Norðurslóð - 24.02.2005, Qupperneq 2
2 - Norðurslóð
Norðurslóð
Útgefandi: Rimar ehf. Ráðhúsinu, Daivík, sími 466 1300.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Lauga-
steini, 621 Dalvík, sími: 466 3370. Netfang: hjhj@ismennt.is
Jóhann Antonsson, Dalvík. Netfang: ja@radgjafar.is
Blaðamaður: Halldór Ingi. Netfang: halldor@rimar.is
Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími: 466 1555.
Umbrot: Þröstur Haraldsson. Netfang: throsth@isholf.is
Prentvinnsla: Ásprent, Glerárgötu 28, Akureyri, sími: 460 0700.
Lokun Húsabakkaskóla
Staða krón-
unnar og sjávar-
útvegurinn
Að undanförnu liefur mikið verið rætt um hátt gengi íslensku
krónunnar og stöðu sjávarútvegsins í því sanibandi. Þessar að-
stæður og umræða er vel þekkt, einkum frá því hér á árum áður,
og leiddi þá gjarnan til aðgerða svo sem formlegrar gcngisfclling-
ar sem var útskýrð þannig að hagsmunir sjávarútvegsins krefðust
þess að til aðgerða væri gripið. En nú eru aðstæður talsvert aðrar
en var. Sjávarútvegur er hlutfallsiega ekki jafn fyrirferðarmikill
í íslensku efnahagslífí og áður var og svo hitt að cfnahagslífíð er
mun opnara en var og tæki til miðstýrðrar ákvörðunar eins og
gengisfellingar upp á gamla móðinn ekki lengur fyrir hendi.
Gengi á gjaldmiðlum ræðst á markaði og það er því mun fleira
en hagsmunir sjávarútvegs sem ráða ferðinni. Það var löngu fyrir-
séð og því spáð að gengi krónunnar myndi hækka þegar virkjunar-
og stóriðjuframkvæmdir væru komnar af stað og hefur það gengið
eftir. Nú er svo komið að útgerðin er farin að kvarta undan sam-
búðinni við stóriðjuframkvæmdirnar. Hér á árum áður kvartaði
iðnaðurinn gjarnan undan sambúðinni við sjávarútveginn einmitt
vegna þess að gengisskráning og ákvarðanir stjórnvalda tækju
fyrst og fremst mið af hagsmunum útgerðarinnar. Núverandi að-
stæður þýða að rekstrargrundvöllur sjávarútvegsfyrirtækja er
veikur og arðsemi þeirra lítil og því reynir mjög á fyrirtækin við
að auka hagkvæmni í rekstri.
Því var spáð fyrir nokkrum árum að það yrðu nokkur stór fyrir-
tæki starfandi í sjávarútvegi sem rækju tæknilega háþróuð vinnslu-
fyrirtæki og síðan nokkuð mörg smá, en meðalstóru fyrirtækin
hyrfu af sjónarsviðinu. Þetta hefur allt gengið eftir.
Hér á Dalvík má glögglega sjá hvernig þetta hefur gengið eftir.
Hér er starfandi tæknilega fullkomið fískiðjuver og síðan ciflug-
ar smærri fískvinnslur. I umfjöllun Norðurslóðar hefur reglulega
verið greint frá þeirri þróun sem orðið hefur hjá fiskvinnslufyr-
irtækjum hér á Dalvík og enn er tilefni til að vekja athygli á já-
kvæðum tíðindum. Nú á dögunum var lokið við ýmsar breytingar
og endurnýjun á vinnslulínu í fískverkun Samherja hf. á Dalvík.
Þessar framkvæmdir miðuðust við að auka afköst vinnslunnar og
um leið hagkvæmni rekstrarins. Skipt var um flæðilínu eða snyrti-
línu og var þá snyrtiplássum fjölgað úr 20 í 24. Einnig var ýmislegt
fært til betri vegar við framleiðslu á ferskum afurðum sem skipar
alltaf stærri og stærri sess í framleiðslu þessa fyrirtækis.
