Ráðunautafundur - 13.02.1980, Blaðsíða 41
169
RÁÐUNAUTAFUNDUR 1980
HUGLEIÐINGAR UM NÝJA KJÖTMATIÐ.
Einar E. Gxslason,
Búnaðarsambandi Skagfirðinga.
Nýtt kjötmat tók gildi haustið 1978 og hefur því verið £
notkun í tvö haust. Þar er gert ráð fyrir, 'varðandi gæðamat á
dilkakjöti, að nær allt kjöt, sem áður var í 1. og 2. gæðaflokki,
eða 1. verðflokki, að undanteknum rýrustu skrokkunum úr 2. gæða-
flokki, fari í 1. gæðaflokk og 1. verðflokk. Sú undantekning er
þó, að úrvalið verði merkt með stjörnu, svokallaður stjörnuflokkur,
og það borgað ca. 5% hærra verði en 1. verðflokkur, en of feitt
kjöt, sem áður var í 1. gæðaflokki, verði fellt £ 2. gæðaflokk
og merkt með 0, það verðfellt eða verði með sama verði og rýrt
dilkakjöt, það er 2. gæðaflokkur eftir nýja matinu, en áður var
þetta rýra kjöt að mestu 3. gæðaflokkur.
Læt eg þessar skýringar nægja um kjötmatið. En hefur þetta
nýja kjötmat náð þeim árangri, sem til var ætlast? Þessar
spurningar, ásamt nokkrum öðrum, sem komið hafa fram siðastliðin
tvö haust, mun ég koma inná hér og óska eftir umræðum um þær.
1) I verðlagsgrundvellinum 1978 og 1979 er áætlað, að 1% af
dilkakjötinu fari £ stjörnuflokkinn. En hver er svo niðurstaðan
þessi tvö haust?
2) Á að auka hlutfallið af kjöti £ stjörnuflokknum, t.d. með
þv£ að slá af kröfum um vaxtarlag skrokkanna, en vera samt sem
áður mjög strangir á að halda fituþykktinni eins og tilgreint er
£ reglugerðinni?
3) Er hægt að auka sölu á besta kjötinu úr 1. gæðaflokknum,
þ.e.a.s. stjörnuflokknum, með auknum auglýsingum og kynningu,
þrátt fyrir þennan verðmun sem nú er, og hvernig væri best að
standa að þv£?
4) Hefur framangreind flokkunaraðferð hvetjandi áhrif á
ræktunina? Bera þeir bændur eitthvað úr býtum, sem leggja sig
eftir þessu?
5) Hver hafa verið viðbrögð neytenda við kjöti £ stjörnuflokki
s£ðan hann kom á markaðinn haustið 1978?