Norðurslóð - 24.02.2005, Qupperneq 3
Norðurslóð - 3
GrÖMUL AUGNABLIK
S
Ijanúarblaði Norðurslóðar
vorum við með myndir sem
Jón Baldvinsson tók fyrir
Bæjarpóstinn á árunum 1985 og
1986. Við höldum áfram að birta
úr þessu myndasafni. Jón fór
með myndavélina víða.Til dæm-
is eru hér myndir sem hann tók í
veiðiferð með togaranum Björg-
vin EA 317. Myndasafn Jóns er
mikið af vöxtum og hefur að
geyma ómetanlegar heimildir
um fólk og atburði hér í byggðar-
laginu.
Sigurður Jónsson, eða Siggi á
Sigurhæðum, hefur verið slökkvi-
liðsstjóri í Dalvíkurbyggð í
rúma þrjá áratugi. Hann tók við
slökkviliðsstjórastaifinu 1974 og
er nú sá sem lengst hefur stjórnað
slökkviliði hér á landi af þeim
sem nú gegna því starfi. Hér er
hann í fullum skrúða slökkvi-
liðsmanns og stendur við einn af
bílunum sem slökkviliðið réði
yfirfyrir 20 árum.
Þær systur frá Sigurhæðum
Kristín Jóna og María Jónsdœt-
ur, eða Jóna Stína og Maja, ráku
keramikverkstœði í bílskúrnum
við Sigurhœðir. Það er oftast
ekki langt í húmorinn hjá þeim
systrum og þær eru brosmildar á
þessari mynd.
Hér er Leifur Björnsson að ísa
fisk í lestinni á Björvin EA 311.
A þessum árum voru fiskikassar
allsráðandi í lestum togara. Sœ-
plast var um þetta leyti að hefja
starfsemi hér á Dalvík og kera-
væðing rétt á nœsta leiti.
I brúnni á togaranum Björgvin
EA 317. Vigfús Jóhannesson
skipstjóri situr hér í skipstjóra-
stólnum í einni veiðiferðinni sem
Jón hafði myndavélina með.
Hérhefur Ólafur Níelsson, eða Óli í Bergþórslivoli, orðið aðprýðilegu
myndefni hjá Jóni.
Það er enginn asi á þeint Gunnari Magnússyni í Sœbakka og Páli Guð-
laugssyni í Miðkoti á þessari mynd. Þeir Gunnar og Palli settu á þess-
um tíma sinn svip á lífið við höfnina, ekki síst kringum litlubryggjuna
og verbúðirnar.
Sigmundur Sigmundsson í Framnesi hnyklar vöðvana áður en hann
hjálpar Reimari Þorleifs við að sjósetja Berg garnla vorið 1986. Það
gekk oft mikið á þegar trillur voru sjósettar, ekki síst ef þeir Efsta-
kotsbræður Hjalti og Skafti voru með í hópnum.
Gunnar Þorsteinsson í Mói, eða Gunni í Mói, var frægur fyrir hve
slyngur Itann var við reykingu matvœla. Heimareykta hangikjötið hans
þótti gott en silungurinn og laxinn þóttu ef til vill enn betri hjá honum.
A þessari skemmtilegu mynd er Gunni í reykingakofanum sínum.