Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Qupperneq 46
Helgarblað 9.–12. desember 201642 Menning
J
ón Hjaltason sagnfræðingur er
höfundur bókarinnar Bærinn
brennur, en þar er sagt frá elds
voðum, afdrifum húsa, þró
un byggðar og mannlegum
örlögum á Akureyri. Jón er fyrst
spurður af hverju honum hafi þótt
ástæða til að skrifa bók um bruna á
Akureyri. Hann svarar: „Framan af
20. öld voru brunar afskaplega tíðir
hér á Akureyri, já svo tíðir að því
var almennt trúað að þeir hlytu að
vera af mannavöldum. Og þótt held
ur drægi úr þessum grunsemdum
þegar á leið þá segir Bærinn brennur
frá óhugnanlega mörgum brunum.
Eldsvoðar hafa breytt miklu
um ásýnd Akureyrar og skipulag
bæjarins. Til dæmis má rekja fyrstu
bæjar vatnsveituna beint til eld
hræðslu okkar Akureyringa. Og
hér er enn í bænum, ótrúlegt nokk,
óbyggt, allstórt svæði sem áður var
þakið byggingum sem eldurinn
eyddi á sínum tíma.
Merkar byggingar hafa líka
horfið. Til dæmis brann elsta og
fyrsta íbúðarhúsið á Akureyri. Hótel
Oddeyri og Hótel Akureyri voru
með glæsilegustu byggingum lands
ins á sínum tíma, bæði hurfu í eldi.
Raunar má segja að heilu hverfin
hafi fuðrað upp í sumum þeirra elds
voða sem hér hafa orðið.“
Áhrif á samfélagið
Voru þetta mannskaðabrunar?
„Já, því miður hefur fólk týnt lífi
í eldsvoðum á Akureyri. Afskaplega
sorglegur atburður varð 1968 þegar
ung móðir fórst og tveir ungir synir
hennar. Sem betur fer eru þessi tilvik
þó ekki mörg.“
Hvaða áhrif höfðu þessir brunar á
samfélagið?
„Áhrifin voru mikil og nægir að
nefna Vatnsveitu Akureyrar í því
sambandi sem varð til í og með til
að auðveldara yrði að slökkva elda
í kaupstaðnum. En áhrifin hefðu
orðið enn meiri, já, gríðarleg, ef sam
félagið hefði ekki verið jafn fátækt og
raun bar vitni. Brunarnir innleiddu
nefnilega þá sannfæringu að timbur
væri beinlínis hættulegt byggingar
efni. Og hefðu menn átt einhverja
peninga væri í dag ekki að finna eitt
einasta gamalt timburhús á Akur
eyri.
Það eimdi lengi eftir af þessari
trú. Við sjálft lá að jafnvel hin forn
fræga bygging Menntaskólans á
Akur eyri lyti í lægra haldi fyrir stein
steypunni sem var hið eina sanna
byggingarefni. Eldurinn hafði þá
líka reynt að eyða þessu glæsilegasta
skólahúsi landsins og munaði að
eins hársbreidd – og lítilli tilviljun –
að það breyttist í brunarúst.“
Hlutskipti slökkviliðsmannsins
Jón er spurður hvernig hann hafi
unnið bókina. „Ég lagði sérstaka
áherslu á að finna frumgögn um
stærstu eldsvoðana, 1901, 1906 og
1969 sem varð reyndar snúnara en
ég átti von á,“ segir hann. „Dóma
bókin fyrir árið 1901 er ekki finnan
leg. Kannski hefur hún brunnið
þegar ÁstarBrandur kveikti – eða
kveikti ekki – í tukthúsinu 1938. Það
var svo fyrir tilviljun að ég fann út
skrift úr bókinni sem hafði verið
þýdd á dönsku fyrir dönsk trygginga
félög.
Síðasti kaflinn í Bærinn brennur
er um verksmiðjubrunann
á Gleráreyrum 1969 og er að
stórum hluta byggður á við
tölum við karlana sem í tólf
klukkustundir börðust við ægilegt
eldhaf.
Mér fannst líka spennandi að
velta fyrir mér hlutskipti slökkviliðs
mannsins. Hér áður var sá bestur í
liðinu sem gat haldið lengst niðri í sér
andanum, sagði mér gamall slökkvi
liðsmaður. Með öðrum orðum, sá
sem þoldi reyk og eimyrju best.
Þannig var búið að þessum mönn
um og gengur eiginlega kraftaverki
næst, finnst mér, að enginn þeirra
skuli hafa farið sér að voða. Stund
um skall þó hurð nærri hælum.
Annars er það slökkviliðsmað
urinn Gunnlaugur Búi Sveinsson
sem ber stærsta ábyrgð á að Bærinn
brennur varð að bók. Á sínum tíma
lagði hann mikla vinnu í að
safna heimildum úr dag
bókum slökkviliðsins
og blöðum um
bruna á
Akur
eyri.
Síðan lögðust þeir á eitt, Gunnlaugur
Búi og sonur hans Ólafur Búi, við að
safna ljósmyndum sem þeir fengu
lánaðar til eftirtöku, jafnt frá áhuga
ljósmyndurum sem atvinnumönn
um. Þetta mikla safn fékk ég lánað og
þar með fæddist hugmyndin.“
Sannkölluð myndabók
Fjöldi ljósmynda prýðir bókina.
„Myndirnar eru sannarlega sérkafli
út af fyrir sig og hafa fæstar komið á
prent fyrr. Þær eru á fjórða hundrað
og sýna þróun bæjarins í rúma hálfa
öld eða fram til 1969. Þær elstu eru
frá því fyrir aldamótin 1800/1900
en yngstu myndirnar tengjast verk
smiðjubrunanum 1969,“ segir Jón.
„Bærinn brennur er því sannkölluð
myndabók, er mér óhætt að segja,
enda allur frágangur hennar við
það miðaður að ljósmyndir fái not
ið sín. Og það verð ég að segja að
prentsmiðjan Oddi, en þar var bók
in prentuð, hefur skilað einstaklega
góðu verki. Ég held hreinlega að
ég hafi aldrei séð betra prentverk á
myndum en í Bærinn brennur.“ n
„Hér áður var
sá bestur í
liðinu sem gat haldið
lengst niðri í sér and-
anum, sagði mér
gamall slökkviliðs-
maður. Með öðrum
orðum, sá sem þoldi
reyk og eimyrju best.
Maí 1967 Enn er eldur í Strandgötu
39, húsinu sem gat ekki brunnið.
Mynd GunnlauGur TryGGvi
BerGþórSSon
Eldar og
örlög á
Akureyri
n Jón Hjaltason sagnfræðingur
er höfundur bókarinnar Bærinn
brennur n Á fjórða hundrað
mynda eru í bókinni
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Jón Hjaltason Höfundur bókar um
bruna á Akureyri. Mynd Guðrún þórSdóTTir
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðaprentun.
Ljósmynda-, striga- og segulprentun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...