Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 20.–21. desember 201620 Fréttir
Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048
jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is
Leiktæki
fyrir fatlaða
Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“
Sími 565 1048 - 820 8096
jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is
Útileiktæki: Rólur, vegasölt,
gormatæki, rennibrautir,
leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum
framleiðendum eins og Lappset,
Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck
ofl.
Járnrimlagirðingar fyrir
skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli,
fjölbýlishús og einkalóðir. Þýsk gæði
frá Legi.
Hjólabrettapallar frá Rhino
Ramps í Belgíu, komnir upp víða
um land við frábærar undirtektir
notenda.
Fallvarnarefni: Gúmmíhellur
frá Þýskalandi og gúmmímottur á
gras, þar sem grasið vex upp í gegn
um motturnar og motturnar hlífa
grasinu og virka sem fallvörn.
Leikföng, húsgögn og
búnaður fyrir leikskóla frá
stærsta dreifingaraðila Danmörku,
Lekolar (áður Rabo - Brio).
Mörk og körfur,
útiþrektæki og ýmsar
gerðir af sparkvöllum frá
viðurkenndum framleiðendum eins
og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed
og Saysu.
Bekkir, ruslafötur,
stubbahús, skýli,
reiðhjólagrindur,
trjágrindur, pollar,
ljósastaurar, blómaker ofl.
frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril
Vestre o.fl.
Bændur og hestamenn:
Nótuð plastborð, fjárhúsgólf,
búgarðagirðingar (Dallas), gerði
og girðingarstaurar. úr plasti,
básamottur og fóðurgangamottur.
BJóðuM HeiLdarLausnir á
LeiksvæðuM. uppsetning,
viðHaLd og þJónusta
Leitið tiLBoða
w
w
w
.jo
ha
nn
he
lg
i.i
s
Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33
M
yn
di
r f
rá
F
er
ða
þj
ón
us
tu
nn
i V
at
ns
ho
lti
w
w
w
.s
ta
yi
ni
ce
la
nd
.is
Hvítur fáni
Í desember 2014 flaggaði Gilbert
hvítum fána á Facebook-síðu sinni.
„Hér með hendi ég inn hvítum
fána og af minni hálfu lýsi ég þessu
stríði lokið!“ skrifaði hann.
Jafnframt sagði Gilbert að Hilmar
myndi ekki verða fyrir ónæði frá
honum eða hans fólki. Stríðið væri
komið út fyrir öll velsæmismörk.
„Eftir að ég henti inn hvítum fána
hefur ekki komið eitt púst frá mér.
Hann virti það ekki viðlits og daginn
eftir réðust fimm menn á vin minn
fyrir utan Sporthúsið, aftan frá. Hann
hefur ekki stoppað síðan í hótunum
við fólk nálægt mér eða látið hótanir
berast til mín í gegnum þriðja aðila.“
Árás við Smáralind
DV greindi frá því september í fyrra
að fimm menn hefðu ráðist á Gil-
bert fyrir utan Smáralind. Í fréttinni
sagði að gengið hefði verið í skrokk
á Gilbert og hafnaboltakylfu, kúbeini
og stálröri meðal annars verið beitt
í árásinni. Sagði Gilbert að Sævar
sonur Hilmars og Brynjar Kristens-
son hefðu farið fremstir í flokki. Gil-
bert brotnaði í baki og á rist eftir þau
átök. Hilmar Leifsson tjáði sig einnig
um árásina og sagði fráleitt að sonur
hans hefði staðið fyrir árásinni.
„Þetta er strákur sem er að standa
sig gríðarlega vel,“ sagði Hilmar.
„Hann er á skilorði og var ekki að fara
lemja einn né neinn.“ Hilmar bætti
við að Sævar sonur hans hefði verið
á vettvangi en ekki tekið þátt í slags-
málunum. Við það tækifæri sagði
Hilmar að hann hefði sjálfur orðið
fyrir árásum frá Gilbert og mönnum
tengdum honum. Gilbert hefur hins
vegar aðra sögu að segja og fullyrð-
ir að Sævar hafi stýrt árásinni líkt og
Hilmar hafi gert í Laugum.
„Þeir voru allir vopnaðir og sein-
ustu orð Sævars þegar árásin var að
taka enda voru: „Þetta er ekki búið,
ég drep þig, þetta er rétt að byrja.“ Ég
varðist eins og ég gat en hlaut mikla
áverka, tvö beinbrot og blóðið flæddi
úr mér. Mér tókst að drösla mér inn
í Smáralind og kaupa mér eitthvað
að drekka. Ég var með brot í fæti og
settist niður og hugsaði hvað hefði
gerst. Ég var svo gáttaður á þessum
aumingjaskap. Svo tek ég eftir að ég
stend í polli af blóði og það var blóð
út um allt.“
Gilbert segir lögreglu hafa komið
á staðinn.
