Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 29
Helgarblað 16.–19. desember 2016 Fólk Viðtal 21
ég sé ennþá villingur og ekki sé búið
að afeitra mig hvað það varðar.“
Flutti beint úr föðurhúsum til
Þýskalands
Þorgerður Katrín stundaði mennta
skólanám í Menntaskólanum við
Sund. Eftir útskrift flutti hún út til
Þýskalands ásamt manni sínum,
Kristjáni Arasyni, sem þá hélt í at
vinnumennsku í handbolta. „Fyrst
fluttum við til Hameln sem var alveg
yndisleg borg að búa í. Síðan fórum
við til Gummersbach og enn síðar til
Spánar. Tíminn í útlöndum var frá
bær tími og hafði mikil áhrif á mig.
Það var lærdómsríkt að flytja út að
eins tvítug. Ég held að ég hafi ekki
skynjað það að fullu þá hversu mikil
vægt það er að flytja út og kynnast
annarri menningu. Ég var auðvitað
að fara í fyrsta skipti úr föðurhúsum,
ég flutti beint út til Þýskalands. Eftir
á sér maður hvað þetta var ómetan
legt. Ég held að það sé sannarlega
engin bábilja að með því að flytja út
og ferðast, verði maður víðsýnni.“
Ætlaði að verða dýralæknir
Þorgerður stundaði handboltann
úti í Þýskalandi í neðri deildum og
dæmdi einnig töluvert. Hún hélt
áfram að dæma þegar hún var kom
in heim til Íslands og varð fyrsta kon
an til að dæma leiki í efstu deild bæði
kvenna og karla. Úti lagði hún stund
á lögfræði í fjarnámi frá Háskóla Ís
lands og útskrifaðist með lögfræði
gráðu árið 1993. „Ég ætlaði nú samt
alltaf að verða dýralæknir, vegna
sveitarinnar og dýranna.“
Þú værir þá kannski formaður
Framsóknarflokksins núna?
„Það væri nú ekki slæmt,“ segir
Þorgerður glottandi og bætir við að
hún hafi lengi sagt að hún myndi þá
bara hefja dýralæknanámið þegar
hún yrði fimmtug. Hún er reyndar
orðin aðeins eftir á með það og sér
ekki alveg fram úr því að komast
í slíkt nám á næstunni en maður
skyldi aldrei segja aldrei.
Minna rúm fyrir fjölbreyttar
skoðanir í Sjálfstæðisflokknum
Þorgerður og Kristján fluttust alkom
in til Íslands árið 1997 og hóf hún
þá störf sem yfirmaður samfélags
og dægurmáladeildar Ríkisútvarps
ins. Þorgerður tók svo þátt í próf
kjöri Sjálfstæðisflokksins í nóvember
1998 og var í framboði fyrir flokk
inn í kosningunum vorið 1999 þar
sem hún var kjörin á þing. Þorgerður
hafði starfað með ungliðahreyf
ingu Sjálfstæðisflokksins í Hafnar
firði upp úr 1990 og segir að hún hafi
alltaf haft áhuga á pólitík. „Pólitík var
mikið rædd á heimilinu. Ég er alin
upp á krata, kvennalista og kven
réttindaheimili. Ég var alltaf að reyna
að sannfæra pabba um að Sjálfstæð
isflokkurinn væri stærsti jafnaðar
mannaflokkur Íslands, til að reyna að
fá hann til að kjósa flokkinn. Þá var
rúm fyrir mjög fjölbreyttar skoðanir í
Sjálfstæðisflokknum.“
En ekki í dag?
„Nei, minna.“
Þorgerður Katrín var sem fyrr
segir kjörin á þing árið 1999 og var
gerð að ráðherra menntamála í lok
árs 2003. Hún varð síðan varafor
maður Sjálfstæðisflokksins árið 2005.
Þetta er nokkuð skjótur framgang-
ur, þú nærð mjög langt innan flokks-
ins. Ertu sátt við tíma þinn þar þegar
þú lítur til baka?
„Já, mér leið vel þar, þetta var
góður tími og ég kynntist mörgu
góðu fólki. Í dag sé ég hvað var raun
verulegt í því, hverjir eru vinir manns
og hverjir ekki. Að mínu mati velur
maður ekki vini eftir stjórnmála
skoðunum og ég á marga góða vini
sem eru með aðrar hugsjónir en ég.“
Þú verður vör við það núna, eftir
að þú gengur til liðs við Viðreisn, að
það eru ekki allir sáttir?
„Já, ég verð það.“
Vill aukna samvinnu
Þorgerður segist sátt við sín störf
á Alþingi og í menntamálaráðu
neytinu, þótt auðvitað sé það svo
að margt hefði mátt gera á annan
hátt. „Ég lærði að hlutirnir gengu
betur þegar maður hafði meira sam
ráð. Dæmi um það er skólalöggjöf
in sem ég vann að því að koma á.
