Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Síða 8
Vikublað 20.–21. desember 20168 Fréttir F járfestingarsjóður á vegum bandaríska eignastýringar­ fyrirtækisins Eaton Vance Management komst nýlega í hóp stærstu hluthafa Icelandair Group með tæplega eins prósents eignarhlut. Sjóðurinn Global Macro Portfolio, sem hefur fjárfest í fjölmörgum skráðum félög­ um á Íslandi á undanförnum miss­ erum, er eini erlendi fjárfestirinn sem kemst á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa flugfélagsins. Sé tekið mið af núverandi markaðsvirði Icelandair, sem er um 115 milljarðar króna, þá er hlutur bandaríska sjóðsins metinn á liðlega 1.150 milljónir króna. Fjárfestingarsjóðurinn, sem er stýrt af Boston Research Management, dótturfélagi Eaton Vance, hóf fyrst að kaupa bréf í Icelandair fyrr á þessu ári og bætti síðan talsvert við eignarhlut sinn í flugfélaginu síðastliðið haust. Þá hefur annar sjóður á vegum Eaton Vance – Global Macro Absolute Ret­ urn Advantage – jafnframt staðið að kaupum á bréfum í Icelandair á ár­ inu, samkvæmt upplýsingum DV. Sú fjárfesting hefur hins vegar verið smærri í sniðum og því ekki skilað sjóðnum á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa félagsins. Sjóðirnir byrjuðu að fjárfesta á íslenskum hlutabréfamarkaði, eins og áður hefur verið fjallað um á síð­ um DV, fljótlega eftir að stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun sína um los­ un fjármagnshafta í júní 2015. Eru þeir í reynd einu erlendu fjárfest­ arnir sem hafa gert sig gildandi á hlutabréfamarkaði hérlendis svo einhverju nemi eftir fjármálaáfallið haustið 2008. Þannig voru sjóðirnir í lok síðustu viku á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa í sex skráðum fé­ lögum – Icelandair, Högum, Reitum, HB Granda, Símanum og Eimskip­ um – og nemur samanlagt mark­ aðsvirði eignarhlutanna um 7,5 milljörðum króna. Þá komst Global Macro Portfolio sömuleiðis um tíma í hóp stærstu eigenda fasteignafé­ lagsins Regins í októbermánuði síð­ astliðnum með 1,12 prósenta hlut. Varlega áætlað eiga bandarísku sjóðirnir tveir samtals um eitt pró­ sent af heildarhlutafé á íslenskum hlutabréfamarkaði. Lítið um erlenda fjárfesta Þrátt fyrir erfitt árferði á markaði það sem af er þessu ári – Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um níu prósent – þá vegur á móti að gengi krónunnar hefur styrkst um liðlega fimmtán prósent gagnvart Banda­ ríkjadal. Fjárfesting sjóða Eaton Vance á íslenskum hlutabréfamark­ aði hefur því almennt skilað þeim ágætis ávöxtun. Þetta á ekki síst við um félög á borð við Eimskip og Haga en gengi bréfa þeirra hefur hækkað mikið á árinu. Annað gildir hins vegar um fjárfestingu sjóða Eaton Vance í Icelandair en hlutabréf fyrirtækisins hafa lækkaði í verði um meira en 32% frá áramótum eftir að leiðrétt hefur verið fyrir arðgreiðslum. Ef undan er skilið árið 2009, þegar aðeins 0,2 prósenta hlutur skilaði DnB NOR Bank ASA í hóp tuttugu stærstu hluthafa Icelandair, þarf að fara allt aftur til 2006 til að finna er­ lenda fjárfesta sem komust inn á lista yfir stærstu hluthafa flugfélags­ ins. Þá áttu erlendir fjárfestar sam­ anlagt liðlega þriggja prósenta hlut í félaginu og nam eignarhlutur þess stærsta – Credit Suisse Securities Europe – 0,9 prósentum. Samkvæmt ársskýrslum Icelandair Group fyrir árin 2007 og 2008 nam samanlagður eignarhlutur erlendra fjárfesta í fyrir­ tækinu hins vegar aðeins um 1,2 pró­ sentum. Enginn í hópi þeirra hluthafa var á meðal tuttugu stærstu eigenda félagsins. Fá óháða matsmenn Kaup sjóðanna í skráðum íslenskum félögum eru ekki síst áhugaverð fyrir þær sakir að Eaton Vance er á meðal þeirra bandarísku fjár­ festingarsjóða sem kanna núna þann möguleika að höfða málsókn á hendur íslenska ríkinu vegna frum­ varps fjármálaráðherra um meðferð aflandskrónueigna. Eaton Vance er sem kunnugt er á meðal stærstu aflandskrónueigenda – sjóðurinn á aflandskrónur fyrir meira en 30 milljarða – og féllst ekki á þau skil­ yrði sem voru sett í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands í sumar til að leysa út aflandskrónueignir að fjár­ hæð samtals 320 milljarða. DV greindi frá því 6. desember síðastliðinn að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði fallist á beiðni Eaton Vance og bandaríska vog­ unarsjóðsins Discovery Capital, sem er jafnframt stór aflandskrónu­ eigandi, um að skipaðir verði tveir óháðir erlendir matsmenn sem eiga að meta þær efnahagslegur forsendur sem lágu til grundvallar aðgerðum íslenskra stjórnvalda um meðferð aflandskrónueigna. Telja sjóðirnir að aðgerðirnar sem gripið var til verði ekki réttlættar með vísan til efnahagslegrar nauðsynjar. Skömmu áður hafði Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að frumvarp ráð­ herra væri í samræmi við skuld­ bindingar Íslands gagnvart EES­ samningnum. Tók stofnunin því ekki undir kvartanir sömu aflandskrónueigenda þess efnis að aðgerðir ríkisins til að losa höft hafi falið í sér ólögmæta eignaupptöku og brot á jafnræðisreglu stjórnar­ skrárinnar. n Verið ávallt velkomin Almar bakari Bakarí og kaffihús Sunnumörk Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17 Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt að 18 tíma og því notum við engan viðbættan sykur, minna salt og minna ger í hvert og eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu. Bandarískur sjóður eignast eitt prósent í Icelandair n Aflandskrónueigandi á meðal stærstu hluthafa n Umsvifamikill í sex skráðum félögum Hörður Ægisson hordur@dv.is Erfitt gengi Bréf Icelandair hafa lækkað um meira en 32% frá áramótum eftir að leiðrétt hefur verið fyrir arðgreiðslum. Markaðsvirði fyrirtækisins er í dag 115 milljarðar króna. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.