Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Qupperneq 6
Vikublað 20.–21. desember 20166 Fréttir
Pingpong.is - Síðumúli 35 (að neðanverðu) , Reykjavík - S: 568 3920 & 897 1715
Borðtennis
er fyrir alla!
BorðtennisBorð
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann
hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum
mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða
varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Þ
etta er hræðilega sorglegt.
Ég og Brynjar misstum föður
okkar á táningsaldri þannig
að maður getur að einhverju
leyti sett sig í spor dóttur
hans. Hún er hins vegar bara sjö ára
gömul þannig að maður veit ekki al
veg hvort hún átti sig á hversu endan
legt þetta er,“ segir Jón Gunnar Bjark
an í samtali við DV. Eldri bróðir Jóns
Gunnars, Brynjar Már Bjarkan, lést
í Kenía þann 28. nóvember síðast
liðinn, aðeins 38 ára gamall. Um
hörmulegt slys var að ræða en niður
staða krufningar var sú að Brynjar
Már hefði kafnað á mat eftir að hafa
hnigið niður á hótelherbergi sínu.
Hann hafði þá aðeins dvalið tvo daga
í landinu. Brynjar Már lætur eftir sig
sjö ára gamla einkadóttur, Berglindi
Ninju, en vinir og ættingjar hafa blás
ið til söfnunar fyrir ungu stúlkuna.
Fékk forsetastyrk í HR
Brynjar Már var jarðsettur í gær,
mánudag, við fallega athöfn frá
Grafar vogskirkju. „Hann var sannur
vinur vinna sinna og vinmargur eftir
því. Það voru örugglega um fjög
ur hundruð manns sem mættu og
okkur fjölskyldunni þótti afar vænt
um það,“ segir Jón Gunnar. Hann tal
ar hlýlega um bróður sinn sem var
margt til lista lagt. Brynjar Már hafi
verið afburðanámsmaður en áfengið
hafði verið honum fjötur um fót.
„Hann tók fyrsta árið í viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík og rúllaði því
upp, þrátt fyrir að sinna fullri vinnu.
Hann fékk boð um svokallaðan for
setastyrk og þar með ókeypis skóla
gjöld. En þá féll hann því miður og
flosnaði upp úr náminu,“ segir Jón
Gunnar.
„Lífið lék við hann“
Það hafi þó einkennt Brynjar Má
að hann hafi ekki látið í minni pok
ann fyrir breyskleika sínum heldur
barist af harðfylgi og haft sigur. „Síð
ustu fjögur ár voru búin að vera hans
bestu og hann var afar hamingju
samur. Hann menntaði sig í húsa
smíði og vann við smíðarnar. Að auki
vann hann með
mér við hug
búnaðar
gerð hjá
banda
rísku
tækni
fyrir
tæki.
Hann
var
byrj
aður að
þéna
afar vel
og lífið
lék við
hann,“
segir Jón
Gunnar. Brynjar
Már hafi ferð
ast víða á þessu
tímabili og
þar á meðal
farið
í ógleymanlega ferð með stórfjöl
skyldunni til Frakklands í sumar að
fylgjast með íslenska landsliðinu.
„Við eigum eftir að lifa lengi á þeim
minningum,“ segir Jón Gunnar.
Fullt hótelherbergi af gjöfum
Það sem skipti Brynjar Má þó öllu
máli var dóttir hans, hin sjö ára
gamla Berglind Ninja. „Hann elskaði
hana gjörsamlega út af lífinu og var
frábær pabbi. Hann bauð henni ný
lega í pabbaferð til Kaupmanna
hafnar og var ótrúlega duglegur að
gera alls konar skemmtilega hluti
með henni,“ segir Jón Gunnar. Þegar
fjölskyldan fékk tilkynningu um
andlátið þá fór systir þeirra bræðra,
sem búsett er í Frakklandi, til Kenía
til þess að bera kennsl á líkið og taka
saman veraldlegar eigur hans þar.
Þegar hún kom inn á hótelherbergið
þar sem harmleikurinn átti sér stað
þá var það fullt af ýmsum gjöfum og
munum handa Berglindi Ninju.
Eins og gefur að skilja verða
jólin þungbær fyrir ættingja og vini
Brynjars Más. „Hann var nýlega
fluttur í íbúð í Vesturbænum
sem að hann var afar stoltur
af. Hann vildi endilega bjóða
fjölskyldunni til sín um jólin
og það höfðum við ákveðið.
Núna er hann farinn en
við ætlum engu að síður
að hittast öll í íbúðinni
hans, halda jólin hátíð
leg og minnast hans,“
segir Jón Gunnar.
Þeir lesendur
sem vilja styðja dóttur
Brynjars, Berglindi Ninju,
er bent á eftirfarandi reikn
ingsupplýsingar: 011418
750869, kennitala 091009
2340. n
„Hann var
frábær pabbi“
n brynjar Már varð bráðkvaddur í Kenía n Lætur eftir sig sjö ára einkadóttur
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Harmleikur Brynjar
Már Bjarkan lést með
sviplegum hætti í Kenía.
„núna er hann farinn en við
ætlum engu að síður að
hittast öll í íbúðinni hans, halda
jólin hátíðleg og minnast hans.