Eftir þessar aðgerðir er reiknað með að afköst hafí aukist um
15-20% án þess að starfsfólki fjölgi. Þannig verða afköst á hvern
starfsmann nálægt 40 kg á klukkustund en þau voru um 14 kg fyrir
sjö árum síðan þegar fyrstu skrefín voru stigin í því þróunarferli
sem sífellt hefur leitt til meiri framleiðni og hagkvæmni við rekst-
urinn. Forsvarsmenn fyrirtækisins gera ráð fyrir að á þessu ári
verði unnið úr 11.000 tonnum af hráefni en á síðasta ári var unnið
úr 9.600 tonnum. Það er framþróun af þessari gerð sem tryggir
áframhaldandi öfluga starfsemi fyrirtækjanna og gerir þau hæf
til að þola hækkandi gengi íslensku krónunnar hvort sem það er
tímabundið ástand eða til frambúðar.
Það er líka mjög mikilvægt hve smærri fiskvinnslufyrirtækin
hér hafa verið öflug. í samtölum við forsvarsmenn þeirra kemur
fram að auðvitað fínni þeir fyrir hækkandi gengi krónunnar en það
hafí samt ekki meiri áhrif en svo að starfsemi fyrirtækjanna hafí
sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt nú. Þessi öfluga starfsemi
fískvinnslufyrirtækjanna er mikil gæfa fyrir byggðarlagið og þrátt
fyrir að mönnum fínnist að eitt og annað inegi betur fara hér gefur
staða og þróun fiskvinnslunnar ástæðu til bjartsýni.
JA
s
- sögulegt stórslys
amkvæmt nýjustu frétt-
um virðist nú fokið í flest
’skjól fyrir Húsabakkaskóla.
Meirihluti bæjarstjórnar hefur
lagt fram tillögu þess efnis að
skólahald leggist þar af og raun-
ar að Árskógarskóli verði einnig
sviptur sjálfstæði sínu og settur
undir Dalvíkurskóla.
Með lokun Húsabakkaskóla
hefur sú bæjarstjórn sem nú situr
tryggt sér dapurlegri eftirmæli en
nokkur önnur bæjarstjórn Dal-
víkur fyrr og síðar. Lokun Húsa-
bakkaskóla er stórslys, ekki ein-
ungis fyrir nemendur, foreldra
og starfsfólk skólans heldur allt
samfélagið.
Framganga fræðsluráðs og
bæjaryfirvalda í Dalvíkurbyggð
í aðdraganda þessarar ákvörð-
unar hefur öll einkennst af úr-
ræðalcysi, skorti á framtíðarsýn
og virðingarleysi fyrir opnum og
lýðræðislegum stjórnsýsluhátt-
um.
Þetta eru stór orð en í þessu
tilfelli er tilefnið slíkt að ekki er
annað hægt en hafa uppi stór-
yröi.
Úrræðaleysi bæjarstjórnar
birtist m.a. í því að gera Húsa-
bakkaskóla að pólitískri skipti-
mynt á milli framsóknar- og
sjálfstæðismanna þar sem áfram-
haldandi samstarf þessara flokka
veltur á því að lokunin nái fram
að ganga. Sjálfstæðismenn vilja
skólann feigan, framsókn tvístíg-
ur í ráðaleysi sínu en dansar samt
með. Öll sýningin sem sett var á
svið eftir sögulegan skilnað og
síðar sættir meirihlutaflokkanna;
störf þriggja manna nefndarinn-
ar, vinnustefnan sem fræðsluráð
sat ekki og síðan einhverjar til-
búnar niðurstöður af því starfi
voru sjónhverfingar einar og sem
slíkar hrein móðgun við íbúa
sveitarfélagsins og heilbrigða
skynsemi hvar sem hana er að
finna.
