Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Page 38
Helgarblað 9.–12. desember 201634 Menning HVAR ER SÓSAN? Tvö brauð, ostur, buff og grænmeti nægja ekki til að gera góðan borgara. Ef sósuna vantar er eins gott að sleppa þessu. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. Smásagnahöfundur kemur víða við Þ órarinn Eldjárn er einn virt- asti rithöfundur þjóðar- innar og líklega ber ljóð- listina hæst af fjölbreyttu höfundarverki hans. Hann hefur líka sent frá sér nokkrar stór- merkilegar skáldsögur og smá- sagnasöfnin eru orðin sjö með þessari nýjustu bók, Þættir af séra Þórarinum og fleirum. Þórarinn hefur mikla sérstöðu sem smá- sagnahöfundur, meðal annars vegna þess að smásagnasöfn hans eru flest mjög vinsæl, sem er frem- ur fátítt um smásagnabækur, en líka vegna nálgunar hans á formið. Mjög margar af smásögum Þórarins falla nokkuð langt utan hefðbundinnar raunsæishefðar í smásagnagerð sem mótuð var á síðustu öld og ein- kennast fremur af hnyttnum athug- unum og skopi en raunsæislegum söguþræði, eru eins konar brandar- ar á æðra stigi. Það sem helst hefur haldið smásögum Þórarins á lofti eru stórkostlega fyndnar og frum- legar hugmyndir sem hafa orðið fleygar. Afar snjallir orðaleikir hafa líka einkennt margar sagnanna. Því miður verður það að segjast að nýjasta bók Þórarins nær lægra flugi en fyrri smásagnasöfn hans. Fyrsta sagan, Hans heilagleiki, fjall- ar um mann sem fær þá flugu í höf- uðið að hann sé orðinn heilagur – algóður. Nokkuð snjöll hugmynd en það vantar meira kjöt á beinin til að úr verði bitastæð saga. Saga númer tvö, Gifsbangsinn, sver sig í ætt við fjölmargar fyrri sögur höfund- ar sem greina frá börnum á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Sagan fjallar um dýrmætt leikfang sem mætir dapurlegum örlögum og sagan er í senn skemmtilega hversdagsleg og nöturleg. Þriðja sagan, Feilskotið, fer vel af stað, en hún fjallar um brölt tveggja drengja uppi á háalofti á heimili annars þeirra. Sögusviðið er vægast sagt spennandi en höfundur velur að botna söguna með hugmynd sem ég get varla annað en kallað en ódýra og sneiðir hjá tækifæri til að skrifa eftirminnilega sögu. Sagan Eyðibýlið er sérkennileg. Feðgar fara inn í eyðibýli en vitund föðurins finnur sig inni á undarlegri flugstöð þaðan sem engar flugvélar virðast fljúga. Tilvistarleg pæling um fánýti þess að sækja í fortíðina er ofin inn í þennan texta sem ég náði ekki að tengja mig við, en er áhugaverður. Sagan Jónatan er klén, fjallar um ákveðna karaktergerð sem er ófær um að njóta líðandi stundar. Sagan Uppstilling ehf. er varla annað en smellinn pistill til að birta á netinu, ekki burðugur texti í smásagnasafni eftir stórskáld. Sagan Blöndukútur í Sorpu er hins vegar afar vel skrif- uð og hnyttin, sú saga snertir streng í brjósti þeirra sem njóta þess að safna fánýtum hlutum. Brauðin hans pabba er býsna skondin, enn einu sinni nær sérkennileg hug- mynd flugi eins og í mörgum eldri sögum Þórarins. Ein lengsta saga bókarinnar, Beðið eftir Rol, er þreytandi og skrýtinn lestur. Sögusviðið er Kola- portið þar sem stórfjölskylda hittist til að ræða um tilefni ættarmóts. Ólán klárað er ekki smásaga heldur bragfræðileg pæling um sonnettur Jónasar Hallgrímssonar, hugsanlega sonnettur sem hann hefur þó aldrei ort. Þetta er fyndni fyrir bragfræðinga. Ekki eru allar sögur bókarinnar upptaldar hér en hún endar á býsna alvarlegum nótum. Sagan Ósagt best greinir frá baráttu ungs manns við krabbamein og veltir upp áhuga- verðum sjónarmiðum um hvað sé við hæfi að segja og láta ósagt þegar rætt er um dauðann og banvæna sjúkdóma. Áhrifamikil saga. Í heildina er hér of mikið efni sem snertir lítt við þessum les- anda og sögur sem valda vonbrigð- um. Bókin vekur upp löngun til að rifja upp kynni við eldri smásögur Þórarins sem margar hverjar eru af- bragðsgóðar. n „ Í heildina er hér of mikið efni sem snertir lítt við þessum lesanda og sögur sem valda vonbrigðum. Þórarinn Eldjárn Einn virtasti höfundur þjóðarinnar. Mynd Sigtryggur Ari Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Bækur Þættir af séra Þórarinum og fleirum Höfundur: Þórarinn Eldjárn Útgefandi: Vaka-Helgafell 147 bls. H inn suðurafríski Deon Meyer er örugglega í hópi bestu glæpasagnahöfunda samtím- ans. Bók hans Þrettán tímar ber öll merki þess að vera verk rit- höfundar sem kann vel til verka og er ólíklegur til að stíga feilspor. Í Höfðaborg í Suður-Afríku finnst lík bandarískrar unglingsstúlku á götu. Vinkona hennar er horfin. Lög- regluforinginn Benny Griessel leitar hennar en það gera einnig morðingj- ar vinkonu hennar. Á sama tíma er áhrifamaður í tónlistarheiminum myrtur. Benny rannsakar það mál. Hluti bókarinnar lýsir æsilegum flótta ungrar stúlku sem er innikróuð og þarf á allri sinni hugvitssemi á að halda. Reyndar er staða hennar svo vonlítil að dágóður skammtur af heppni þarf einnig að falla henni í skaut eigi hún að komast lífs af. Þessir Spennuþrungin frásögn Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Bækur Þrettán tímar Höfundur: Deon Meyer Þýðandi: Þórdís Bachmann Útgefandi: Ugla 432 bls. „Meyer kann fjarska vel að skapa spennu en hefur einnig afar næma taug.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.