Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 30
Helgarblað 16.–19. desember 201622 Fólk Viðtal
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21
er flokkunum öllum til hróss. Það
er ekki verið að tala um hver fær
hvaða stóla heldur hvernig menn
geta nálgast hver annan. Það er búið
að hrauna yfir Óttar, það er búið að
hrauna yfir Benedikt og núna síðast
Kötu og mér finnst það satt best að
segja ómaklegt. Öll hafa þau lagt sitt
fram í hugmyndafræðilega umræðu,
menn hafa lagt sitt fram og nálgast
miklu meira en umræðan í dag gefur
til kynna. Það sama gildir um Pírata
sem eru dýrmæt viðbót við flóruna
á Alþingi. Mér hefur fundist sárt að
sjá hvernig lamið er á þessu fólki
í umræðunni því það hefur staðið
í þessu af heilindum. Menn þurfa
ekki að fara í einhverja pissukeppni
um hver sé bestur í hverju, það er
bara verið að ræða um og takast
á um málefni. Við erum öll að tala
fyrir heilbrigðis- og menntamál-
um. Það voru allir á sama máli þar,
í þessum fimm flokka viðræðum,
og þó að einhver vilji setja meiri út-
gjöld í eitthvað gerir það ekki aðra
að verra fólki. Það þarf ekki alltaf að
fara í manninn.“
Voru tilbúin að skoða
hátekjuskatt
En kemur nokkuð á óvart að það
reyndist erfitt að brúa bilið milli t.d.
Vinstri grænna og Viðreisnar í ríkis-
fjármálum? Þetta eru flokkar hvor
sínum megin á pólitíska litrófinu, þar
sem annar flokkurinn vill beita skatt-
kerfinu sem jöfnunartæki en hinn
flokkurinn vill minni afskipti ríkisins
og meðal annars í skattheimtu?
„Ég held nú samt að þessir
flokkar geti alveg nálgast hvor annan
í skattamálum til að mynda. Við í
Viðreisn ætlum ekki að lækka skatta
bara til þess eins að geta sagt að við
höfum gert það. Í kosningabarátt-
unni og eftir kosningar höfum við
verið skýr með að við teljum ekki rétt
að lækka skatta núna þegar blasir við
að það þarf að forgangsraða í þágu
heilbrigðismála og menntamála og
á meðan verið er að greiða niður
skuldir ríkisins. Þetta á ekki síst við
núna þegar við erum að detta inn í
þenslutímabil, þá er ekki skynsam-
legt að lækka skatta og erum við al-
veg ófeimin við að segja það. Við
viljum hins vegar ekki hækka skatta
á almenning, við viljum þess í stað
setja ákveðin gjöld á atvinnugreinar
eins og sjávarútveginn og ferðaþjón-
ustuna og við viljum leggja á græna
skatta. Þetta er eitthvað sem á alveg
að vera hægt að brúa. Við vorum til-
búin til að skoða álagningu hátekju-
skatts en gegn því að við fengjum
einhverjar breytingar í landbúnaði
og sjávarútvegi. Okkur hugnaðist
hins vegar ekki hugmyndir um auð-
legðarskatt eða eignaskatt.“
Vantaði meira frjálslyndi
Voru vonbrigði að ekki skyldi nást
samkomulag um fimm flokka stjórn?
„Það var mjög áhugavert og lær-
dómsríkt að taka þátt í þeirri tilraun
og mér fannst það Pírötum til hróss
hvernig þau stýrðu þessum viðræð-
um. Það má líka segja að þetta hefði
verið áhugaverð lýðræðisleg tilraun,
ef saman hefði gengið. Á endanum
var það bara svo að við vorum búin
að tala okkur niður á það að við náð-
um ekki saman, að þessu sinni.“
Hefði þér hugnast betur að ná
saman þessari fimm flokka stjórn en
stjórn með Sjálfstæðisflokknum, eins
og einnig hefur verið reynt?
„Það sem ég vil sjá er frjálslyndi.
Mér fannst á endanum ekki ríkja
nógu mikið frjálslyndi í sjávarút-
vegs- og landbúnaðarmálum í við-
ræðunum. Með þessu er ég ekki að
segja að það eigi að kollvarpa þess-
um atvinnugreinum. Við viljum
leggja okkur fram um að ná meiri
sátt en útvegurinn verður að greiða
hærra gjald til þjóðarinnar en nú
er. Við sjáum það fyrir okkur gert í
gegnum markaðinn. Það hefði verið
margt frjálslynt í þessari fimm flokka
stjórn en það er líka hægt að ná því
fram öðru vísi. Það var margt mjög
álitlegt farið af stað í viðræðum milli
Sjálfstæðisflokksins, Bjartrar fram-
tíðar og okkar en Sjálfstæðisflokk-
urinn sleit því á endanum og þá er
það bara þannig.“
Hvað gerist núna?
„Það á ekki að vanmeta að þær
viðræður sem hafa farið fram hafa
skipt máli. Nú þekkist fólk betur
persónulega og það er jákvætt. Línur
ættu að vera orðnar skýrari um hvaða
möguleikar standa nú til boða. Er
það einhver meirihlutastjórn eða
minnihlutastjórn sem ýmsir tala
um? Það er erfitt að segja hvað verð-
ur. Ég er allavega búin að komast
að því að ég get unnið með öllum
hér á þingi. Framsóknarflokkurinn
hefur ekkert verið með í þessum
viðræðum og að hluta til finnst mér
það synd því þar eru margir góðir
einstaklingar innanborðs sem vel er
hægt að vinna með.“
Jólin koma samt
Jólin nálgast og Þorgerður seg-
ir að hún sé mikið jólabarn. Verk-
efni síðustu vikna hafi hins vegar
tekið mikinn tíma og nú sé hún með
seinni skipunum í undirbúningi jól-
anna. „Ég ákvað að senda ekki jóla-
kort í fyrsta sinn í þrjátíu og eitthvað
ár og einbeita mér frekar að því að
byrja að kaupa jólagjafir. Það er smá
hnútur í maganum á kvöldin, það á
eftir að gera ísinn, rauðkálið, ham-
fletta rjúpurnar og ég veit ekki hvað.
En jólin koma nú samt.“ n
Voru tilbúin að skoða hátekjuskatt Þorgerður segir að þing-
menn Viðreisnar hafi verið tilbúnir til að skoða álagningu hátekju-
skatts í fimm flokka viðræðunum. Þau hafi hins vegar ekki getað
fallist á hugmyndir Vinstri grænna um auðlegðarskatt. Mynd Sigtryggur Ari