Virðingarleysi fyrir opnum og
lýðræðislegum stjórnsýsluhátt-
um gæti raunar verið yfirskriftin
á störfum fræðsluráðs og bæjar-
stjórnar í þessu máli. En í ljósi
þeirrar opinberu stefnu bæjar-
stjórnar sem birtist í málefna-
samningi flokkanna að halda úti
þrem grunnskólum á kjörtíma-
bilinu var líklega sjálfsagt og
eðlilegt að fræðsluráð Dalvíkur-
by ggðar liti á sj álft sig og h 1 ut verk
sitt eins og hverja aðra leynireglu
musterisriddara, héldi lokaða
fundi án fundargerða og mein-
aði áheyrnarfulltrúum aðgang
þrátt fyrir ítarleg mótmæli. I því
sambandi er vert að minna á að
vinnubrögð fræðsluráðs reyndust
ganga í berhögg við bæði grunn-
skólalög og stjórnsýslulög sam-
kvæmt áliti félagsmálaráðuneytis
og í ljósi þess álits og gagnrýni
4*
4»
Frá Mennningarsjóði
Svarfdæla
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
Menningarsjóði Svarfdæla. Samkvæmt annarri
grein skipulagssskrár sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til hvers konar menn-
ingarmála á starfssvæði Sparisjóðsins en það er Dalvíkurbyggð og Hrísey.
Umsóknum skal skilað fyrir I 5. mars 2005 til stjórnarformanns, Dóróþeu
Reimarsdóttur, Steintúni 3, 620 Dalvík (netfang: dorotea@simnet.is)
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu sparisjóðsins og hjá stjórnarformanni.
Stjórn Menningarsjóðs Svarfdæla
sem kom fram á starfshætti þess
vísaði fræðsluráð málinu frá sér
til bæjarstjórnar án þess að skila
af sér niðurstöðu um framtíð
skólamála í Dalvíkurbyggð.
Það grátlegasta við allt þetta
mál er kannski þögn fræðsluráðs
og bæjaryfirvalda. Reyndar er
þögn bæjaryfirvalda í Dalvíkur-
byggð ekki bundin við skóla-
mál heldur líka flest önnur mál.
Þögnin er þeirra aðalsmerki. En
í þessu máli er hún skerandi.
Á meðan umræðan um fram-
tíð Húsabakkaskóla geysar og
brennur á börnum og foreldrum í
Svarfaðardal þegjabæjaryfirvöld
þunnu hljóði. Á meðan skrifaðar
eru blaðagreinar, haldnir fund-
ir og ráðstefnur, fréttir birtast í
blöðum og ljósvakamiðlum um
þetta mál málanna hér um stund-
ir þá heyrist ekki orð, hvorki frá
bæjarfulltrúum, bæjarstjóra né
fræðsluráði. Þessu fólki má vera
I jóst miðað við viðbrögðin að for-
eldrum barna í Húsabakkaskóla
er mikið niðri fyrir og það er full
ástæða til að ræða málið, e.t.v.
stinga niður penna eða tjá sig á
öðrum vettvangi en bæjaryfir-
völd hafa kosið að leggja Húsa-
bakkaskóla niður í þögn. Bæjar-
stjórn hefur ekkert um málið að
segja. Þó er verið að leggja niður
50 barna skóla og ekki bara 50
barna skóla heldur hjarta heils
byggðarlags. Stofnun sem hefur
átt stærri þátt en nokkuð annað í
því að viðhalda byggð í Svarfað-
ardal. Stofnun sem með metnað-
arfullu skólastarfi hefur laðað
nýja íbúa til sveitarfélagsins og
stuðlað að uppbyggingu og bjart-
sýni á tímum hnignunar og fólks-
flótta úr sveitum landsins. Það að
foreldrar og velunnarar skólans
hafa risið upp sem einn maður til
varnar skólanum segir allt sem
segja þarf um þýðingu hans fyrir
byggðina og um starfið sem fer
þar fram innan veggja. En bæjar-
stjórn blæs á þetta fólk og leggur
skólann niður engu að síður.
