Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Side 32
Helgarblað 9.–12. desember 201628 Sport Hátt verð er ekki ávísun á velgengni n Kaup á átta dýrustu leikmönnum sumarsins gerð upp n Sadio Mané hefur staðið sig best Á tta dýrustu leikmenn sum- arsins í ensku úrvalsdeildinni kostuðu samtals 350,5 millj- ónir punda, eða 49,4 millj- arða króna. Nú þegar stutt er í jólatörnina á Englandi og nýja- brumið, ef svo má segja, er farið af nýju mönnunum er ekki úr vegi að leggja mat á hvort þeir dýrustu hafi staðið undir væntingum það sem af er tímabili. DV skoðaði dýrustu leikmenn sumarsins og lagði mat á frammistöðu þeirra í vetur með því að gefa þeim einkunn á skalanum 0 til 10. Nokkrir þessara leikmanna eru enn ungir að árum og er eftir fremsta megni reynt að taka tillit til þess. n Paul Pogba Félag: Manchester United Keyptur frá: Juventus Kaupverð: 93,25 milljónir punda Einkunn: 6,5 n Það efast fáir um að Paul Pogba sé frábær knattspyrnumaður. Fleiri efast þó um að hann standi undir því að vera dýrasti knattspyrnumaður heims en tíminn mun leiða það í ljós. Ef marka má tölfræðivefinn whoscored.com hefur Pogba verið besti leikmaður United á tímabilinu með meðaleinkunnina 7,59. Tvö mörk og ein stoðsending í þrettán leikjum í úrvalsdeildinni er þó ekkert til að hrópa húrra yfir og þótt Pogba hafi stundum sýnt flott tilþrif hefur hann á köflum verið mistækur. Eins og fleiri leikmenn á þessum lista hefur Pogba nægan tíma til að sýna hvað í honum býr, svigrúmið til bætingar er talsvert. John Stones Félag: Manchester City Keyptur frá: Everton Kaupverð: 50 milljónir punda Einkunn: 6,0 n John Stones er af mörgum talinn framtíðarleikmaður enska landsliðsins. Þessi 22 ára varnarmaður hefur alla burði til að ná langt þótt byrjun hans hjá City hafi verið tiltölulega erfið. Ef síðustu 15 leikir liðsins í öllum keppnum eru skoðaðir sést að City hefur aðeins haldið hreinu í einum þessara leikja og hefur Stones gert nokkur afdrifarík mistök í vetur. Hann var til dæmis heppinn þegar Diego Costa náði boltanum af honum í vítateig City í leik liðanna um liðna helgi. Stones getur huggað sig við það að tíminn er með honum í liði og hann fær allan þann stuðning sem hann þarf frá þjálfaranum, Pep Guardiola. Sadio Mané Félag: Liverpool Keyptur frá: Sout- hampton Kaupverð: 36 milljónir punda Einkunn: 9,0 n Senegalinn Sadio Mané virðist smellpassa inn í leikstíl Jurgens Klopp hjá Liverpool enda hefur þessi 24 ára leikmaður skorað sjö mörk og lagt upp þrjú til viðbótar í aðeins 13 leikjum í deildinni. Samkvæmt tölfræðivefnum whoscored.com er aðeins Philippe Coutinho með hærri meðaleinkunn en Mané af leikmönnum Liverpool. Liverpool hefur gengið vel að skora í vetur og má þakka það elju og vinnusemi Mané sem er síógnandi uppi við mark andstæðing- anna. Kaupin á Mané eru ein þau allra bestu í vetur. Leroy Sane Félag: Manchester City Keyptur frá: Schalke Kaupverð: 37 milljónir punda Einkunn: 5,0 n Miklar vonir eru bundnar við Leroy Sane hjá Manchester City, enda greiddi félagið háar fjárhæðir fyrir hann í sumar. Þessi efnilegi þýski vængmaður hefur þó átt erfitt með að aðlagast enska bolt- anum og hefur hann virst vera týndur í leikjum City-liðsins. Sane hefur aðeins komið við sögu í sjö deildarleikjum City í vetur og gert lítið í þeim. Pep Guardiola hefur látið hafa eftir sér að Sane þurfi meiri tíma til að aðlagast. Shkodran Mustafi Félag: Arsenal Keyptur frá: Valencia Kaupverð: 35 milljónir punda Einkunn: 8,0 n Gæti Shkodran Mustafi verið týndi hlekkurinn fyrir Arsenal? Til að vinna titla þarf öfluga vörn og Arsene Wenger er loksins kominn með öfluga fjögurra manna varnarlínu. Mustafi hefur smollið vel inn í leikstíl Arsenal og Þjóðverjinn virðist sniðinn fyrir ensku úrvalsdeildina. Mustafi er leikmaður sem gerir hlutina á einfaldan og skilvirkan hátt og það ber ekki sérstak- lega mikið á honum inni á vellinum. Það er góður eiginleiki þegar varnarmenn eiga í hlut. Michy Batshuayi Félag: Chelsea Keyptur frá: Marseille Kaupverð: 33,2 milljónir punda Einkunn: 5,5 n Belginn efnilegi hefur ekki enn byrjað deildarleik fyrir Chelsea á tímabilinu og raunar aðeins leikið 77 mínútur í það heila. Ástæðan fyrir fáum tækifærum er einföld: Diego Costa hefur farið á kostum í framlínu Chelsea og þar sem liðið leikur ekki í Evrópu- keppni er álagið á helstu stjörnur liðsins ekki mikið sem aftur gerir að verkum að liðið breytist lítið milli leikja. Þar að auki hefur Chelsea gengið allt í haginn að undanförnu. Þrátt fyrir fá tækifæri hefur Michy skorað þrjú mörk, eitt í deild og tvö í deildarbikarn- um, og sýnt stuðningsmönnum Chelsea að félagið hafi ekki keypt köttinn í sekknum. N‘Golo Kante Félag: Chelsea Keyptur frá: Leicester Kaupverð: 32 milljónir punda Einkunn: 8,0 n N‘Golo Kante var einn allra besti leik- maður úrvalsdeildarinnar í fyrra og er hann ein af ástæðum þess að Leicester hampaði titlinum í vor. Kante byrjaði heldur rólega hjá Chelsea í haust en hefur hægt og bítandi verið að stimpla sig inn sem einn af lykilmönnum liðsins. Hann er duglegur og frábær í sinni stöðu sem afturliggjandi miðjumaður þar sem hann sópar upp öllum lausum boltum. Miðað við verðið, 32 milljónir punda, gætu kaupin á Kante reynst ein þau allra bestu í vetur. Granit Xhaka Félag: Arsenal Keyptur frá: Borussia Mönchengladbach Kaupverð: 34 millj- ónir punda Einkunn: 6,0 n Ekki er ólíklegt að Arsene Wenger hafi búist við meiru frá Granit Xhaka enda kostaði þessi 24 ára svissneski lands- liðsmaður skildinginn í sumar. Xhaka hefur byrjað sjö leiki í deild og komið fjórum sinnum af bekknum. Mistök sem kostuðu mark og klaufalegt rautt spjald sem hann fékk gegn Swansea um miðjan október varð til þess að margir settu spurningarmerki við leikmanninn. Hann hefur þó sýnt með svissneska landsliðinu og áður Basel og Borussia Mönchengladbach að hann er öflugur knattspyrnumaður sem gæti orðið lykil- maður fyrir Arsenal þegar fram í sækir. Dýrastur Paul Pogba kost- aði Manchester United 93 milljónir punda þegar hann var keyptur frá Juventus í sumar. MynDir EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.