Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 18
Helgarblað 16.–19. desember 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Orð og efndir Birgittu
Fyrirheit Birgittu
Jónsdóttur, þing-
konu Pírata, um
að benda ekki á
einn flokk um-
fram annan sem
sökudólg hvað
varðar viðræðu-
slit flokkanna fimm entust ekki
lengi. Birgitta stóð býsna kok-
hraust fyrir framan blaðamenn
á Bessastöðum og sagði að hún
vildi ekki kenna neinum um að
stjórnarmyndunarviðræðurnar
hefðu strandað. Ekki leið heill
sólar hringur þar til þessi fögru
fyrirheit voru fokin út um glugg-
ann og Birgitta var farin að kenna
Katrínu Jakobsdóttur og Vinstri
grænum um allt sem miður hefði
farið. Það er þetta með orðin og
efndirnar.
Vildu Sigurð Kára til SA
Þrátt fyrir að ráðning Halldórs
Benjamíns Þorbergssonar í starf
framkvæmdastjóra
SA hafi almennt
mælst afar vel fyrir
í íslensku atvinnu-
lífi þá eru ekki allir
á eitt sáttir við þá
niðurstöðu. Vit-
að er að innan sjö
manna framkvæmdastjórnar SA
var ekki einhugur um að ráðn-
inguna. Þannig beittu sumir í
framkvæmdastjórninni sér fyrir
því, einkum og sér í lagi Jens Garð-
ar Helgason, formaður Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, að Sig-
urður Kári Kristjánsson, lögmaður
og fyrrverandi þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, yrði ráðinn fram-
kvæmdastjóri samtakanna. Sú
skoðun fékk hins vegar lítinn
hljómgrunn á meðal meirihluta
stjórnarmanna enda þótt ýms-
ir áhrifamenn tengdir Kaupfélagi
Skagfirðinga og stærstu útvegsfyr-
irtækja landsins hafi þrýst mjög á
að Sigurður Kári fengi starfið.
ljúffengur morgunmatur
alla daga
Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk.
Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is
Opið virka daga frá 07:30–18:00
og um helgar frá 09:30–18:00
gamla
höfnin
Hann hótaði sprengju-
árás á Reykjavík
Jens Viktor og félagar sáu mann lúberja konu. – DV
Þetta var mögnuð
kærleikssprengja
Vinir Halldórs Braga komu honum á óvart á afmælinu. – DV
Vissum að það þurfti
eitthvað að breytast
Helga og Tómas léttust um 43 kíló á fimm árum. – DV
N
ýjustu fréttir herma að hafið
sé að flytja uppreisnarmenn
og fjölskyldur þeirra í Austur-
Aleppo á brott. Vonandi
heldur það samkomulag. Við höf-
um of oft fengið fréttir frá þessum
slóðum af samkomulagi um vopna-
hlé sem ekki hefur haldið. Hryll-
ingnum verður að linna. Undan-
farið höfum við fylgst með íbúum
Aleppo sem margir hverjir hafa á
samfélagsmiðlum sent áhrifamikil
skilaboð til umheimsins um skelf-
inguna sem þeir búa við. Þetta
eru einstaklingar sem
hafa horft upp á fólk
myrt með köldu blóði
og búa sig undir að
þannig kunni jafn-
vel að fara fyrir þeim
sjálfum. Í hættulegu
umhverfi þar sem
mannslíf eru lítils
metin er auðvelt fyrir
þessa einstaklinga að
trúa því að heimin-
um standi á sama um
örlög þeirra.
Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna,
UNICEF, sendi á
dögunum frá sér til-
kynningu og minnti á
þau sannindi að stríðið í Sýrlandi
bitni ekki síst á börnum. Í tilkynn-
ingunni sagði einnig að heims-
byggðin horfði aðgerðarlaus á
hörmungarnar. Það er samt ekki al-
veg þannig.
Stríðsherrum heimsins stendur
á sama um íbúa Aleppo, mannfall í
styrjöld er í hugum þeirra einung-
is nauðsynlegur fórnarkostnaður.
Síðan er það því miður þannig að
Sameinuðu þjóðirnar, göfug stofn-
un sem mark ætti að vera tekið á,
hafa ekki haft mátt til að takast á við
það verkefni að koma þar á friði.
Um allan heim er hins vegar
fólk sem býr yfir þeim hæfileika að
geta sett sig í spor annarra og finn-
ur til með þeim sem þjást. Þetta
er venjulegt fólk sem vill lifa frið-
sælu lífi, fjarri stríðsátökum. Bless-
unarlega hefur það flest fengið þá
ósk sína uppfyllta. Það hefur hins
vegar of lengi fylgst með blóðugum
átökum í Aleppo og hefur jafnlengi
spurt: Af hverju stöðvar enginn
þetta blóðbað?
Þessu fólki stendur ekki á sama
um örlög íbúa Aleppo. Það eina
sem það getur gert er að sýna að
því standi ekki á sama og hvetja um
leið þjóðarleiðtoga til að beita sér.
Þess vegna fer þetta fólk út á götur
til að sýna samstöðu með þeim
sem enn lifa í Aleppo og minnast
þeirra sem hafa dáið. Þessi sam-
staða er sýnileg. Tökum örfá dæmi
af fjölmörgum. Í hinni heillandi
stórborg París var slökkt á ljósum
Eiffel-turnsins til að minnast
fórnar lambanna í Aleppo. Á torgi í
Amsterdam var kveikt á kertum og
sömuleiðis í Bern í Sviss. Stríðinu
var mótmælt við Downing-stæti
og í Istanbúl. Í Madrid vörpuðu
samtökin Læknar án landamæra
myndum af loftárás á sjúkrahús.
Í átökunum um Aleppo er enginn
sigurvegari en ótal fórnarlömb. Um-
heiminum stendur sannarlega ekki
á sama. Eins og hefur sýnt sig á
undanförnum dögum.
Nú á aðventunni getum við
Íslendingar lagt okkar af mörkum
með því að styðja við þau hjálpar-
samtök sem veita stríðshrjáðum
aðstoð í Aleppo og Sýrlandi. Það
er virðingarvottur sem vert væri
að veita í aðdraganda hátíðar sem
börnin njóta svo mjög. n
Okkur er ekki sama um Aleppo
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Skautasvell Það er gaman að leika sér á skautum. Og ekki þarf að hafa áhyggjur af hlýju veðrinu á rafkældu svellinu á Ingólfstorgi. mynd SiGTryGGur Ari
„Þess vegna fer
þetta fólk út á
götur til að sýna sam-
stöðu með þeim sem enn
lifa í Aleppo og minnast
þeirra sem hafa dáið.