Og hver er ávinningurinn? Sá
fjárhagslegi sparnaður sem bæj-
arstjórn Dalvíkurbyggðar hefur
að leiðarljósi er í sjálfu sér svo
smár að þó hann væri á fullum
rökum reistur væri ekki með
nokkru móti verjandi að leggja
skólann niður. Verra er þó að
hinn beini sparnaður er vísast
mun minni en bæjarstjórn hefur
áætlað en beint og óbeint fjár-
hagslegt tap af því hins vegar svo
miklu meira en sem nemur sparn-
aðinum. Þó er það hjóm eitt hjá
því samfélagslega tapi sem verð-
ur við lokun skólans: mannauð-
urinn sem hverfur, fjölbreytileik-
inn sem glatast, bjartsýnin sem
gufar upp og uppbyggingin sem
tapar undirstöðunum.
Og hvað ætla menn svo að
gera við byggingarnar á Húsa-
bakka? Selja þær? Hverjum?
Hvaða starfsemi rúmast innan
veggja Húsabakkaskóla? Hinir
ýmsu spekingar hafa nefnt hina
og þessa starfsemi sem hugsan-
lega gæti átt heima á Húsabakka:
fullorðinsfræðsla,námsver,skóla-
búðir, sumarhótel, ráðstefnumið-
stöð osfrv. En flest sem nefnt hef-
ur verið gæti sem hægast rúmast
þar til hliðar við rekstur grunn-
skólans og er raunar nú þegar
til staðar. Það er eitt af því sem
gerir Húsabakkaskóla að þeirri
óvenjulegu menningarmiðstöð
sem hann er. Allt þetta rúmast
innan vébanda Húsabakkaskóla
einmitt vegna þess að þar er
rekinn grunnskóli 9 mánuði á
ári. Engar raunhæfar hugmyndir
hafa enn komið fram um fram-
tíð Húsabakka án skólabarna.
Enginn hefur sýnt því áhuga að
flytja einhverja atvinnustarfsemi
að Húsabakka enda svo sem nóg
framboð á tómu atvinnuhúsnæði
í byggðinni og fer vaxandi. Húsa-
bakkaskóli er ekki hentugt hús-
næði fyrir hvaða rekstur sem er
annan en það skólahald sem þar
er nú og stendur í miklum blóma.
Það má öllum vera ljóst að þegar
börnin hverfa á braut frá Húsa-
bakkaskóla hefst mikill höfuð-
verkur við að finna byggingum
og allri aðstöðu þar hlutverk og
eftir því sem tímar líða og húsin
standa lengur vannýtt eða í besta
falli illa nýtt eins og bautasteinn
yfir verkum þeirra sem nú ráða
málum í Dalvíkurbyggð, verð-
ur höfuðverkurinn sárari öllum
sem málið varðar og tómarúmið
sem hann skilur eftir hjá íbúum
Svarfaðardals tilfinnanlegra. Sú
staðreynd að bæjaryfirvöld ætla
að loka Húsabakka án þess að
hafa svo mikið sem velt því upp
hvað verður um húsnæði, tæki og
annað þar innan dyra getur ekki
skoðast öðru vísi en sem fullkom-
ið ábyrgðarleysi.
Og fyrir hvað eru mennirnir
að kippa þessari meginstoð und-
an samfélaginu með öllum þeim
ófyrirsjáanlegu afleiðingum sem
það hefur í för með sér? Fyrir
pólitíska framtíð framsóknar og
sjálfstæðismanna í meirihluta
bæjarstjórnar í Dalvíkurbyggð?
Til að þóknast háværum rödd-
urn sem vilja leggja niður skól-
ann hvað sem það kostar? Fyrir
vafasaman skammtímasparnað
þegar fjárhagur sveitarfélagsins
er þröngur? Eða bara fyrir skort
á framtíðarhugsun?
Eg skora á bæjarfulltrúa að
fella þá tillögu um lokun skól-
ans sem nú bíður afgreiðslu hjá
bæjarstjórn.
Hjörleifur Hjartarson
Félagsvist
Annað spilakvöldið í þriggja
kvölda keppni kvenfélags-
ins Tilraunar verður spilað
föstudagskvöldið 25. febrú-
ar kl. 21:00 í félagsheimilinu
Rimum. Þátttökugjald er kr.
1000.