Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Qupperneq 10
Helgarblað 9.–12. desember 201610 Fréttir
„Óeðlilega“ fáar nýrnaígræðslur í ár, segir Sahlgrenska
É
g á ekki von á öðru en að
ígræðslum muni fjölga veru-
lega. Annað er ekki ásættan-
legt fyrir okkur,“ segir Runólfur
Pálsson, yfirlæknir nýrnalækn-
inga og umsjónarmaður líffæra-
ígræðsluteymis Landspítalans, sem í
síðustu viku fundaði með fulltrúum
Sahlgrenska-háskólasjúkrahússins í
Gautaborg.
Tilefni fundarins var að leita skýr-
inga á því hruni sem varð á nýra-
ígræðslum í íslenska sjúklinga á ár-
inu 2016, samanborið við önnur ár,
sem DV greindi frá í síðasta mánuði.
Aðeins ein í ár
Þar kom fram að aðeins ein nýra-
ígræðsla hafi verið gerð á Íslendingi
í gegnum norrænt samstarf um líf-
færagjafir, samanborið við átta árið
áður. Ígræðslan eina kom í þokkabót
ekki fyrr en í byrjun nóvember. Um
er að ræða samstarf undir merkjum
ígræðslustofnunarinnar Scandia-
transplant sem starfrækir líffæra-
banka. Líffæri sem Íslendingar gefa
fara í bankann og
ígræðsla fer oftast
fram á Sahlgrenska-
háskólasjúkrahús-
inu í Svíþjóð, sem er
samstarfssjúkrahús
verkefnisins. Ísland
hefur verið aðili að
þessu samstarfi frá
árinu 2010.
Að meðaltali hafa
íslenskir nýrnasjúk-
lingar verið að fá um
5–6 ígræðslur á ári
í gegnum þetta ver-
kefni en árið 2016
var afar slæmt. Svo
slæmt að Íslendingar
óskuðu eftir fundi til
að fara yfir stöðuna sem álitin var
alvarleg.
Óeðlilega fáar aðgerðir
„Við áttum ágætan fund með full-
trúum Sahlgrenska-háskóla-
sjúkrahússins í síðustu viku. Farið
var ítarlega yfir þetta mál og ýmsa
aðra þætti samstarfsins. Aðilar voru
sammála um að nýraígræðslur í ís-
lenska sjúklinga hefðu verið óeðli-
lega fáar síðastliðið ár, ekki síst með
hliðsjón af miklum fjölda líffæra-
gjafa héðan, og það væri óviðun-
andi ástand sem þyrfti að leiðrétta
hið fyrsta,“ segir Runólfur. Hann
ítrekar þó að aðgengi íslenskra sjúk-
linga að ígræðslum annarra líffæra
hafi verið ágætt.
Ekki meðvituð ákvörðun
Samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk í síðasta mánuði eru nú 12 ís-
lenskir nýrnasjúklingar á formlegum
biðlista eftir ígræðslu. Fleiri eru síð-
an á undirbúnings-
stigi. Aðspurður
hvort íslenskir
nýrnasjúklingar á
biðlista megi nú, í
kjölfar fundarins og
þeirrar staðreynd-
ar að menn voru
sammála um að
ástandið hafi verið
óviðunandi, búast
við fleiri ígræðslum
á næstunni segir
Runólfur að hann
eigi ekki von á öðru.
Einn tilgang-
ur fundarins var
að leita skýringa á
þessu hruni en að-
spurður hvort slíkar skýringar hafi
fengist segir Runólfur:
„Engin ákveðin skýring og ekk-
ert sem bendir til að þetta hafi verið
meðvituð ákvörðun af þeirra hálfu.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Býst við úrbótum
Runólfur Pálsson, yfirlæknir
nýrnalækninga á Landspítal-
anum, segir að allir hafi verið
sammála um að ástandið
hefði verið óviðunandi og að
það yrði að leiðrétta stax.
Óeðlilegt væri hversu fáar
nýrnaígræðslur Íslendingar
hefðu fengið í ár.
