Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 34
Helgarblað 9.–12. desember 201630 Skrýtið Sakamál Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is Dan Wiium Hdl, lögg. fasteignasali, Sími 896-4013 Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími 896-4090 Þórarinn Friðriksson Lögg. fasteignasali, sími 844-6353 Rakel Salóme Eydal Skjalagerð Sigurbjörn Skarphéðinsson Lögg. fasteignasali, skjalagerð Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár Ásta María Benónýsdóttir Lögg. fasteignasali, Sími 897-8061 Ömmumorðinginn n Olaf Däter var skuldum vafinn n Misnotaði traust aldraðra kvenna Þ ann 14. júní, 2001, var dyra­ bjöllunni hringt hjá Mörthu Neubauer, 82 ára gamalli konu í Bremerhaven í Þýska­ landi. Fyrir utan stóð mað­ ur sem hún þekkti vel, Olaf Däter, Bangsi eins og hann var stundum kallaður í vinsemd, enda 193 senti­ metrar á hæð og vóg 130 kíló. Olaf, sem starfaði við umönnun aldraðra, sagði Mörthu að hann þyrfti að kanna hvort baðherbergi hennar fullnægði þörfum hreyfi­ hamlaðra. Martha hleypti Olaf inn í góðri trú. Missti meðvitund Þegar Olaf var kominn inn réðst hann á Mörthu aftan frá, dró hana að rúmi hennar og þrýsti andliti henn­ ar niður í koddann. „Hvað viltu frá mér?“ tókst Mörthu að stynja upp. „Peninga,“ hvæsti Olaf. „Drengur minn, hirtu peningana og farðu,“ gat Martha sagt rétt áður en hún missti meðvitund. Olaf Däter fann 3.700 mörk í íbúðinni og lét sig síðan hverfa, þess fullviss að Martha væri liðið lík. En Martha tórði; með þrjú brotin rif­ bein, sár á höfði, glóðarauga og illa marin víða á líkamanum. Fyrir vikið gat hún vísað lögreglu á ódæðismanninn. Meira á samviskunni Innan skamms var Olaf kominn í vörslu lögreglunnar og þá kom ýmis­ legt upp úr kafinu. Því fór fjarri að Martha væri fyrsta og eina fórnar­ lamb Olafs. Reyndar vildi svo til að hann hafði farið rakleiðis heim til hennar eftir að hafa heimsótt 89 ára konu, Anneliese K., en hún hafði ekki verið jafn lánsöm og Martha og var ekki til frásagnar. En fleiri konur höfðu lent í klón­ um á „Bangsa“ sem hafði öðlast traust þeirra í gegnum starfa sinn. Fjórar aldraðar konur höfðu dagana áður fundist látnar í rúmum sín­ um og höfðu læknar úrskurðað að dauða þeirra hefði borið að með eðlilegum hætti. Kyrktar með trefli Olaf Däter hafði verið séður er hann réð konunum bana. Ávallt hafði hann gætt þess að koma þeim fyrir í rúminu áður en hann kyrkti þær með trefli og beitti þunga sínum til að kæfa þær. Við fyrstu sýn virtist sem konurnar hefðu andast í svefni. Fyrsta fórnarlambið, Lisbeth N., 87 ára ekkja, féll fyrir hendi hans 5. júní. Tveimur dögum síðar myrti Olaf Margarethe M., 85 ára, sem greiddi honum 850 mörk svo hann þyrmdi lífi hennar, sem hann svo gerði ekki. Þann 10. júní réðst Olaf til atlögu við Helene K. Hún var engin fyrir­ staða, enda 83 ára, 151 sentimetri á hæð og vóg 45 kíló. Fjórða fórnarlambið var Liese­ lotte S., sem Olaf myrti 12. júní og síðan, sem fyrr segir, Anneliese og sú sjötta Martha, sem varð honum að falli. Einföld ástæða Olaf Däter, sem fjölmiðlar gáfu viðurnefnið Ömmumorðinginn – „Oma­Mörder“, fékk lífstíðardóm í nóvember 2001 án heimildar til að sækja um reynslulausn að 15 árum liðnum. Ástæða morðanna var ekki flók­ in; fjárhagsvandamál og skuldir. Afraksturinn nam 5.000 þýskum mörkum, jafnvirði 892.000 íslenskra króna þá. n Sá um umönnun aldraðra kvenna Olaf Däter var ekki allur þar sem hann var séður. Í haldi lögreglu Ein kona hélt lífi og varð það Olaf að falli. „Drengur minn, hirtu peningana og farðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.