Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 34
Helgarblað 9.–12. desember 201630 Skrýtið Sakamál
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061
Ömmumorðinginn
n Olaf Däter var skuldum vafinn n Misnotaði traust aldraðra kvenna
Þ
ann 14. júní, 2001, var dyra
bjöllunni hringt hjá Mörthu
Neubauer, 82 ára gamalli
konu í Bremerhaven í Þýska
landi. Fyrir utan stóð mað
ur sem hún þekkti vel, Olaf Däter,
Bangsi eins og hann var stundum
kallaður í vinsemd, enda 193 senti
metrar á hæð og vóg 130 kíló.
Olaf, sem starfaði við umönnun
aldraðra, sagði Mörthu að hann
þyrfti að kanna hvort baðherbergi
hennar fullnægði þörfum hreyfi
hamlaðra. Martha hleypti Olaf inn
í góðri trú.
Missti meðvitund
Þegar Olaf var kominn inn réðst
hann á Mörthu aftan frá, dró hana að
rúmi hennar og þrýsti andliti henn
ar niður í koddann. „Hvað viltu frá
mér?“ tókst Mörthu að stynja upp.
„Peninga,“ hvæsti Olaf.
„Drengur minn, hirtu peningana
og farðu,“ gat Martha sagt rétt áður
en hún missti meðvitund.
Olaf Däter fann 3.700 mörk í
íbúðinni og lét sig síðan hverfa, þess
fullviss að Martha væri liðið lík. En
Martha tórði; með þrjú brotin rif
bein, sár á höfði, glóðarauga og illa
marin víða á líkamanum.
Fyrir vikið gat hún vísað lögreglu
á ódæðismanninn.
Meira á samviskunni
Innan skamms var Olaf kominn í
vörslu lögreglunnar og þá kom ýmis
legt upp úr kafinu. Því fór fjarri að
Martha væri fyrsta og eina fórnar
lamb Olafs. Reyndar vildi svo til að
hann hafði farið rakleiðis heim til
hennar eftir að hafa heimsótt 89 ára
konu, Anneliese K., en hún hafði
ekki verið jafn lánsöm og Martha og
var ekki til frásagnar.
En fleiri konur höfðu lent í klón
um á „Bangsa“ sem hafði öðlast
traust þeirra í gegnum starfa sinn.
Fjórar aldraðar konur höfðu dagana
áður fundist látnar í rúmum sín
um og höfðu læknar úrskurðað að
dauða þeirra hefði borið að með
eðlilegum hætti.
Kyrktar með trefli
Olaf Däter hafði verið séður er hann
réð konunum bana. Ávallt hafði
hann gætt þess að koma þeim fyrir
í rúminu áður en hann kyrkti þær
með trefli og beitti þunga sínum til
að kæfa þær. Við fyrstu sýn virtist
sem konurnar hefðu andast í svefni.
Fyrsta fórnarlambið, Lisbeth N.,
87 ára ekkja, féll fyrir hendi hans 5.
júní. Tveimur dögum síðar myrti
Olaf Margarethe M., 85 ára, sem
greiddi honum 850 mörk svo hann
þyrmdi lífi hennar, sem hann svo
gerði ekki.
Þann 10. júní réðst Olaf til atlögu
við Helene K. Hún var engin fyrir
staða, enda 83 ára, 151 sentimetri á
hæð og vóg 45 kíló.
Fjórða fórnarlambið var Liese
lotte S., sem Olaf myrti 12. júní og
síðan, sem fyrr segir, Anneliese og
sú sjötta Martha, sem varð honum
að falli.
Einföld ástæða
Olaf Däter, sem fjölmiðlar gáfu
viðurnefnið Ömmumorðinginn –
„OmaMörder“, fékk lífstíðardóm í
nóvember 2001 án heimildar til að
sækja um reynslulausn að 15 árum
liðnum.
Ástæða morðanna var ekki flók
in; fjárhagsvandamál og skuldir.
Afraksturinn nam 5.000 þýskum
mörkum, jafnvirði 892.000 íslenskra
króna þá. n Sá um umönnun aldraðra kvenna Olaf Däter var ekki allur þar sem hann var séður.
Í haldi lögreglu
Ein kona hélt lífi
og varð það Olaf
að falli.
„Drengur
minn, hirtu
peningana og farðu.