 mm) er til Húsavíkur og hafið
hefur verið að leggja aðra asbestlögn (0 300 mm) við hlið
hinnar fyrstu, er hitastig vatnsins frá borholunni hleypt
niður í 100°C með opinni suðu, til verndunar rörunum.
Þar gætu farið út í loftið \im 3 miljónir hitaeininga á
hverri klukkustund, eða jafngildi helmings þeirrar varmaorku
er nægði verksmiðjunni1
Frá sjónarmiði þess er nýtir varmann bezt við hátt hita-
stig er þetta afar leitt.
í raun er innrennslishitinn í asbestlögnina að Hvera-
völlwn kallaður 95°C vegna blöndunar við kaldara vatn. En
sjálfsagt er, að láta einskis ófreistað til að auka þennan
hita sem mest. Gera þyrfti tilraunir með það, á hentugum stað,
hvort tæring asbest röra ykist verulega, ef hitinn væri aukinn
í 100°C, 105°C og 110°C.
Nú þegar hafa verið lagðir fyrstu 4 km hinnar nýju 300 mm
lagnar og áætlað að bæta við 2 km á þessu ári. Þegar alls 8 km
hafa verið lagðir af viðbótarlögninni, gætu verið til reiðu um
300 m“/klst (eða 83,3 l/sek) þar sem rætt hefur verið \vn að
reisa Saltvíkurverksmiðjuna, þ.e. á Laxamýrarleitinu. Aðeins
nokkrir tugir metra eru frá stofnæðinni að fyrirhuguðu verk-
smiðjustæði.
Þetta vatn yrði um 90°C heitt á Laxamýrarleiti og yrði
mögulega nýtt í verksmiðjunni niður í 70°C og sent aftur inn
á lögnina á því hitastigi.
Undir venjulegum kringumstæðum teldist slík orkumeðferð
sóun. En aðferðin er fyllilega réttlætanleg, ef vatnið verður
nýtt betur á Húsavík, eða ef um umframvatn er að ræða.