Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 27
Helgarblað 16.–19. desember 2016 Kynningarblað - Flutningaþjónusta 7
Búslóðaflutningar flytja allt
Glænýtt fjölskyldufyrirtæki í örum vexti
B
úslóðaflutningar ehf. er
sannkallað fjölskyldufyrir-
tæki enda rekið af systkinun-
um Söru Sigurvins-
dóttur og Axel
Þorsteinssyni. Nýlega
bættist litla systir
þeirra inn í hópinn,
Edda Sigurvinsdótt-
ir, en hún er meira-
prófsbílstjóri. Einnig
er faðir þeirra,
Ómar, þeim til halds
og trausts en hann
hefur áralanga reynslu
í sendibílaakstrinum.
„Við leggjum upp úr
persónulegri og skjótri þjón-
ustu,“ segir Sara og bætir við að bíl-
stjórar sinni útköllum hvar sem er á
höfuðborgarsvæðinu og skutli hvert
á land sem er, alveg heim að dyrum.
Ævintýrið byrjaði í nóvember
2015 með grænum tíu tonna sendi-
ferðabíl. Í desember í fyrra bættist
svo við tólf rúmmetra Ford Transit
sem er mjög hentugur í alls kyns
dreifingu og minni flutninga. Fyrir-
tækið er í stöðugum uppvexti og nú
í apríl stækkaði flotinn enn og aftur.
Um er að ræða tólf tonna Benz Atego
með kælivél og er hann tilvalinn í
stórar búslóðir og fyrirtækjaflutn-
inga. Bílafloti Búslóðaflutninga ehf.
er staðsettur í Hraunbæ í Reykja-
vík og flytur fyrirtækið hvert á land
sem er. „Það hefur verið mjög mik-
ið að gera hjá okkur í vor og sumar
en með haustinu hefur hægt aðeins
á, enda kemur þetta í bylgjum. Við
erum þó starfandi allt árið og óski
viðskiptavinur eftir því, þá flytjum
við á nóttunni. Við erum náttúrlega
þjónustufyrirtæki,“ segir Sara. Þrátt
fyrir nafnið sér Búslóðaflutningar
ehf. um alhliða flutninga svo sem
búslóðaflutninga, píanóflutninga og
fyrirtækjaflutninga. „Ef það kemst
fyrir í bílunum hjá okkur þá flytjum
við það,“ segir Sara.
Búslóðaflutningar ehf. er stað-
sett í Hraunbæ 182 í Reykjavík og
með lögheimili í Laxatungu 23, Mos-
fellsbæ. Viðskiptavinir geta pantað
þjónustu fyrirtækisins með því að
hafa samband í síma 893-5888 eða
með því að senda vefpóst á busloda-
flutningar@simnet.is. Nánari upp-
lýsingar má svo nálgast á Facebook-
síðu Búslóðaflutninga ehf. n