Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 12.–14. apríl 2016 Kynningarblað - Brúðkaup 5 „Ekki mörg fyrirtæki sem hafa haldið fleiri brúðkaupsveislur en við“ V eislumiðstöðin hefur verið í rekstri frá árinu 1976 og þar hafa starfað þrjár kynslóðir veitinga­ manna í beinan karllegg. Því býr fyrirtækið samanlagt yfir 100 ára starfsreynslu í veisluhaldi, meðal annars við brúðkaups­ veislur. Í Veislumiðstöðinni sam­ einast annars veg rík hefð og reynsla og hins vegar nútímaleg, persónuleg þjónusta. Veislumið­ stöðin er staðsett í gömlu Rúg­ brauðsgerðinni við Borgartún: „Þetta er eitt af þessum fáu sjarmerandi iðnaðarhúsum sem eru eftir miðsvæðis í borginni enda er þetta fyrrverandi iðnaðarhverfi. Það eru ekki eftir margir góðir veislusalir fyrir brúðkaup hérna miðsvæðis og það ef eflaust ein af ástæðunum fyrir vinsældum okk­ ar,“ segir Ámundi Johansen, rekstr­ arstjóri Veislumiðstöðvarinnar, en faðir hans, Carl Jónas Johansen, og afi, Sveinn Valtýsson, reka fyrirtæk­ ið með honum. Í húsinu eru þrír glæsilegir veislusalir sem henta fyrir brúð­ kaup. Á efstu hæðinni, fjórðu hæð, eru Sólarsalur, sem tekur um 250 manns í sæti, og Mánasalur, sem tekur um 80 manns. Úr báðum sölum er frábært útsýni yfir Faxa­ flóa og Esjuna. Gluggarnir í Sólar­ salnum þykja mjög heillandi en þeir eru í laginu eins og kýrauga. Á jarðhæð er síðan Stjörnusalur sem tekur um 150 manns. Þar heill­ ar mjög gesti glæsileg og tignarleg kristalsljósakróna í loftinu. Að sögn Ámunda kappkostar Veislumiðstöðin að veita persónu­ lega þjónustu og uppfylla óskir við­ skiptavina: „Matarvenjur fólks hafa breyst, áhugi fólks á matreiðslu hefur auk­ ist og það reynir oft sjálft að stýra og koma með hugmyndir að mat. Þá gerum við okkur alltaf far um að uppfylla óskir þess. Hér áður fyrr var það bara seðill eitt, tvö og þrjú og fólk borðaði það sem var fyrir framan það. Veitingamenn réðu því meira áður hvað fólk fékk að borða en nú hefur fólk miklu ákveðnari hugmyndir um hvað það vill hafa í matinn í sinni veislu.“ Að sjálfsögðu teflir Veitingamið­ stöðin líka fram sínum hugmynd­ um við þau brúðhjón sem eftir því sækjast: „Við mælum gjarnan með því í léttari brúðkaupum, þar sem til dæmis ungt fólk er að gifta sig, að bera forréttinn yfir og hafa síðan flott steikarborð í aðalrétt. Það gerir veisluna léttari þegar fólk stendur upp, blandar geði við gesti við önn­ ur borð, fær sér aftur á diskinn og þess háttar. Það verður miklu léttari stemning en við sitjandi borðhald yfir fjóra tíma. Brúðkaup eru til að tengja saman tvær fjölskyldur og tvo vinahópa og því er þessi sam­ gangur í veislunni mikilvægur. Ef fólk nær sér í matinn sjálft eykur það samgang, kynni og samræður,“ segir Ámundi. Steikarhlaðborðið vinsælt Að sögn Ámunda er steikarhlað­ borðið líklega vinsælasti kosturinn í brúðkaupsveislum: „Við erum líka með sjávarrétta­ hlaðborð og ýmislegt annað í boði. En á steikarhlaðborði hittir fólk matreiðslumanninn sem er að skera, hann spjallar og veitir gagn­ legar upplýsingar. Það getur líka komið sér vel ef fólk með sérþarfir er í veislunni, sumir eru til dæmis með glútenóþol eða mjólkuróþol, ofnæmi fyrir möndlum og hinu og þessu. Þessi tenging við eldhúsið og manninn sem er að gefa þér að borða er bæði heppileg og ánægju­ leg. Allt uppi á borðinu, eins og maður segir.“ n Veislumiðstöðin Borgartúni 6, 105 Reykjavík Sími: 512 0102 Netfang: panta@veislumidstodin.is Heillandi veislusalir í Rúgbrauðsgerðinni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.