Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 48
Helgarblað 9.–12. desember 2016
97. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Var
nokkuð
bakari
hengdur
fyrir smið?
Saga vill leika
Annie Mist
n Leikkonan Saga Garðarsdóttir
virðist klár í bátana ef einhver
kvikmyndagerðarmaður stekkur
á þá fínu hugmynd að gera bíó-
mynd um crossfit-afrekskonuna
Annie Mist Þórisdóttur. Saga
upplýsir á Twitter-síðu sinni að
hún þyrfti þó smá fyrirvara til að
koma sér sama yfirnáttúrulega
formið og valkyrjan valinkunna.
„Annie Mist verður að af-
reka eitthvað brjálæðislegt sem
fyrst svo að það verði gerð bíó-
mynd um hana og ég geti byrjað
að bulka mig upp!“ skrifar Saga
og vafalaust hafa leikstjór-
ar landsins
stokkið að
teikniborð-
um sínum
til að út-
færa hug-
myndina.
Aron Einar hrifinn
af The Rock
n Aron Einar Gunnarsson, fyrir-
liði íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu, er hrifinn af vöðva-
fjallinu The Rock ef marka má við-
tal við Aron á heimasíðu enska
fótboltaliðsins Cardiff sem hann
spilar með.
Aron var í léttu spjalli á
vef Cardiff þar sem valdi sinn
draumaleik og þátttakendur í hon-
um. Aron valdi Stade France í París
sem vettvang leiksins, Pierluigi Col-
ina sem dómara leiksins og Gylfa
Þór Sigurðsson
sem víta-
skyttu. Fyrir-
liðinn var
enginn ann-
ar en The
Rock sem
Aron segist
fylgjast vel
með á sam-
félagsmiðl-
um.
1
byko.is AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LAND
Lifandi jólatré
SKOÐAÐU JÓLAGJAFAHANDBÓKINA Á BYKO.IS
Allt í
jólapakkann
FÖNDURFRÆSARI
3000MD 3 Star Kit
7.995kr.
Almennt verð: 9.995 kr.
74780311
NOKKRAR HUGMYNDIR
25% AFSLÁTTUR
AF MATAR- OG
KAFFISTELLUM
HEIL SETT
MATVINNSLUVÉL
800W.
13.995kr.
Almennt verð: 17.995 kr.
65742022
BLUETOOTH HÁTALARI
í sturtuna, baðið eða pottinn.
13.995kr.
15326268
Auðvelt að versla á byko.is
Sérvalinn normannsþinur, íslensk fura og blágreni.
Einnig mikið úrval af gervijólatrjám og skrauti.
TIMBURVERSLUN
BREIDD
FÖS 8-18
LAU 10-14
SELFOSS
FÖS 8-18
LAU 10-18
SUN 12-16
Sölustaðir
byko.is Auðvelt að versla á byko.is
SKREYTUM SAMAN
Ö
ll v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g/
eð
a m
yn
da
br
en
gl
. T
Ilb
oð
gi
ld
a t
il
18
.d
es
em
be
r.
Vigdís Grímsdóttir ökklabrotnaði
Þ
etta er mjög réttlátur dómur
og ég er bæði undrandi og
glöð yfir þessu máli. Héraðs-
dómur virti það sem satt er.
Ég er þakklát fyrir að réttar-
kerfi okkar virki og að réttlætið hafi
náð fram að ganga. Upphaflega vildi
ég aðeins tryggja að aðgengið yrði
lagað svo að þetta myndi ekki henda
neinn annan. Þetta er eitthvað sem
ég þarf að glíma við það sem eftir er
ævi minnar,“ segir Vigdís Grímsdóttir,
rithöfundurinn góðkunni, sem varð
fyrir því óláni að ökklabrotna við
verslun Mosfellsbakarís á Háaleitis-
braut.
Í vikunni féll dómur í héraðsdómi
þar sem eigandi fasteignarinnar, Her-
mann Bridde, og umráðaaðili verslun-
arrýmisins, Mosfellsbakarí, voru dæmd-
ir skaðabótaskyldir vegna slyssins.
Vigdís harmar að málið hafi þurft
að fara fyrir dóm en viðleitni henn-
ar til úrbóta hafi ekki hlotið neinar
undirtektir hjá málsaðilum og því
hafi hún neyðst til þess að sækja rétt
sinn fyrir dómi. Hún þakkar einnig
lögmanni sínum, Páli Ásgeiri Dav-
íðssyni, fyrir góð störf. Atvikið átti sér
stað þann 19. september 2014 þegar
Vigdís var að koma út úr bakaríinu.
Í dómnum segir orðrétt: „Af hálfu
stefnanda [Vigdísar, innsk. blm.] er
slysinu lýst á þann veg að þegar hún
hafi sett hægri fótinn út fyrir dyrn-
ar hafi útidyrahurðin skollið harka-
lega aftan á hana með þeim afleiðing-
um að hún kom skakkt niður á fótinn
á gangstéttinni fyrir framan bakarí-
ið. Stefnandi var flutt á Landspítala í
kjölfarið. Þar kom í ljós að stefnandi
hafði brotnað á hægri ökkla.“ Vinkona
Vigdísar sat úti í bíl og varð vitni að
slysinu og gaf skýrslu fyrir dómi.
Þá kemur fram að Vigdís hafi þurft
að notast við hjólastól eftir slysið en síð-
an göngugrind og hækjur. Hreyfigeta í
ökklanum sé skert enn þann dag í dag
og núna, rúmum tveimur árum eftir
slysið, verði hún enn að notast við staf.
Krafa Vigdísar byggðist á því að
þröskuldurinn fyrir utan verslun-
ina hafi verið margfalt hærri en regl-
ur heimili. Þá sé útidyrahurð bakarís-
ins knúin af pumpu sem láti hurðina
lokast hættulega hratt og með miklum
fallþunga. Að lokum sé halli frá neðri
brún hurðar og að yfirborði hellulagn-
ar sem auki verulega hættuna á að
fólki skriki fótur þegar það stígur út úr
versluninni.
Mosfellsbakarí, Hermann Bridde
og VÍS mótmæltu öllum kröfum og
málsástæðum Vigdísar. Aðilarnir
töldu með öllu ósannað að þeir ættu
sök á slysi Vigdísar og að þeir hafi
valdið því með saknæmum og ólög-
mætum hætti. Héraðsdómur tók ekki
undir þessi rök og þá voru fullyrðingar
Vigdísar sannreyndar með vettvangs-
ferð dómara. n bjornth@dv.is
n Fær bætur samkvæmt dómi héraðsdóms n „Ég er bæði undrandi og glöð“