Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Blaðsíða 13
Vikublað 20.–21. desember 2016 Fréttir Erlent 13
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Tilvalin
jólagjöf
fyrir ömmu og afa
Fæst í vefverslun og í verslun
okkar að Höfðabakka 3
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is
Hannyrðab
udin.isNý hei
masíða
Ótrúlegtúrval!
SamSæriSkenningaSmiður
kaStaði upp Svörtum vökva
n var heilsuhraustur en lést skömmu eftir að hafa sent móður sinni dularfull skilaboð n „Ég held að einhver hafi drepið hann“
sig Project Camelot.
Móðirin segir að Max hafi átt
systur og bróður, auk tveggja sona.
Þau séu niðurbrotin. Öll fjölskyld-
an muni berjast fyrir því að komist
verði til botns í málinu. Hann var
borinn til grafar núna í desember,
þótt réttarrannsókn sé ólokið. n
Bandaríkjaher á níunda áratugnum Því er haldið fram að Spiers hafi verið að rann
saka barnaníð innan Bandaríkjahers, sem átt hafi sér stað fyrir þremur áratugum.
Var heilsuhraustur Erfiðlega hefur reynst að fá upplýsingar um dauðsfall Spiers frá
pólskum yfirvöldum.
vill daglegar aftökur
Rodrigo Duterte vill hengja glæpamenn og spara byssukúlur
F
orystumenn innan kaþólsku
kirkjunnar á Filippseyjum og
mannréttindasamtök þar í landi
fordæmdu á sunnudag áform
Rodrigos Duterte, forseta landsins,
um að taka upp dauðarefsingu á nýj-
an leik og aflífa daglega fimm til sex
glæpamenn. Forsetinn hefur sett inn-
leiðingu dauðarefsinga á oddinn í
baráttu sinni gegn glæpum sem hef-
ur nú þegar kostað 5.300 manns lífið.
Duterte lofaði því um síðustu
helgi að hann myndi sjá til þess að
dauðarefsingum yrði beitt fari svo
að þær verði aftur leyfðar. Í raun tel-
ur hann að þær hafi aldrei verið
afnumdar heldur að þær hafi einung-
is ekki verið notaðar. Um 80 prósent
Filippseyinga tilheyra kaþólsku kirkj-
unni en þrýstingur frá henni leiddi
til þess að refsingin var afnumin fyr-
ir áratug. Þegar Duterte tók við emb-
ætti í júní lofaði hann því að innleiða
hengingar svo spara mætti byssukúl-
ur. Snaran er að hans mati mannúð-
legri leið til að taka líf. n
Forsetinn Rodrigo Duterte er umdeildur
enda látið ýmislegt flakka síðan Filipps
eyingar völdu sér forseta í júní. Mynd EPA
Létust eftir að hafa
drukkið baðolíu
Ótímabær dauðsföll í rússnesku borginni Irkutsk
r
ússnesk rannsóknarnefnd tel-
ur að ótímabær dauðsföll um
40 íbúa borgarinnar Irkutsk í
Síberíu megi rekja til drykkju
á baðolíu. Sextán til viðbótar eru nú
í lífshættu og hefur lögreglan gert olí-
una upptæka.
Olían sem um ræðir heitir Boyar-
yshnik eða þyrnir og inniheldur ban-
væna efnið metanól sem er meðal
annars notað í frostlög og sem elds-
neyti. Allir íbúar Irkutsk sem létust
voru fátækir og á aldrinum 35 til 50
ára. Rússnesk yfirvöld hafa staðfest
að þeir voru ekki allir samankomn-
ir á einum og sama staðnum þegar
þeir drukku baðolíuna og telja þau því
að varan hafi verið markaðssett sem
áfengur vímugjafi. Tveir eru í haldi
lögreglunnar vegna málsins en vitað
er hvar olían var seld. Á umbúðum
vörunnar er varað við drykkju hennar
en þar segir einnig að olían sé 93 pró-
sent spíri.
Ýmsar heimilisvörur sem inni-
halda alkóhól eru innbyrtar í stað
áfengis af mörgum úr neðri stétt-
um Sovétríkjanna fyrrverandi. Olían
inniheldur aftur á móti ekkert alkó-
hól heldur einungis hið áðurnefnda
metanól. Talsmaður Vladimírs Pútín
Rússlandsforseta sagði atburðinn
vera „skelfilegan harmleik“ og Dmitry
Medvedev, forsætisráðherra lands-
ins, telur stjórnvöld þurfa að banna
baðolíuna og allar sambærilegar vör-
ur. Um 20 prósent af alkóhóldrykkju
Rússa má rekja til lyfja eða ilmvatna. n