Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 19
Helgarblað 9.–12. desember 2016 Umræða 19
Náttúrulegar
hágæða
gæludýravörur
að losa sig úr sínum viðjum, hætti
um hríð í víni og dópi og fór meðal
annars í Myndlistarskólann hér
heima. En tókst ekki að komast úr
vítinu; fyrirfór sér, eða „stimplaði
sig út“ eins og Hreinn Vilhjálmsson
bróðir hans orðaði það. Seinna hitti
ég Tolla listmálara sem sagði mér
að þeir Leifur hefðu verið um hríð
samtíða í myndlistarnámi, og að
Leifur, þá orðinn fullorðinn mað-
ur, hefði verið með einna mestan
talent skólasystkinanna.
Því er ég að rifja upp örlög
þessara bræðra að maður hugsar
með hrolli til þess hversu skammt
er um liðið frá því misskipting var
slík í okkar þjóðfélagi að ungum
efnilegum börnum eins og þessum
bræðrum stóð í raun ekkert nema
eymd og útskúfun til boða, þeir
fengu í rauninni aldrei tækifæri.
Tveimur hæfileikaríkum krökk-
um var í rauninni kastað á fjós-
hauginn í barnæsku, vegna órétt-
lætis í samfélaginu og bágra kjara
móðurinnar. Og með það í huga
hef ég verið að lesa nýútkomið
stórvirki Guðjóns Friðrikssonar „Úr
fjötrum“ og fjallar um sögu Alþýðu-
flokksins, sem hófst 1916, fyrir rétt-
um hundrað árum.
Jöfnuður í samfélagi manna
Nú er mikið í tísku að segja að
sósíal demókratismi sé úreltur, það
hlakka margir yfir dvínandi fylgi
þeirra flokka sem slíkt aðhyllast,
ekki síst í okkar heimshluta, og við
Íslendingar þekkjum þetta svos-
em vel; hreyfing jafnaðarmanna
næstum þurrkaðist út í síðustu
kosningum. En ég hef verið að lesa
áðurnefnda bók Guðjóns Friðriks-
sonar, hún hefur auðvitað Alþýðu-
flokkinn gamla í miðpunkti en fylgir
að sjálfsögðu hreyfingunni, hvert
sem hún klofnar og undir hvaða
nöfnum sem hún birtist í lengri eða
skemmri tíma: þetta er sagan um
baráttu fátækrar alþýðu fyrir því
að geta lifað mannsæmandi lífi, að
alþýðubörn geti notið viðunandi
húsnæðis, menntunar og þroska,
og þurfi ekki að eyða ævinni á botni
samfélagsins. Og það er hrollvekj-
andi til þess að hugsa hvernig þjóð-
félagið væri ef jafnaðarmenn og
verkalýðshreyfing hefði ekki barist
fyrir þeim umbótum sem orðið
hafa. Það mætti byrja á vökulögun-
um frá þriðja áratugnum, og svo
áfram: verkamannabústöðunum,
alþýðutryggingum og seinna al-
mannatryggingum, lög um stéttar-
félög og vinnudeilur sem tryggðu
samningsrétt vinnandi fólks um
kaup og kjör; lög um jöfn laun kynj-
anna, lánasjóð námsmanna, tón-
listarnám sem öllum stæði til boða
og þannig mætti áfram telja; það
var fyrir baráttu sósíalista sem tókst
að uppræta fátækrahverfi af því
tagi sem tvíburarnir sem hér hefur
verið sagt frá þurftu að alast upp í.
Fólk ætti að velta fyrir sér þeim
æpandi mun sem er á samfélögum
í okkar heimshluta þar sem jafn-
aðarmenn hafa haft veruleg áhrif,
og svo hinum. Jafnaðarmenn hafa
aldrei ráðið neinu í Rússlandi, eftir
fall kommúnismans tóku ólígark-
arnir yfir þjóðarauðinn og sólunda
honum í þotulíf sjálfs sín um allan
heim. Í Bandaríkjunum er sósíal-
ismi bannorð, og sagt var að þegar
Bernie Sanders kenndi sig við þá
stefnu hafi orðið útséð um að hann
gæti orðið forseti; í staðinn fengu
þeir Trump sem ætlar strax í janúar
að hefja vinnu við að leggja niður
hið svokallaða „Obamacare“ sem
er vottur af því kerfi sem við þekkj-
um í kratískari Evrópu og á að gefa
fátæku fólki rétt til lífs og heilsu þótt
það veikist eða slasist.
Ég held við viljum ekki banda-
rískt kerfi í okkar landi; það var
þannig snemma á síðustu öld, en
breyttist vegna baráttu alþýðunnar,
þrátt fyrir oft hatramma andstöðu
hinna betur megandi. Fólk þarf að
kynna sér þessa sögu; lesa bæði
„Bæjarins verstu“ og hina nýju „Úr
fjötrum – saga Alþýðuflokksins“. n
Bernie Sanders „Í Bandaríkjunum er sósíalismi bannorð, og sagt var að þegar Bernie Sanders kenndi sig við þá stefnu hafi orðið útséð um
að hann gæti orðið forseti.“
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn
„Því er ég að rifja
upp örlög þessara
bræðra að maður hugsar
með hrolli til þess hversu
skammt er um liðið frá
því misskipting var slík í
okkar þjóðfélagi að ung-
um efnilegum börnum
eins og þessum bræðrum
stóð í raun ekkert nema
eymd og útskúfun til
boða.
Bæjarins verstu „Hann óð gegnum fjóshaug mannlífsins en sagan hans glitrar eins og perla.“