„Að sjálfsögðu voru öryggis-
myndavélar bilaðar fyrir utan
Smáralindina rétt eins og fyrir utan
World Class hér um árið. Það virð-
ist allt bila þegar Hilmar og hans
hálfdrættingar eiga í hlut, eða gögn
hverfa eða er fyrir ótrúlega tilvilj-
un hent í ruslið eða týnast. Hvað á
þetta að ganga lengi? Það er nefni-
lega í gegnum tíðina búið að sitja
fyrir mér úti um allt. Það er búið að
sitja fyrir mér niður í Laugum. Það
er búið að ráðast á mig í Smáralind.
Þeir eru búnir að vera í kringum hús-
ið mitt. Ég bjó í Kópavogi, þar var
endalaust verið að skemma fyrir mér
bíla og kasta grjóti í rúðurnar og taka
í hurðarhúna á nóttunni.“
Hilmar hefur á móti í viðtölum
sakað Gilbert um árásir og
skemmdarverk og segist vera orðinn
langþreyttur á ásökunum um að
hann standi á bak við árásir og
skemmdarverk. Þá sagði hann það
vitleysu að hann stæði í stríði. Hilmar
sagði í samtali við DV að dóttir hans
tæki árásir sem hann yrði fyrir nærri
sér.
„Dóttir mín sagði einu sinni við
mig: Pabbi, fer þetta ekki að hætta?
Og hvað getur maður sagt?“ og bætti
Hilmar við að hann ætti ekki í stríði
við neinn.
Hrossaskítur fyrir
utan heimili Hilmars
Í ágúst 2014 greindi DV frá því að
hrossaskít hefði verið dreift fyrir
utan heimili Hilmars. Þar sagði að 30
manna hópur á tíu bílum hefði dreift
hrossaskít fyrir utan heimilið og um
væri að ræða framhald á átökum er
sneru m.a. að innheimtuaðgerðum
Hilmars. Hilmar sagði þá í samtali
við DV að börnum hans og hundi
hefði verið hótað.
„Hans hlið á þessu máli er svo
fjarstæðukennd. Þarna áttu engar
hótanir sér stað og fór þetta friðsam-
lega fram. Eingöngu var um skilaboð
að ræða í þessum gjörningi. Mér hef-
ur þótt erfitt að sitja og þegja þegar
ég sá viðtal vegna þessa máls, þegar
ég bar hrossaskít upp að dyrum hjá
honum. Ég var búinn að vera að
reyna að tala við manninn árangurs-
laust. Þetta var eins og að tala við
vegg. Skilaboð mín til hans; að bera
hrossaskít upp að dyrum hjá honum,
eru að ég þurfti bara að tala við hann
á hans eigin tungumáli, sem hann
einn skilur. Mér er alveg sama þó að
fólki hafi fundist það fáránlegt. Þetta
skildi hann. Í hans bíómyndaheimi,
sem hann virðist lifa í, þá talaði ég
við hann á hans eigin tungumáli
eins og í mafíubíómyndum. Ef það er
borinn skítur upp að dyrum hjá þér
þá ertu skítugur. Það voru engin lög
brotin.“
Ráðlagt að flýja land
Gilbert heldur því fram að eftir því
sem átökin fóru að vinda upp á sig
hafi hann verið boðaður á fund hjá
lögreglu.
„Ég var að skila inn gögnum
vegna hótana Hilmarsmanna til rök-
stuðnings kæru sem ég hafði lagt
fram. Þá var ég kallaður á efstu hæð
en þar sátu sex eða sjö lögreglumenn
og tvær konur. Þar var ég spurður
hvort þeir mættu ræða við mig og
taka það upp. Þar var sagt: „Við telj-
um að það sé verið að reyna að drepa
þig og líf þitt sé í hættu.“ Þeir sögðu
að það samræmdist þeim gögnum
sem ég var að skila inn og sýndu hót-
anir í minn garð um að taka ætti mig
af lífi. Lögregla getur staðfest það en
hún hefur hvatt mig til að kæra og
halda öllum gögnum til haga því þeir
vilja ná honum inn.“
Hilmar hefur aftur á móti í viðtali
sagt að Gilbert komist upp með hluti
sem hann sjálfur myndi aldrei kom-
ast upp með. Á síðustu árum hafa
reglulega birst fréttir í fjölmiðlum
um átök þeirra á milli.
„Margir misskildu hvað vakti
fyrir mér. Ég sóttist ekki eftir neinum
undirheimavöldum. Ég hjálpaði fólki
sem öskraði á réttlæti. Það var ein-
göngu minn málstaður að ná fram
réttlæti, ekki neinum sess í undir-
heimum. Undirheimar eru ljótir og
þar er kalt að vera. Ég er búinn að fá
minn skammt af undirheimum fyr-
ir löngu og vil ekki vera kenndur við
þennan heim,“ segir Gilbert.