Það hikstaði til að byrja með, árin
2004 til 2005. Þá fórum við í víð
tækari samvinnu við kennarasam
böndin og sveitarfélög og það gekk
strax betur. Málin kláruðust ekki fyrir
kosningar 2007 og þá var til umræðu
að ég myndi skipta um ráðuneyti.
Ég vildi það hins vegar ekki, ég vildi
ljúka þessari vinnu. Með því að auka
samráð náðist mikilvæg sátt í skóla
málum. Niðurstaðan varð sú að all
ir flokkar voru með við afgreiðsluna,
þótt menn hefðu auðvitað sína fyrir
vara,“ segir Þorgerður sem auðsjáan
lega er talsvert niðri fyrir þegar kem
ur að umræðu um aukið samráð og
samvinnu í stjórnmálum. Hún segir
að á þessum árum hafi henni þótt
vanta meira upp á samræðukúltúr í
íslenskum stjórnmálum þannig að
fólk ynni saman þvert á flokka og
næði sáttum um mál. „Þannig var
það þá og við skulum virða það. Nú
erum við að upplifa aðra tíma og mér
finnst það ótrúlega spennandi. Líkt
og þessar viðræður flokkanna fimm.“
Ríkisreksturinn risastórt
velferðarmál
Þorgerður sat sem ráðherra þegar
bankahrunið reið yfir árið 2008. „Það
voru skrýtnir tímar, ákaflega skrýtnir.
Og erfiðir.“
Vissirðu eitthvað hvað var að
gerast?
„Nei, ég get ekki sagt það. Ekki
frekar en margir aðrir. Þetta tímabil
var ákaflega erfitt en lærdómsríkt og
ég hugsa um það í dag hvernig best
er að draga lærdóm af því sem þarna
gerðist. Ríkisreksturinn til lengri
tíma skiptir ótrúlega miklu máli og
ég hugsa um þessa tíma núna í fjár
lagaumræðunni. Það er risastórt vel
ferðarmál að ríkisreksturinn sé í lagi.
Tónninn úr kosningunum er sá að
við þurfum að sinna betur grund
vallarmálaflokkum eins og um heil
brigðismálum, menntamálum og
velferðarmálum. Það eru skýr skila
boð um það. En á sama tíma verð
um við að fara varlega í ríkisfjár
málunum. Menn lækkuðu til að
mynda skatta á miklu þensluskeiði
fyrir hrun. Var það skynsamlegt? Í
ljósi sögunnar þá var það ekki. Eig
um við ekki að reyna að læra svolítið
af sögunni?“
Þorgerður segir að það hafi verið
á hennar ábyrgð að verja menntamál
og menningarmál eins og hægt væri
eftir hrun og hún sé í meginatrið
um þokkalega ánægð með hvernig
það hafi tekist, þrátt fyrir að auðvitað
hafi verið hægt að gera betur. Lögð
var áhersla á að opna háskólana til
að mæta stöðunni á vinnumarkaði
og auka fullorðinsfræðslu. Þorgerð
ur hrósar Katrínu Jakobsdóttur sem
tók við sem menntamálaráðherra
á eftir henni fyrir það hvernig hún
hélt áfram með þá stefnu, að tryggja
menntakerfið eftir föngum.
Sumt bíður ævisögunnar
En bankahrunið hafði líka persónu
leg áhrif á Þorgerði, í meira mæli
en margan annan. Þorgerður sagði
af sér sem varaformaður Sjálfstæð
isflokksins og sagði sig tímabundið
frá þingmennsku í apríl 2010. Hún
gaf síðan ekki kost á sér til áfram
haldandi þingsetu við kosningarn
ar árið 2013. Ástæðan var umfjöllun
um skuldamál Kristjáns, eiginmanns
hennar, en hann var einn stjórnenda
Kaupþings á árunum fyrir hrun.
Skuldamálin ollu hins vegar
mikilli úlfúð og meðal annars var
mótmælt ítrekað fyrir utan heimili
Þorgerðar þar sem mótmælendur
kröfðust þess að hún segði af sér
þingmennsku. Þorgerður sagði að
endingu af sér sem varaformaður
Sjálfstæðisflokksins og vék af þingi
með þeim orðum að hún teldi að
það væri best fyrir flokkinn að hún
viki á meðan að málin yrðu skýrð.
Þegar Þorgerður er spurð hvort
henni hafi þótt hún fá nægilegan
stuðning frá Sjálfstæðisflokknum
þegar þessi mál voru í hámæli vill
hún lítið fara út í þá sálma. „Mér
finnst bara í dag, þegar ég er að
koma aftur inn í pólitíkina, þá fæ ég
ekkert út úr því að vera að tala um
Sjálfstæðisflokkinn. Mínir tímar þar
voru almennt góðir, auðvitað urðu
einhver sárindi eins og gengur, en
ég held að ég muni frekar tíunda
þetta þegar og ef ævisaga mín
kemur út.“
Forréttindi að fá að búa til
frjálslynt afl
En hafði þetta áhrif á það að þú
ákvaðst nú, fyrir þessar kosningar,
að ganga til liðs við Viðreisn og fara
fram í kosningum fyrir þann flokk? Af
hverju tókst þú þá ákvörðun?