Mynd Sigtryggur Ari
„Aðilar voru sam-
mála um að nýra-
ígræðslur í íslenska sjúk-
linga hefðu verið óeðlilega
fáar síðastliðið ár.
15. nóvember 2016
Kennarar í fæðingarorlofi
munu ekki fá eingreiðslu
G
runnskólakennarar sem
verið hafa í fæðingarorlofi
munu ekki fá 200 þúsund
króna eingreiðslu sem
kveðið er á um í nýjum
kjarasamningi þeirra sem undir-
ritaður var 29. nóvember síðast-
liðinn. Atkvæðagreiðsla stendur
nú yfir um samninginn og hafa
kennarar víða um land því verið
að fara nánar í saumana á því sem
liggur á borðinu. Eitt þeirra atriða
sem kennarar sem eru og hafa
verið í fæðingarorlofi undanfarna
mánuði ráku augun í er að þeir
munu ekki fá tiltekna eingreiðslu
sem aðrir fá, og kveðið er á um í
samningnum.
DV leitaði skýringa á þessu
enda ljóst að kennurum í orlofi
þykir þetta frekar súrt í brotið.
Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lags grunnskólakennara, segir að
ekki sé um einsdæmi að ræða í
kjarasamningum kennara, svona
sé þetta almennt séð í kjarasamn-
ingum. Eingreiðslur sem þessar
eigi ekki við um fólk í fæðingar-
orlofi. Um sé að ræða eingreiðslu
til að mæta samningsleysi sem í
tilfelli grunnskólakennara var frá
júní fram í desember og um sé að
ræða um 200 þúsund krónur. Mis-
jafnt geti þó verið eftir sveitarfé-
lögum, hvort kennarar í fæðingar-
orlofi verði af þessum greiðslum.
Sum sveitarfélög hafa greitt
þetta út
„Ég veit að sum sveitarfélög hafa
borgað þetta. Við erum að kanna
hvernig þetta er hjá sveitarfélög-
um. Það er engin regla á því og mér
er ekki kunnugt um hvernig það er.“
Einstaklingar í fæðingarorlofi
þiggja greiðslur úr fæðingaror-
lofssjóði og fá því skiljanlega að-
eins hækkunina sem um er samið
hverju sinni eftir að þeir snúa aftur
til starfa. Það fer því eins með ein-
greiðsluna, sem ætlað er að mæta
samningsleysinu, og launagreiðsl-
ur á meðan fólk er í fæðingarorlofi.
Ólafur segir skiljanlegt að fólki í
fæðingarorlofi finnist þetta fúlt.
Rafræn atkvæðagreiðsla um
kjarasamning grunnskólakennara
hófst á mánudag og stendur til 12.
desember næstkomandi.
Margir sagt upp
Kjarabarátta grunnskólakennara
hefur verið afar hörð. Fjölmargir
kennarar hafa sagt upp störfum og
fleiri bættust við eftir að nýr kjara-
samningur var kynntur. Til að
mynda sagði þriðjungur kennara
við Réttarholtsskóla upp störf-
um degi eftir að samningurinn
var undirritaður, enda ekki nógu
ánægðir með þær kjarabætur sem
þar var boðið upp á. Ekki er því
útilokað að kennarar komi til með
að fella hinn nýja samning. n
n Verða af 200 þúsundum króna n Ætlað að mæta samningsleysi
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Ekki á launaskrá Kennarar í fæðingarorlofi fá ekki 200 þúsund króna eingreiðslu sem
ætlað er að mæta samningsleysi kennara frá júní til desember. Sum sveitarfélög hafa þó í
gegnum tíðina greitt þeim slíka eingreiðslu.
Ólafur Loftsson Formaður Félags
grunnskólakennara segist skilja að ein-
hverjum þyki þetta fúlt.
„Ég veit að sum
sveitarfélög hafa
borgað þetta.
„ÓViðunandi
ástand“
Gleraugnaverslunin Eyesland opnar nýja og glæsilega verslun á
Grandagarði 13. Mikið úrval af góðum gleraugum á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónstu.
Opnum augun
á nýjum stað!
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Ray Ban umgjörð kr. 24.890,-