Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Qupperneq 14
Vikublað 20.–21. desember 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Peningar eru ekki allt
Huggun Samfó
Til er málsháttur upp á
enska tungu sem útleggst í
íslenskri þýðingu eitthvað
á þá leið að þar sem tveir
komi saman sé samkoma en
þar sem þrír koma saman sé
margmenni. Þetta virðist ætla
að sannast á Samfylkingunni.
Fullyrt er að þriggja manna
þingflokkurinn hafi klofnað í
stjórnarmyndunarviðræðum
flokkanna fimm sem upp úr
slitnaði á dögunum. Mun
átakalínan hafa snúist um
hvort fylgja átti Vinstri grænum
að málum í
viðræðunum
eða halla sér til
hægri. Oddný
Harðardóttir mun
hafa viljað fylgja
Vinstri grænum
en flokksbræður
hennar vildu semja við hina
flokkana. Samfylkingin getur þó
huggað sig við að flokkurinn er
enn sem komið er bara klofinn í
tvennt.
Úr vegtyllum að velja
Þrátt fyrir að
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
nú stærstur flokka þegar fylgi
flokka í borgarstjórn er kannað
er takmörkuð ánægja með
framgöngu oddvitan Halldórs
Halldórssonar. Háværar raddir
eru uppi um að
finna þurfi nýjan
oddvita fyrir
næstu kosningar.
Nafn Svanhildar
Hólm Valsdóttur,
aðstoðarkonu
Bjarna
Benediktssonar,
heyrist æ oftar nefnt. Hún
hefur líka verið orðuð við
ráðherraembætti. Það er því
ljóst að Svanhildur er í miklum
metum innan flokksins og gæti
haft úr vegtyllum að velja.
Biðin endalausa
Á
r eftir ár sjáum við sjónvarps-
myndir frá Landspítalanum
þar sem sjúklingum hefur verið
komið fyrir á göngum og í setu-
stofum vegna þess að ekki er pláss fyrir
þá annars staðar. Í sjónvarpsfréttum
fyrir örfáum dögum var sýnd mynd
af sjúklingi sem lá á gangi og notaði
handklæði til að verjast birtunni sem
þar var. Hann var að reyna að festa
svefn. Rætt var við annan sjúkling
sem af æðruleysi sagði að miðað við
fréttir frá Sýrlandi væru þær aðstæð-
ur sem honum væri
boðið upp á ágætlega
boðlegar. Auðvitað
er hneykslan legt að
staðan sé á þennan
veg hjá þjóð sem býr
við mikla velmegun.
Það er vitað að
leggja þarf mun
meiri fjármuni í
heilbrigðis kerfið en
gert er. Um það virt-
ust allir stjórnmála-
flokkar sammála
áður en gengið var
til kosninga. Reyndar
hljómuðu þeir þá
eins og afar samstæð-
ur hallelújakór. Það
kom svosem ekki á
óvart. Fyrir kosningar segja stjórn-
málamenn yfirleitt bara það sem þeir
halda að fólk vilji heyra. Svo kemur að
efndum og þá eru stjórnmálamenn
fljótir að gleyma. Einnig það er hætt
að koma á óvart.
Ástandið er orði svo slæmt að að-
gerða er þörf og það strax. Það er ekki
hægt að bíða endalaust. Við getum
ekki látið það viðgangast lengur að
öryggi sjúklinga sé ógnað og þeir
geymdir hér og þar á sjúkrahúsum
vegna þess að ekki er pláss fyrir þá
á sjúkrastofunum. Enginn vill slíkt
ástand, því þarf að breyta og það
kostar fjármuni.
Það er eins og okkur miði ekkert
áfram þegar kemur að því að bæta
heilbrigðiskerfið. Við sjáum sömu
fréttamyndirnar ár eftir ár af ömurlegri
aðstöðu á sjúkrahúsum. Við heyrum
stöðugt sömu viðtölin við lækna. Það
er engin furða að einn þeirra hafi í
viðtali sagst vera orðinn eins og bil-
uð grammófónplata, hann sé alltaf
að segja sömu hlutina. Sjálfsagt gerir
hann þetta í von um að stjórnvöld fari
að leggja við hlustir fremur en að vera
á harðahlaupum frá málinu.
Stundum finnst manni eins og það
fari óendanlega í taugarnar á stjórn-
málamönnum, sem eru við völd
hverju sinni, þegar forystumenn heil-
brigðisstétta tjá sig um slæma stöðu
mála. Það er eins og stjórnmála-
mennirnir telji ekki æskilegt að læknar
stígi fram í sjónvarpi, leyfi myndatöku
á sjúkrahúsi og sýni áhorfendum hver
staðan raunverulega er. Þarna eru
læknar ekki að fara út fyrir verksvið
sitt. Það er skylda lækna að huga að
velferð og öryggi sjúklinga sinna og
það er sömuleiðis skylda yfirmanna
að láta sig hag starfsmanna varða.
Þeir læknar sem ræða við fjölmiðla
eða skrifa greinar um slæmt ástand á
spítölum gera það ekki vegna þess að
þeir séu athyglissjúkir og þrái að kom-
ast í sjónvarpsviðtal. Þeir eru að vinna
vinnuna sína og benda á ólíðandi
ástand. Fyrir það ber að hrósa þeim,
ekki hreyta í þá ónotum. n
Fæst í helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum
Frábær
jólagjöf!
Augnhvílan getur minnkað þreytu í augum,
hvarmabólgu og haft jákvæð áhrif á augn-
þurrk, vogris, rósroða í hvörmum/augnlokum
og vanstarfsemi í fitukirtlum.
Augnhvílan
Dekraðu við augun
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Við getum ekki
látið það viðgang-
ast lengur að öryggi sjúk-
linga sé ógnað og þeir
geymdir hér og þar á
sjúkrahúsum vegna þess
að ekki er pláss fyrir þá á
sjúkrastofunum.
Mynd ÁSgeir M einarSSOn
Myndin Morgunsöngur á aðventu Börnin í yngstu bekkjum í Laugarnesskóla komu saman og sungu jólalög fyrir skólafélaga sína og foreldra á mánudagsmorgun. Ekki
seinna vænna enda er mánudagurinn víða síðasti formlegi kennsludagur fyrir langþráð jólafrí. Mynd Sigtryggur ari
Hann spurði mig aldrei
um efni þess fyrirfram
Sunna Valgerðardóttir um viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson. – Facebook
Ég er gjörsamlega að
sturlast á þessu ástandi
Helga nótt gísladóttir býr við stöðugt áreiti vegna framkvæmda. – DVFreyr alexandersson landsliðsþjálfari hafnaði boði um þjálfun frá Kína. – visir.is