Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Side 27
Fólk Viðtal 23Helgarblað 9.–12. desember 2016
Út í ystu myrkur framtíðar
í dag. En það má þó segja að Augu
þín sáu mig sé sú skáldsaga sem kom
mér á sporið, þar fann ég mína rödd
og aðferðir sem höfundur. Mér finnst
ég í raun ennþá vera að vinna sem sá
höfundur sem varð til í þeirri bók, þar
er ég að vinna með brotakennda frá-
sögn, ólík tilveru- og vitundarsvið,
heim þar sem bókmenntatexti, trúar-
leg reynsla, reynsla af raunverulegu
lífi lifir allt hlið við hlið,“ segir Sjón og
segist yfirleitt ekki skammast sín fyrir
eldri verk sín.
„Þegar ég er að skrifa er ég mjög
sjálfsgagnrýninn og einmitt vegna
þess hvað ég beiti mig hörðu á ritun-
artímanum er ég ekkert að refsa mér
ef smekkur minn hefur breyst ein-
hverjum árum síðar. Ég hef því alltaf
verið sáttur við verkin sem ég hef gef-
ið út áður. Ég get meira að segja lesið
ljóð úr fyrstu bókunum mínum, sem
komu út þegar ég var 16 og 17 ára, án
þess að roðna,“ segir hann og ítrekar
að eflaust muni honum finnast nýja
bókin enn góð eftir hundrað ár.
Tölvuleikir ögra hinni aristótel-
ísku frásagnarbyggingu
Sjón leggur áherslu á hversu lífs-
nauðsynleg tilraunamennskan er
fyrir bókmenntirnar, það skipti miklu
máli fyrir framtíð skáldsögunnar að
reyna stöðugt á þolmörk formsins.
„Í hverri bók reyni ég að takast á
við eitthvað nýtt. Í þessari bók var ég
að vinna með mjög brotakennda frá-
sögn, láta á það reyna hversu brota-
kennd hún getur mögulega ver-
ið, hversu miklu ég get sleppt og
hversu stór stökk ég get tekið. Þetta
skiptir mig miklu máli bæði þegar
ég skrifa og þegar ég les fagurbók-
menntir. Ég vil að hver einasta ný
skáldsaga sé rannsókn á því hvað
skáldsagan getur gert og hvað hún
getur verið. Þegar við leggjumst í þá
rannsóknarvinnu þá erum við líka
að leita að því sem gerir skáldsöguna
að einstöku listformi,“ segir hann og
bætir við að skáldsagan þurfi stöðugt
að enduruppgötva tilgang sinn.
„Nú eru þessar miklu sjónvarps-
seríur til dæmis að leysa af hólmi
þörf fólks fyrir epík og langar frá-
sagnir. Hvað gerir skáldsagan þá?
Skáldsagan getur gert ótal margt
sem verður aldrei mögulegt í kvik-
mynd og sjónvarp, og ef þessir hlutir
verða mögulegir þá snýr hún sér
„Það var alltaf
draumur minn að
skila af mér svona sér-
stöku verki, enda varð
ég sem ungur höfundur
fyrir miklum áhrifum frá
helstu tilraunamönnum
bókmenntanna.