Norðurslóð - 24.02.2005, Blaðsíða 5
Norðurslóð - 5
Minning
Steinunn Sveinbjörnsdóttir
Fœdd 12. maí 1917 - Dáin 17. janúar 2005
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.
Kynslóðir koma, kynslóðir
fara þessi orð komu mér í huga
þegar ég heyrði að hún Steinunn
væri farin.
Þeim fækkar óðum einstak-
lingunum sem hafa verið fast-
ir punktar í tilverunni síðan ég
man fyrst eftir mér og Steinunn
er ein af þeim, hún var glæsileg
kona, virðuleg, hlý en hlédræg,
þó hafði hún ákveðnar skoðanir
á mönnum og málefnum og setti
hún þær mynduglega fram. Það
var eftir henni tekið hvar sem
hún fór.
Margar myndir af Steinunni
við leik og störf koma upp í hug-
ann þegar litið er til baka.
Heimilið var hennar aðal-
starfsvettvangur og bar það
glöggt vitni þess hve mikla natni
og alúð hún lagði í að prýða það
fallegum munum því hún var
mikil hannyrðakona.
Hlýja hennar og ástúð sást
glöggt í því hve vel hún hlúði
að heimilisfólki sínu ungu sem
öldnu alla tíð og þau hjónin bæði
því þau voru einstaklega sam-
hent.
Ég ætla ekki að rekja lífshlaup
Steinunnar um það eru aðrir fær-
ari en ég.
Þó er það einn þáttur í henn-
ar lífi sem mig langar að minnast
og þakka og það eru störf hennar
að slysavarnamálum. í byrjun árs
1936 gekk hún í slysavarnardeild
kvenna á Dalvík, á þeim fyrsta
fundi var hún kosin í fjáröflunar-
Steinunn Sveinbjörnsdóttir með
skjöld sem Slysavarnarfélagið af-
henti lienni eftir 50 ára staif að
málefnum félagsins.
nefnd og árið eftir í stjórn deild-
arinnar og með því hófst stjórnar-
seta hennar sem stóð í um það bil
fimmtíu ár.
Steinunnvareinafþessumhug-
sjónakonum sem starfaði af lífi
og sál fyrir slysavarnasamtökin.
Hún var jákvæð, framfarasinnuð
og umfram allt traust, alltaf til-
búin að takast á við verkefnin
hver sem þau voru og hvar sem
þurfti að leggja lið, hvort sem það
var heima eða heiman, hvort það
var söfnun fyrir björgunarskipi,
sjúkraflugvél eða skipbrots-
mannaskýli eins og þau hétu þá.
Alltaf hvatti hún til að leggja lið
og sagði þá gjarnan: Við megum
Hjartans þakkir til ykkar sem glödduð mig vegna
áttræðisafmælis míns, 9. febrúar síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Jóna Snævarr
Sumarstörf hjá
Vinnuskóla
Dalvíkurbyggðar
Óskað er eftir umsóknum í starf yfirflokksstjóra og í 7
störf flokksstjóra.
Yfirflokksstjóri
Vinnur með garðyrkjustjóra og aðstoðar hann við rekst-
ur á Vinnuskólanum. Hæfni í að stjórna og skipuleggja
og góð mannleg samskipti æskileg. Þarf helst að vera
20 ára eða eldri.
Flokksstjórar
Vinna með 7-10 krakka í hóp, á aldrinum 14-16 ára.
Viðkomandi þarf að hafa þroska til að stjórna og vinna
með unglingum.
Umsóknarfrestur er til 18. mars.
Nánari upplýsingar fást hjá garðyrkjustjóra í síma 898
3490. Umsóknareyðublöð má nálgast á Bæjarskrifstof-
unni og á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is
undir tækni- og umhverfisdeild. Þeim skal skila inn á
Bæjarskrifstofuna, Ráðhúsinu.
Jón Arnar Sverrisson
Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar
og umsjónarmaður Vinnuskólans
til að styrkja þetta því margt
smátt gerir eitt stórt og við vitum
aldrei hvenær við þurfum á þessu
að halda. Einnig hvatti hún óspart
til að leggja Slysavarnafélagi ís-
lands lið og talaði þá gjarnan um
að það væri okkar bakhjarl. Það
sýnir vel framsýni hennar.
Þegar umræður um samvinnu
og eða sameiningu slysavarna- og
björgunarsamtakanna, fyrst hér
á Dalvík og síðan á landinu öllu,
bar fyrst á góma hvatti hún ein-
dregið til fullkominnar samein-
ingar, sagði allt að vinna og um
að gera að sameina krafta þess
fólks sem vildi vinna að þessum
málum.
