Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 16
Helgarblað 9.–12. desember 201616 Fréttir Erlent
Bílahitari
Við einföldum líf bíleigandans
Termini 1700 bílahitarinn er tilvalin lausn. Hann er lítill og nettur
og auðvelt að koma honum fyrir t.d. undir mælaborði bílsins.
Allur tengibúnaður fylgir ásamt tímarofa sem ræsir hitarann t.d.
klukkutíma áður en þú leggur af stað.
Verð kr. 39.000
Væri ekki dásamlegt að sleppa við að skafa glugga og geta sest inn í
heitan og notalegan bílinn á köldum vetrarmorgni?
Láttu verkstæðið sjá um ísetninguna.
Verð frá kr. 49.900 með ísetningu.
11.0
52
Glæpamaður
oG fórnarlamb?
n Dominic Ongwen fyrir dómi í Haag n Var hægri hönd Joseph Kony
R
éttarhöld yfir Úgandamann-
inum Dominic Ongwen
hófust hjá Stríðsglæpadóm-
stólnum í Haag í vikunni.
Málið markar ákveðin tíma-
mót því Ongwen er fyrsti meðlimur
Andspyrnuhers drottins (e. Lord‘s
Resistance Army; LRA) sem leidd-
ur er fyrir dómstólinn. Ongwen var
háttsettur innan skæruliðahreyf-
ingarinnar og hægri hönd leiðtogans
Josephs Kony.
Stríðsglæpir
Hreyfingin er talin bera ábyrgð á
dauða um hundrað þúsund manns
í Úganda og nágrannaríkjum á
undanförnum 30 árum og ránum á
um 60 þúsund börnum á sama tíma
sem mörg hver voru gerð að barna-
hermönnum. Ongwen er ákærður
fyrir stríðsglæpi, glæpi gegn mann-
kyni, þar á meðal morð, mannrán og
þrældóm. Alvarlegustu ákæruliðirnir
varða árásir og morð á flóttamanna-
bækistöðvar árin 2004 og 2005. Á
þriðjudag var málið tekið fyrir hjá
Stríðsglæpadómstólnum og ákæran
gegn honum lesin upp. Ongwen,
sem neitar sök, á yfir höfði sér lífs-
tíðarfangelsi en sjálf réttarhöldin
byrja í janúar næstkomandi.
Var sjálfur numinn á brott
Mannréttindasamtök hafa fagnað
ákærunni gegn honum, þeirra
á meðal er Mannréttindavakt-
in, Human Rights Watch. En mál-
ið hefur einnig vakið upp ákveðn-
ar spurningar þar sem Ongwen var
sjálfur fórnarlamb LRA á sínum tíma.
Talið er að hann hafi verið níu ára
gamall þegar liðsmenn Andspyrnu-
hersins rændu honum og þjálf-
uðu hann til að gegna hermennsku.
„Margir þessara meðlima LRA, sem
eru álitnir vondir eða slæmir, voru
sjálfir fórnarlömb fyrir það fyrsta.
Þannig að þetta er erfitt viðfangsefni
sem veltir upp mörgum spurning-
um,“ sagði Ledio Cakaj í samtali við
breska blaðið The Guard ian í vik-
unni, en Ledio er höfundur bókar-
innar When the Walking Defeats You
sem byggir á æviminningum fyrrver-
andi lífvarðar Josephs Kony.
Vann sig upp metorðastigann
Í umfjöllun The Guardian kom einnig
fram að verjendur Ongwens muni
nota þessa staðreynd í málsvörn
sinni og benda á að engar óyggjandi
sannanir séu fyrir þeim voðaverkum
sem ákæruliðirnir byggja á. Thomas
Obhof, bandarískur lögfræðingur sem
er í lögmannateymi Ongwens, sagði
við The Guardian í vikunni að skjól-
stæðingur sinn hefði sjálfur þurft að
sæta pyntingum þegar hann var barn.
„Hann var neyddur til að horfa upp
á morð og var skikkaður til að gerast
hermaður. Saksóknarar munu á móti
benda á að tryggð hans við LRA hafi
orðið til þess að hann vann sig fljótt
upp metorðastigann og varð einn
valdamesti maður hreyfingarinnar.
Þó að enginn efist um ódæðisverk
skæruliðahreyfingarinnar í Afríku
eru sumir sem hafa kallað eftir því að
meðlimum samtakanna, sem horfið
hafa af braut glæpa, verði fyrirgefið.
„Ég vil að Ongwen verði fyrirgefið, al-
veg eins og sumum okkar hefur verið
fyrirgefið,“ segir Dominic Ecodu
sem var liðsmaður Andspyrnuhers
drottins í tíu ár. Hann var sjálfur
numinn á brott af liðsmönnum sam-
takanna þegar hann var sjö ára.
Kony ófundinn
Samtökin alræmdu eru sem fyrr
segir talin bera ábyrgð á dauða um
hundrað þúsund einstaklinga. Þau
stóðu í skæruhernaði í fimm lönd-
um í austur- og miðhluta Afríku; Úg-
anda, Suður-Súdan, Mið-Afríkulýð-
veldinu, Lýðveldinu Kongó og Tsjad,
í um 30 ár þar sem pyntingum, lim-
lestingum og nauðgunum var óspart
beitt. Talið er að LRA samanstandi í
dag af aðeins um hundrað meðlim-
um og er leiðtogi samtakanna, Jos-
eph Kony, þar á meðal. Árið 2005 var
lýst eftir fimm háttsettum meðlim-
um LRA og af þeim eru aðeins Kony
og Ongwen á lífi. Þrátt fyrir að fimm
milljónir Bandaríkjadala hafi verið
lagðar til höfuðs Kony er hann enn
ófundinn. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Gengur enn laus Leiðtogi LRA, Joseph Kony, gengur enn laus þrátt fyrir að fimm milljónir
dala hafi verið lagðar til höfuðs honum.
Fyrir dómi Dominic
Ongwen er nú fyrir dómi
í Haag sakaður um
stríðsglæpi og glæpi
gegn mannkyni. Mynd EPA
Glímudrottning í
starfsliði Trumps
Donald Trump, verðandi Banda-
ríkjaforseti, heldur áfram að
skipa í embætti í kringum sig
áður en hann tekur við í janúar
næstkomandi. Nýjasta skipan
hans hefur vakið athygli en hún
sneri að því að ráða í stöðu yfir-
manns SBA (e. Small Business
Administration) sem er sjálfstæð
stofnun bandarísku ríkisstjórnar-
innar sem tryggir hagsmuni smá-
fyrirtækja.
Það var athafnakonan Linda
McMahon sem hlaut útnefn-
inguna en hún er hvað þekktust
fyrir að stofna og stýra fjölbragða-
glímuveldinu WWE ásamt eigin-
manni sínum, Vince McMahon.
Hjónin voru miklir stuðnings-
menn Trumps og gáfu hátt í sex
milljónir dala til kosningabaráttu
hans, í gegnum svokallaða Super
Pac-sjóði. Linda hefur í tvígang
boðið sig fram til öldungadeildar-
þingmennsku fyrir Repúblikana-
flokkinn, 2010 og 2012, en ekki
haft erindi sem erfiði. Á Twitter-
síðu sinni segir hún það mikinn
heiður að fá útnefninguna.
Trump þekkir vel til
McMahon-hjónanna en sjálfur
hefur hann komið fram í glímu-
viðburðum WWE og gott betur
því hann var tekinn inn í frægðar-
höll sambandsins á sínum tíma,
þar sem hann situr á stalli með
Hulk Hogan og fleiri köppum.
Linda McMahon