Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Side 48
Helgarblað 16.–19. desember 2016
99. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Og hún
vill fá þær á
stundinni!
Hjörvar horfir á
HM í pílukasti
n Íþróttafréttamaðurinn og
sjónvarpsmaðurinn góðkunni,
Hjörvar Hafliðason, er alæta á
íþróttir en eitt af því skemmtileg-
asta sem hann gerir er að horfa á
pílukast. Milli jóla og nýárs mun
langþráður draumur Hjörvars
rætast en þá heldur hann til
Lundúna til að horfa á HM í pílu-
kasti í Alexandra Palace. Hjörvar
greindi frá þessu
á Twitter-síðu
sinni þar sem
hann birti
mynd af bók-
uninni á mótið
sem fer fram
þann 29. des-
ember. „Já, já.
Þetta verður öm-
urlegt,“ sagði
hann í
stuttri
færslu.
Alfreð í jólaskapi
n Íslenski landsliðsframherj-
inn Alfreð Finnbogason, sem
leikur með FC Augsburg í þýsku
Bundesligunni, tók sér pásu
frá knattspyrnunni á dögunum
og ákvað að útdeila smá jóla-
skapi. Íbúum Augsburg veitir
ekki af að gleyma gengi liðsins á
vellinum og finna sér annað til
að gleðjast yfir og þar kom Al-
freð sterkur inn. Á Twitter-síðu
liðsins mátti sjá mynd af Alfreð
útdeila jólaglögg á jólamark-
aði í borginni. Viðskiptavinirn-
ir virtust kunna
vel að meta
brjóstbirt-
una og Al-
freð bar sig
fagmann-
lega að. Aðeins
nokkrum dögum
síðar var þjálf-
ari Alfreðs rekinn,
en liðið situr sem
stendur í 13. sæti
Bundesligunnar.
Ásdís ögrandi á
heimaslóð
n Athafnakonan Ásdís Rán
Gunnarsdóttir birti myndir úr
nýjasta fyrirsætuverkefni sínu á
Facebook-síðu sinni á fimmtudag.
Þar deilir hún tveimur myndum
sem lofa góðu og upplýsir Ásdís
að myndaserían beri yfirskriftina
„Getto girl“ og að myndirnar séu
teknar í Breiðholti þar sem hún
hafi alist upp.
Ljósmyndarinn er Saga Sig og
af sýnishornunum að dæma verð-
ur um afar töff og
sjóðheita seríu
að ræða. Ásdís
er þar klædd í
svart leður
frá toppi
til táar
með
derhúfu
merkta sér
á höfð-
inu.
A
rnþrúður Karlsdóttir hefur
fyrir hönd Útvarps Sögu
stefnt Stundinni. Krefst hún
7,5 milljóna króna í bætur.
Málið var þingfest í héraðsdómi síð-
astliðinn þriðjudag. Málið varðar
notkun á ljósmynd sem Stundin
birti fyrst á vef sínum í mars 2015 en
titill greinarinnar var „ Arnþrúður
klæddi sig í búrku“. Þá sagði í upp-
hafi greinarinnar að Arnþrúður
hefði varpað fram eftirfarandi
spurningu: „Munu útvarpsmenn
framtíðarinnar líta svona út?“
Í stuttu samtali við DV sagði
Arnþrúður að hugmyndin hefði
kviknað eftir umræðu í samfélaginu
um mögulega peningagjöf frá Sádi-
Arabíu vegna byggingar mosku í
Reykjavík.
Í stefnunni segir að myndin hafi
verið birt 15 sinnum og fer Útvarp
Saga fram á 500 þúsund krónur í
bætur fyrir hverja birtingu.
„Þetta er ekki blaðamennska.
Þetta eru skipulögð níðskrif,“ segir
Arnþrúður. „Myndin er ítrekað not-
uð með níðskrifum um stöðina og
mig persónulega. Ég neyðist til að
fara þessa leið. Það hefur verið ósk-
að eftir því að myndin verði ekki
notuð, vegna þess að þetta er ekki
búrka en Stundin ákvað að svo
væri.“
Málið er rekið af Lárusi
Sigurði Lárussyni og var
það þingfest nú í vikunni.
Þar segir að myndin hafi
verið birt á tímabilinu
6. mars 2015 til 13.
júlí 2016. Þann 13.
júlí skrifaði Áslaug
Karen Jóhanns-
dóttir grein þar
sem hún greindi frá
hótunum sem henni
bárust eftir grein sem
hún skrifaði um Út-
varp Sögu. Ef myndin var birt í þeirri
umfjöllun, þá er hana alla vega ekki
lengur að finna þar. Aðspurð af
hverju hafi ekki verið orðið
við því að hætta að nota
myndina svarar Arn-
þrúður: „Þetta er bara
Reynir Trausta-
son gegn mér og
Útvarpi Sögu.“
Hún bætir við að
Reynir hafi haft
horn í síðu henn-
ar og stöðvarinnar
frá árinu 2004.
„Við höfum
aldrei fengið skýr-
ingar á því. Við höfum margsinnis
óskað eftir að fá að vita af hverju
það stafar en aldrei fengið svör.“ n
Arnþrúður vill 7,5 milljónir frá Stundinni