„Ég hef alltaf haldið öllum gögn-
um til haga um Hilmar. Ég furða mig
á að Laugamálið hafi verið fellt niður
en hægt er að sjá alvarleika árásar-
innar í myndskeiðunum,“ segir Gil-
bert og bætir við:
„Ég stíg ekki fram og segi sögu
mína nema getað bakkað hana upp
með skjölum og sönnunum. Gögn
sem ég hef undir höndum sanna mál
mitt og ég er til í að sýna þau opin-
berlega hvenær sem er. Það er margt
enn ósagt. Fjölmiðill er ekki stór lúð-
ur til að öskra einhvern niður og nota
sem gremjuverkfæri.“
Vopnahlé
Ef Hilmar myndi stinga upp á
vopnahléi; segði: „Förum í sitthvora
áttina. Þú verður aldrei var við mig
aftur“, myndir þú samþykkja það
eða lýkur þessu stríði ekki fyrr en
annar hvor ykkar hrekkur upp af?
„Æran mín er ekki til sölu og ég
er ekki að fara gefa Hilmari æruna
mína. Hana tek ég með mér í gröf-
ina. Hilmar álítur kannski að hann
sé mér æðri en enginn er mér æðri
nema minn Guð. Það er mikill skaði
skeður. Barnið mitt er búið að fá
taugaáfall. Börnin mín eru búin
að hljóta verulega mikinn skaða af
þessu. Hann yrði þá að láta alla sem
hafa leitað til mín í friði líka. Ég mun
aldrei fyrirgefa Hilmari Leifssyni. Ég
er maður fyrirgefningar en ég held
að hún virki ekki í þessu tilfelli. Til-
hugsunin um fyrirgefningu veldur
velgju og ógleði, en mér finnst að
hann ætti að vera kominn í fangelsi
fyrir löngu. Maður spyr sig hvað sé
eiginlega að gerast niðri á lögreglu-
stöð. Það er eins og hann sé vernd-
aður,“ segir Gilbert.
„Auðvitað er draumurinn að geta
lifað eðlilegu lífi og sinnt börnun-
um á eðlilegan hátt. Á þessum tíma,
sem deilurnar hafa átt sér stað, hef
ég ekki getað það og farið að ráð-
leggingum Barnaverndarnefndar.
Að fyrirgefa er stórt og mikilfeng-
legt. Hann fær þó ekki mína fyrir-
gefningu því ég tel að ekki sé hægt
að fyrirgefa manni eins og hann
birtist mér, manni sem nærist á því
að sjá aðra bugast. Hitt er annað
mál að ég er tilbúinn til að ganga í
hina áttina en myndi fyrst ráðfæra
mig við þau fórnarlömb sem til mín
hafa leitað. Það er svo sannarlega
ekki vitlaus hugmynd að við get-
um gengið áhyggjulausir um götur
bæjarins.“
Þú átt tvö börn og þú segir að þú
getir verið takmarkað með þeim.
„Ég er góður pabbi. Ég eyði mikl-
um tíma með börnunum mínum.
Draumaniðurstaðan er að geta lif-
að eðlilegu lífi og sinnt foreldrahlut-
verkinu. Það er draumahlutverkið.
Staðan er ekki þannig í dag.“
Hefðir þú viljað gera hlutina
öðruvísi?
„Ef ég er alltaf að sjá eftir öllu þá
hefur það áhrif á framtíð mína. Ég
ætlaði ekki að enda í því hlutverki að
standa í deilum við mann sem birt-
ist mér og því fólki sem hefur leit-
að til mín sem stærsti glæpamaður
á Íslandi.
Það var ekki í handritinu. Þetta er
vegur sem ég ætlaði ek i að enda á
en ég trúi því að ég hafi þurft að feta
þennan veg. Ég er viss um að á end-
anum þá blessast þetta. Tilfinningin
er að þetta sé bók sem búið er að
skrifa og við séum staddir í lokakafl-
anum.“
Hvernig endar það?
„Guð einn veit það,“ svarar Gilbert.
„Guð einn veit það.“
DV óskaði eftir viðbrögðum frá
Hilmari Leifssyni vegna ásakana
Gilberts. Svar Hilmars var stutt:
„Þetta er kannski hans sýn á
hlutina og er í raun ekki svaravert.
Þetta er veikur einstaklingur sem er
með mig á heilanum. Í stuttu máli
þá eru málin hans Gilbert gegn mér
inni á borði lögreglu.“ n
„Ég varð vitni að
ljótum hlutum og
ég var enginn engill sjálfur.
Ólst upp á Grundarfirði
Gilbert fer reglulega heim.
Skítur Gilbert dreifði
hrossaskít í innkeyrsluna
hjá Hilmari, til að senda
honum skilaboð.