„Mér fannst rétt á sínum tíma að
stíga til hliðar eftir þetta mikla rót og
tel mig hafa lært af því. Ég hélt í raun
að ég væri alfarið hætt í pólitík. Svo
gerist það að þegar maður er farin út
úr pólitíkinni og er óháður öllu, þá
leitar maður kannski svolítið í ræt
urnar. Leitar í það sem maður var
alinn upp við og hjá mér var grund
vallartónninn, þetta frjálslyndi. Sjálf
stæðisflokkurinn var kannski áður
með breiðari skírskotun málefna
lega en nú er. Þetta segi ég af fullri
vinsemd og virðingu við þá sem nú
starfa í flokknum. En ég held að það
sé engin tilviljun að flokkurinn er í
dag undir 30 prósentum á meðan
að hann var alltaf nær 40 prósent
um í fylgi á árum áður. Það sem dró
mig inn í Viðreisn var þessi grund
vallarhugmyndafræði um frjáls
lyndi og svo kannski ákveðinn svona
sprotahugsunarháttur. Í Viðreisn eru
engin tabú, menn ræða sig í gegnum
allt með frjálslyndi að leiðarljósi og
það er dásamlegt og algjör forréttindi
að vera með í að búa til svona frjáls
lynt afl eins og Viðreisn er.“
Ekki auðvelt að yfirgefa
Sjálfstæðisflokkinn
Þorgerður segir þó að það hafi ekki
verið auðvelt að yfirgefa Sjálfstæðis
flokkinn og ganga til liðs við Við
reisn. Í Sjálfstæðisflokknum hafi hún
átt vini og stuðningsmenn og hún
hafi ekki getað gert þá kröfu til sinna
stuðningsmanna að þeir fylgdu
henni. „En fyrst ég var að koma aftur
varð ég að vera 100 prósent sátt við
það sem ég var að gera. Þá skipti
hugmyndafræðin og málefnin mig
öllu máli. Ég fann mig í stefnu Við
reisnar.“
Þorgerður segir að henni þyki
sem margt hafi breyst frá því að
hún, tímabundið eins og nú er orðið
ljóst, kvaddi stjórnmálin „Mér finnst
dýnamíkin í íslenskri pólitík vera
orðin mun meiri núna en hún var
fyrir fjórum árum þegar ég hætti,
skoðanaskiptin eru hreinskiptnari
og sett fram af meiri virðingu, og það
er hlustað. Enn sem komið er í það
minnsta. Mér finnst forréttindi að fá
að taka þátt í þessu, mér finnst þessi
pólitík sjúklega skemmtileg.“
Er ekki mikil Pollýanna
Erum við þá að lifa nýja pólitíska
tíma sem þú heldur að endist, með
nýjum vinnubrögðum og betri sam-
skiptum milli fólks og milli flokka?
„Já, ég er ekki gjörn á að vera eins
og Pollýanna. Stundum er ég raunar
óþarflega leiðinlega raunsæ. Ég bind
hins vegar vonir við þessar stjórnar
myndunarviðræður sem núna hafa
staðið í sjö vikur. Viðræðurnar hafa
leitt til þess að það eru að hrynja for
dóma og fyrirvaramúrar sem stund
um hafa verið milli flokka áður. Ég
vona að þetta skili sér í því að sú
stjórn sem verður mynduð, ég veit
ekki hver hún verður, tileinki sér
önnur vinnubrögð en hafa tíðkast.
Að hún reyni eftir megni að teygja
sig til þeirrar stjórnarandstöðu sem
mun sitja á Alþingi. Að menn reyni
að nýta þá möguleika sem mér finn
ast vera til til að taka upp ný vinnu
brögð, nýja hugsun og vinna saman
í miklu meira mæli en verið hefur.“
Ómaklega vegið að
flokksleiðtogum
Þorgerður færist öll í aukana við
þetta umræðuefni. „Í sjö vikur
höfum við rætt málefni. Það
„Mér finnst bara í
dag, þegar ég er að
koma aftur inn í pólitíkina,
þá fæ ég ekkert út úr því
að vera að tala um Sjálf-
stæðisflokkinn.
Sumt bíður ævisögunnar Þorgerður
segir að tími hennar í Sjálfstæðisflokknum
hafi verið góður en vill þó ekki fara náið út í
viðskilnaðinn við flokkinn. Sumt verði að fá
að bíða ævisögunnar. Mynd SigtRygguR ARi