Steinunn var gerð að heiðurs-
félaga í Slysavarnarfélagi íslands
fyrir mikið og fórnfúst starf,
einnig heiðraði Slysavarnadeild
kvenna, Dalvík hana á sextíu ára
afmæli deildarinnar með því að
gera hana að heiðursfélaga.
Ég vil fyrir hönd deildarinnar
þakka henni innilega öll hennar
Þann 17. janúar síðast liðinn andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri Steinunn Sveinbjörnsdóttir Vegamótum Dalvík. Stein-
unn var fædd 12. maí 1917 í Sólgörðum Dalvík. Foreldrar hennar
voru, Ingibjörg Antonsdóttir, f. 17. júlí 1884, d. 11. október 1949 og
Sveinbjörn Jóhannsson útgerðarmaður, f. 15. nóvember 1888, d. 19.
apríl 1977. Einn bróður átti Steinunn, Vilhelm Anton, f. 3. febrúar
1915, d. 1. desember 1991.
Steinunn var í Barna- og unglingaskólanum á Dalvík, síðar
tvo vetur í Menntaskólanum á Akurejri. Veturinn 1940-1941 var
hún við nám í Húsmæðraskólanum Osk á ísafirði. Þann 18. okt-
óber 1941 giftist hún Steingrími Þorsteinssyni kennara á Dalvík,
hann er fæddur 22. október 1913. Börn þeirra eru: Jón Trausti,
búfræðikandidat, f. 25. apríl 1942, Sveinbjörn, tæknifræðingur, f.
2. nóvember 1944, og María, kennari, f. 7. nóvember 1950. Barna-
börnin eru fjögur.
Steinunn vann ýmis störf utan heimilis síns á Dalvík, svo sem á
skrifstofu Kaupfélags Eyfirðinga, og við Héraðsskjalasafnið. Hún
starfaði lengi með Slysavarnardeild kvenna á Dalvík og var um
margra ára skeið ritari þess félags. Árið 1980 hlaut hún heiðursfé-
laganafnbót Slysavarnarfélags Islands.
Árið 1957 byggðu þau Steinunn og Steingrímur hús sitt Vega-
mót á Dalvík þar sem þau áttu heima síðan meðan heilsan leyfði.
Síðustu 1-2 árin hafa þau átt heima á Dalbæ, Dalvík.
Útför Steinunnar var gerð frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 29.
janúar.
góðu störf og hvatningarorð því
á þau var hún óspör og nú síðast
þegar hún var á sjötíu ára afmæl-
isfundi deildarinnar. Hafðu heila
þökk fyrir samfylgdina, Stein-
unn.
Elsku Steingrímur, missir þinn
er mikill en ég er þess fullviss að
hún hefur farið á undan þér til að
búa í haginn fyrir þig, og til þess
að geta tekið sem best á móti
þér.
Gamli vinur, við vottum þér
og fjölskyldu þinni innilega sam-
úð og biðjum algóðan Guð að
gefa ykkur styrk og frið.
Kolla Páls. og fjölskylda
Lífsval
Sparnaðarform 21. aldarinnar
* Séreign sem erfist
Framlög hvers sjóðfélaga eru séreign hans, auk vaxta og
verðbóta.Við fráfall sjóðfélaga gengur séreign í erfðir.
* Viðbót á lífeyri
Allir hafa möguleika á því að greiða í séreignarsjóð og
bæta lífeyriskjör sín með tiltölulega lágu mánaðarlegu
viðbótariðgjaldi.
* Skattalegt hagræði
Iðgjald í séreignarlífeyrisjóð er frádráttarbært frá tekju-
skattsstofni og hvorki þarf að greiða fjármagnstekjuskatt
né eignarskatt af inneigninni. Skattgreiðslum er frestað til
efri áranna þegar persónuafsláttur nýtist yfirleitt betur.
» Sveigjanlegur útgreiðslutími
Útgreiðsla getur hafist hvenær sem er eftir sextugt og skal
dreifast jafnt fram til 67 ára aldurs.Við 67 ára aldur er hægt
að fá allan sparnaðinn greiddan út í einu ef óskað er.
Sífellt fjölgar þeim er tengjast heimabankanum
Ert þú einn af þeim?
Áskriftarrei kn i ngu r
Hentar þeim sem vilja stunda reglubundinn sparnað og
njóta góðrar ávöxtunar - án nokkurs kostnaðar. Áskrift
ber háa vexti og er hentug fyrir þá sem þurfa aðhald við
langtímasparnað. Engar kröfur eru gerðar um lágmarks-
upphæð þannig að reikningseigandi sparar þá upphæð sem
honum hentar.
Sparisjoður Svarfdæla
Dalvík
460 1800
Hríse
466 17
?&o