Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 36
Helgarblað 9.–12. desember 201632 Heilsa ÞITT BESTA VAL Í LITUM HANNAH NOTAR LIT 3-65 PALETTE DELUXE NÚ MEÐ LÚXUS OLEO-GOLD ELIXIR GERÐU LIT AÐ LÚXUS FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ* NR. 1 Í EVRÓPU NÝTT Börn og lyfjaeitrun Í Bandaríkjunum er eitt barn meðhöndlað á átta mínútna fresti vegna lyfjaeitrunar Þ egar maður er ungur að aldri, þá gildir einu af hvoru kyninu, er forvitn­ in ein af driffjöðrunum við að rannsaka heim­ inn. Það er gaman að fylgjast með börnum vaxa úr grasi, sjá þau læra með tímanum hvernig umhverfi þeirra virkar, hvaða hættur eru til staðar og hvernig beri að varast þær. Við sem eldri erum og höfum þegar gengið þessa vegferð vitum að nauðsynlegt er að hafa „vit“ fyrir þeim yngri og passa að þau fari sér ekki að voða. Eðlisávísun Þetta á við um flesta hluti í umhverfi okkar. Margir þeirra eru áhugaverð­ ir sökum litar, hljóðs eða hreyfingar og hver kannast ekki við ungbarnið sem fer að snerta sjónvarpsskjáinn sem sameinar alla þessa þrjá hluti í einum. Líklega er það þess vegna sem það er jafn góð barnapía og raun ber vitni og er örugglega of­ notað í þeim tilgangi víðast hvar. Að sama skapi eru spjaldtölvur í dag með snertiskjái og hafa þannig tek­ ið forystuna í barnapíuhlutverkinu á mörgum heimilum með þeirri vídd sem þær bjóða upp á við að fanga huga barna okkar. Allt er þetta eðlilegt út frá því sem börn veita athygli, en sem betur fer eru þau ekki stöðugt í slíkum tækjum og leita því á vit ævintýranna. Fikt og ýmist brölt, mestmegnis sakleys­ islegt en í sumum tilvikum lífshættu­ legt. Það á sérstaklega við um lyf sem þau geta fundið víða á heimilum fólks, fæðubótarefni og vítamín sem líta út eins og sælgæti eru klárlega mjög spennandi fyrir litla einstak­ linga að gleypa, því af eðlisávísun nota börn munninn til að átta sig á umhverfi sínu. 67 þúsund börn á ári Við sjáum það reglubundið hér­ lendis að börn hafa komist í tæri við þessi efni og geta þau þá þurft á bráðri aðstoð að halda. Samkvæmt rannsóknum t.d. í Bandaríkjunum eru ríflega 67.000 börn meðhöndl­ uð á ári hverju vegna lyfjaeitrunar, það er eitt barn á 8 mínútna fresti allt árið um kring. Meira en hálfri milljón símtala foreldra er svarað árlega þar sem slíkar áhyggjur eru viðraðar. Til eru tölur um það hvar og hvernig þau komast í tæri við slík lyf, í 40% tilvika hjá afa og ömmu, 30% hjá mömmu, 8% hjá föður og 12% hjá systkinum. Tæplega 30% eru á gólfinu, 20% í handtöskum og enn önnur 20% í skúffu sem barnið kemst í. Þetta eru afar áhugaverðar tölur og má eflaust heimfæra þær að einhverju leyti upp á Ísland. Ýmis fróðleikur Til eru samtök sem heita Safekidsworldwide þar sem ýmsan fróðleik er að finna og leiðbein­ ingar varðandi varnir gegn hinum ýmsu vágestum barna, þ.á.m. lyfja­ eitrunum. Þessi samtök tóku við af National SAFE kids campaign í Bandaríkjunum sem barnabráða­ skurðlæknirinn dr. Eichelberger stofnaði árið 1988. En honum of­ bauð fjöldi þeirra barna sem lét líf­ ið vegna aðstæðna sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Nokkr­ ar ráðleggingar eru afar einfaldar en geysilega öflugar sem forvörn, líkt og að geyma lyf og bætiefni þar sem börn komast ekki að þeim. Jafnvel þótt það séu engin börn á heimilinu dags daglega. Læstar hirslur, háir skápar, ekki í veskjum og þannig mætti lengi telja. Það er býsna langt og flókið mál að telja upp allt það sem get­ ur valdið skaða og hvernig, en gott er að muna að skammtastærðir eru háðar líkamsþunga í flestum ef ekki öllum tilvikum. Það er því augljóst að eitthvað sem er ætlað fullorðn­ um sem er 10–20 sinnum þyngri en barn getur ekki verið hollt, hið sama á við um bætiefni og vítamín. Göngum því varlega um þessi efni og komum sameiginlega í veg fyrir að þau valdi skaða hjá óvitanum. Upplýst og opin umræða Að þessu sögðu má ekki gleyma þeirri staðreynd að börn eldast og verða að unglingum og þrátt fyrir að maður skyldi ætla að þau þekktu hætturnar eiga sér samt stað lyfja­ eitranir slíkra einstaklinga. Ástæðan er kaldranaleg og sorgleg, en þekkt er að vísvitandi inntaka til sjálfs­ skaða á sér stað í þessum aldurs­ hópi. Við sjáum það á Íslandi sem annars staðar að áföll, vanlíðan, ein­ elti og ýmsar aðrar ástæður, jafnvel ástarsorg, leiða til þess hörmulega gjörnings að ungur maður eða kona reynir að svipta sig lífi með lyfjum. Nauðsynlegt er að sporna við því að slíkt geti gerst með upplýstri og op­ inni umræðu, styðja og aðstoða þá sem líður illa og beina þeim í réttan farveg. Hér gildir þó ekki síst sama reglan og varðandi óvitana að lyf eru hættuleg, þau eru ætluð ákveðnum einstaklingi og engum öðrum. Sá hinn sami ber ábyrgð á öryggi sínu og þeirra sem í kringum hann eru. n Teitur Guðmundsson læknir Farið varlega Lyf sem líta út eins og sælgæti eru spennandi í augum ungra barna. „Nokkrar ráð- leggingar eru afar einfaldar en geysilega öflugar sem forvörn, líkt og að geyma lyf og bæti- efni þar sem börn komast ekki að þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.