Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Síða 32
Helgarblað 16.–19. desember 201624 Sport
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur
V
arnarmaðurinn Sergio
Ramos, fyrirliði Real
Madrid, stefnir hraðbyri
að sínu besta markaskor-
unartímabili á ferlinum,
en spænski landsliðsmaðurinn er
þegar kominn með 4 mörk í 9 leikj-
um í La Liga. Besti árangur hans
er fimm deildarmörk tímabilin
2006/07 og 2007/08 sem nokkuð
ljóst er að hann muni slá ef fram
heldur sem horfir.
Þessi markheppni miðvörður
hefur allan sinn feril verið iðinn við
kolann í markaskorun og þá ekki
síst þegar mest liggur við. Hann
á kannski metið í fjölda rauðra
spjalda á Spáni, en þegar kemur að
því að þurfa mark á lokamínútum
leikja eru fáir sem betra er að hafa
í markteig andstæðinganna en
Sergio Ramos. Hugrekki hans, styrk-
ur og kjarkur gerir það að verkum
að hann er alltaf líklegur til að ná til
boltans með höfðinu og næla í mörk
sem ráðið geta úrslitum.
Ótrúleg tölfræði
Ramos, sem stendur á þrítugu, stát-
ar af þeirri ótrúlegu tölfræði að
vera búinn að skora 63 mörk í 492
leikjum í öllum keppnum fyrir Real
Madrid frá því að hann gekk til liðs
við félagið árið 2005 frá Sevilla.
Þar að auki hefur hann lagt upp
35 mörk fyrir samherja sína og því
komið beint og óbeint að 98 mörk-
um Real á ferlinum. Ekki dónalegt
hjá miðverði/bakverði í liði sem alla
tíð hefur haft á að skipa heimsklassa
framherjum sem séð hafa um að
raða inn mörkum. Þá eru ótalin
mörkin 10 sem hann hefur skorað í
140 landsleikjum fyrir Spán.
Rauð spjöld og flautumörk
Á meðan tíð rauð spjöld eru eitt-
hvað sem háð hefur Ramos á ferl-
inum, hann hefur 21 sinni fengið
reisupasann, þá hefur hann alltaf
bætt það upp með mörkum sínum.
Og síðastliðin misseri ekki síst með
mikilvægum mörkum á lokamínút-
um leikja. Þar af tvö í síðastliðnum
tveimur deildarleikjum Real, bæði í
uppbótartíma.
Hér eru fjögur valin flautumörk
miðvarðarins markheppna síðustu
árin. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Miðvörðurinn
markheppni
n Sergio Ramos skorað 63 mörk
í 492 leikjum n Leiknum ekki
lokið fyrr en Ramos skorar í
uppbótartíma
Eins og framherji
Ramos hefur fengið að
fagna mörkum oftar en
flestir varnarmenn í bolt-
anum í dag. Hann hefur
einstakt lag á að bjarga
liði sínu á lokamínútum
leikja. Mynd EPA
Úrslitaleikur Meistaradeildar
Evrópu 2014 Real var að leika sinn
fyrsta úrslitaleik frá 2002 og var undir
1-0 gegn erkifjendunum í Atletico Ma-
drid. Í uppbótartíma reis Ramos manna
hæst í teignum og hamraði boltann í
netið með höfðinu. Real gekk síðan frá
Atletico í framlengingu, lokatölur 4-1 og
tíundi Evróputitill liðsins í höfn. Mynd EPA
Úrslitaleikur Uefa Super Cup 2014 Í ágúst 2014 mættust meistarar meistaranna
í Evrópu, Real Madrid og Sevilla, í Ofurbikar Uefa. Ramos hafði gefið klaufalega víta-
spyrnu í seinni hálfleik og Sevilla komst yfir 2-1 í kjölfarið. En Ramos sýndi karakter sinn
og styrk og jafnaði á 3. mínútu uppbótartíma og tryggði Real framlengingu á ný. Dani
Carvajal skoraði sigurmark Real í framlengingu á 119. mínútu. Mynd EPA
Tvö í röð Annan deildarleikinn í röð var Ramos mættur í
teig andstæðinganna í uppbótartíma, nú gegn Deportivo La
Coruna þann 10. desember síðastliðinn. Markið tryggði Real
3-2 sigur í leiknum og 6 stiga forystu á toppi La Liga. Mynd EPA
Mikilvægt mark í El
Clásico Ramos fagnar hér
marki sínu í uppbótartíma
gegn Barcelona 3. desember
síðastliðinn. Markið tryggði
Real 1-1 jafntefli gegn erki-
óvinunum. Mynd EPA