Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Síða 18
Helgarblað 9.–12. desember 201618 Umræða MagnesíuM Kísill Hin fullkomna tvenna fyrir Heilsu og fegurð Óháðir menn n Og bæjarins verstu og jafnaðarmennska É g var beðinn um að koma um daginn á aðventustund í kirkju Óháða safnaðarins á horni Stakkahlíðar og Há- teigsvegar, en þaðan á ég góðar barnsminningar, bæði frá Sunnudagaskóla með séra Emil Björnssyni og frá leikskólaárum í austurkjallara sömu byggingar. Nú er þar prestur gamall kunn- ingi frá háskólaárum, séra Pétur Þorsteinsson, mörgum vel kunnur fyrir frumlegt orðaglens, svo að ég kom þar með ánægju á sunnudags- kvöldi og heyrði meðal annars hinn afbragðsfína Gradualekór syngja metnaðarfulla dagskrá. Ég hafði frjálsar hendur með mitt erindi, þó hafði þess verið getið að gaman væri að heyra eitt- hvað minnst á jólagjafir, svo ég hóf spjallið á að vera svo hégómlegur að lesa upp úr eigin bók, reyndar gamalli, eða Gulleyjunni, sem er hálfur grunnurinn undir sýningu Þjóðleikhússins sem nú er í gangi, þ.e.a.s. söngleiknum Djöflaeyjunni, en þar segir meðal annars: „Í Gamla húsinu voru jólin tekin alvarlega. Tommi vann ekki, Lína spáði hvorki í spil né bolla, Baddi drakk ekki, Dollí lét Danna í friði. Einu verkin sem unnin voru fyrir utan þrifaböðin, ef þeim varð við- komið (yfirleitt var botnfrosið í baðkarinu úti í vaskahúsi á þessum árstíma) voru góðverkin. Góðverkin: Þegar búið var að skreyta húsið svo að veggirnir voru orðnir eins og kóralrif var af- gangsskrautið gefið fátæka fólk- inu í bröggunum allt í kring. Prúð- búin sendinefnd skundaði hlaðin gjöfum um hverfið. Drykkfelldri ekkju sem aldrei hafði keypt jóla- tré afhenti Baddi tveggja feta háan jólatréstopp. Öðru heimili þar sem húsbóndinn hafði drukkið út sparisjóðinn sem konan önglaði saman fyrir jólamatnum gaf Dollí borðskreytingu sem traustustu eikar borð hefðu svignað undan. Gréta litla, kona Hreggviðs kúlu- varpara, fékk dyrakrans með fæðingunni í Betlehem. Krossinn var negldur á krossviðarplötu sem skorðuð hafði verið fyrir dyrunum í stað hurðarinnar sem húsbóndinn molaði í drykkjuæði nokkrum dög- um fyrr. Sæunn kattakelling fékk mistilteina.“ Tvíburarnir – Bæjarins verstu Eftir að hafa ákveðið að lesa þetta, þar sem vandræði fólks í bröggum eru skoðuð í aðeins kómísku ljósi hefðbundinnar þriðjupersónu-frá- sagnar varð mér hugsað til manns sem hafði samband við mig löngu eftir að Gulleyjan og þær bækur komu út, því hann hafði áhuga á að bera undir mig sína sögu. Höfund- ar fá oft þannig tilmæli, og maður hefur svona varann á sér með að fara að eyða tíma í erindisleysu, en sá sem sneri sér til mín í þetta sinn talaði þannig að það vakti áhuga minn. Við hittumst yfir kaffi og hann sagði mér fyrst að hann hefði lesið Djöflaeyjutrílógíuna um Thulekampinn og að hann hafi þekkt umhverfið og tímabilið og frásagnarefnið; jafnvel fyrirmyndir að persónum. Og að sjálfur hafi hann alist upp á svipuðum slóðum. Sagan hans reyndist mögnuð: hann fæddist árið 1946, eitthvað tæpum níu mánuðum eftir að megnið af ameríska setuliðinu kvaddi Ísland í stríðslok, meðal annars faðir hans. Þá var móðir þess sem sagði mér frá, ung reglu- söm verkakona, ólétt af tvíburum; viðmælanda mínum og bróður hans. Móðirin var með lasna móður sína á framfæri og eignaðist svo drengina sína. Hún bjó við þannig kjör að húsnæðið sem hún réð við var lekur gamall kofakjallari vest- ur í bæ, við hlið Camp Knox. Þar var hvorki heitt rennandi vatn né miðstöðvarkynding, bara kolaofn við einn vegginn og svo úti kamar, sem fauk um koll í hvassviðrum. Og húsnæðið lak þannig að í rign- ingum þurfti að dreifa krukkum og fötum og koppum um öll gólf til að taka við vatninu. Móðirin sinnti þó drengjunum og þeir komu læsir og bráðgerir í Melaskóla þegar þeir höfðu aldur til, og voru settir beint í besta bekkinn. Þeir höfðu enn ekki gert sér grein fyrir að þeir væru eitthvað öðruvísi, og líkaði vel við skólafélaga – buðu meira að segja einhverjum heim. Bekkjar- bræður komu í heimsókn einn rigningardaganna þegar vaska- fötunum hafði verið dreift undir lekann. Og gestkomandi drengirnir urðu furðu lostnir, og flúðu svo er þeir þurftu að komast á klósett, og var bent á hrörlegan útikamar- inn. Tvíburadrengirnir skildu síðan hvað bekkjarfélögunum hafði þótt skrýtið við þeirra heimilisaðstæður þegar þeir fengu svo að sjá heim- ili hinna, í höllunum við Ægissíð- una og þar í kring. Að auki var hleg- ið að því í besta bekknum í Meló að tvíburarnir vissu ekki hvað pabbi þeirra héti; hann mun hafa heitið annaðhvort William að fornafni eða Williams að eftirnafni – frekari upplýsingar voru ekki um hann. Tvíburarnir skildu líka fljótt að þeir tilheyrðu ekki heimi hinna barnanna og myndu aldrei verða samþykktir í þeirra hóp; fóru að vanrækja skólann og sækja félagsskap annað, fullir mótþróa og beiskju auðvitað, og í stuttu máli lá leið þeirra fljótt niður á við. Strax á unglingsárum var það drykkja, læknadóp, innbrot og smáglæpir, og svo ævi með æ meiri drykkju, útskúfun og örvæntingu. Það var semsé annar þessara bræðra sem hafði samband við mig, þá hátt á sextugsaldri, og bú- inn loksins að bíta af sér neysluna. Ég fann fljótt að þessi maður – Hreinn Vilhjálmsson – myndi sjálfur geta skrifað, og það gerði hann; „skálduð ævisaga“ hans kom út 2005 hjá Máli og menningu undir titlinum „Bæjarins verstu.“ Mér var sýndur sá heiður að fá eftir mig tilvitnun á kápunni þar sem meðal annars stendur: „Hann óð gegnum fjóshaug mannlífsins en sagan hans glitrar eins og perla.“ „Stimplaði sig út“ Þess má geta að tvíburabróðir Hreins hét Leifur. Hann reyndi líka Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja Saga Alþýðuflokksins „Þetta er sagan um baráttu fátækrar alþýðu fyrir því að geta lifað mannsæmandi lífi.“ „Og gestkomandi drengirnir urðu furðu lostnir, og flúðu svo er þeir þurftu að komast á klósett, og var bent á hrörlegan útikamarinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.