Norðurslóð - 31.03.2005, Side 1
Svarfdælsk byggð & bær
29. ÁRGANGUR FlMMTUDAGUR 31. MARS 2005 3. TÖLUBLAÐ
Hundur í óvkiluni í Albert Hall
Hljómsveitin Hundur í óskilum - Vnclaimed Dog - lék á als oddi á sviði Royal Albert Hall í Lundúnum
að kveldi skírdags þar sem hún hitaði upp þrjú þúsund áheyrendur eins og henni einni er lagið fyrir stórtón-
leika Stuðmanna. Sjá baksíðu.
Samherjasjómenn samþykkja
samninga um hafnarfrí
Samningar milli Sjómannafélags
Eyjafjarðar og Félags skip-
stjórnarinanna annars vegar og
Samherja hf. hins vegar um breytt
fyrirkomulag á hafnarfríum hafa
nú verið samþykktir af áhöfnum
skipannaþriggja. Isfisktogararnir
þrír eru Björgúlfur EA, Björgvin
EA og Akureyrin EA og
greiddi meirihluti skipverjanna
atkvæði með samningunum sem
undirritaðir voru af forsvars-
mönnum félaganna 8. mars sl.
með fyrirvara um sainþykki skip-
verja.
Samningarnir eru þeir fyrstu
sinnar tegundar hérlendis og
gilda í eitt ár. Þeir eru byggðir
á hugmyndum sem skipverjar
skipanna þriggja lögðu fram og
eru aðeins mismunandi milli
skipanna. í samningunum er m.a.
innivera skipanna lágmörkuð en
á móti er skipverjum tryggður
ákveðinn fjöldi frídaga á hverju
30 daga úthaldi og urn jól og
áramót.
Tilefni samninganna var nýtt
ákvæði í kjarasamningi sjó-
manna og útvegsmanna frá því
fyrir áramót og snýr að hafnarfrí-
um. Róðrarmynstur togara hefur
gjörbreyst frá því sem áður var
því nú er mun meiri áhersla lögð
á ferskleika sem þýðir að flestar
veiðiferðir eru mun styttri en
áður. Með þessum samningum
eru Samherji og sjómenn félags-
ins að færa sig nær nútímanum,
báðum aðilum til hagsbóta.
HéðinsQarðargöng boðin út
Framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng verða boðnar út í haust og
hafist handa við að bora göngin í júlí næsta suniar. Framkvæmdum á
að vera lokið fyrir jól árið 2009. Talið er að göngin muni kosta um
7 milljarða króna. Framkvæmdum við Héðinsfjarðargöng var frestað
fyrir tveimur árum og sögðu stjórnvöld það gert til að reyna að draga
úr þenslu.
Þegar göngin verða komin í gagnið, verður vegalengdin milli
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar 15 kílómetrar.
Fjallaskáli ris í Þorvaldsdal
Undirbúningurerhafinnaðbygg-
ingu fjallaskála í Þorvaldsdal.
Um 20 aðilar á Arskógsströnd
hafa tekið saman höndum um
byggingu skálans og hefur
umhverfisráð Dalvíkurbyggðar
samþykkt framkvæmdina.
UmsóknliggurfyrirSkipulags-
nefnd ríkisins en að sögn Sveins
Jónssonar í Kálfsskinni er það
formsatriði og ekki eftir neinu
að bíða að hefja smíði skálans.
Teiknistofa Hauks Haraldsson-
ar á Akureyri hefur teiknað hús-
ið en það er um 30 m2 að stærð.
Svefnloft er yfir hálfum gólffleti
hússins og auk þess er þar eld-
unaraðstaða og önnur aðstaða
fyrir göngumenn, gangnamenn
og aðra sem leið eiga um dalinn.
Áætlað er að um 20 manns geti
gist þar með góðu móti. Skálinn
verður staðsettur við Þverá þar
sem er gömul skilarétt fyrir Ár-
skógsströnd og Arnarneshrepp
en þar er að sögn Sveins einna
minnst hætta á að snjóflóð
grandi byggingum. Húsið verð-
ur smíðað við verkstæði Kötlu
á Árskógsströnd og verður það
svo annað hvort flutt upp í dal-
inn með þyrlu í sumar eða það
dregið á snjó næsta vetur.
Fiskídagurinn mikli
haldinn 6. ágúst
Undirbúningur vegna Fiskidagsins mikla 2005 er hafinn, en í ár stend-
ur meira til en venjulega þar sem hátíðin er haldin í fiminta sinn.
Júlíus Júlíusson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hátíðarinnar
í fullu starfi.
Júlíus sagði að þótt meira yrði lagt upp úr dagskrá Fiskidagsins í
sumar, þá yrði umgjörðin og framkvæmdin með líku sniði og verið
hefur, þ.e. gestum verður boðið í mat og leitast við að allt verði frítt,
bæði veitingar og skemmtun. „Meðal nýjunga má þó nefna að Bylgju-
lestin verður á svæðinu og Idolstjörnur munu mæta á svæðið. Ymsar
fleiri nýjungar eru til skoðunar, en ekki er tímabært að segja frá
þeim að svo komnu,“ sagði Júlíus.
Mannaskipti
í bæjarstjórn
Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar
samþykkti með 5 atkvæðum
gegn 4 að loka Húsabakkaskóla
á sögulegum fundi þann 1. mars
sl. Fjölmargt stuðningsfólk
Húsabakkaskóla mætti á fund-
inn með kröfuspjöld og hafði
uppi hávær mótmæli utan við
safnaðarheimili Dalvíkurkirkju
á meðan bæjarfulltrúar gengu
inn. Bændur í Svarfaðardal óku
til fundarins á dráttarvélum
með mykjudreifara og löng
bílalest ók flautandi í gegnum
bæinn til að mótmæla lokun-
inni.
í framhaldi lokunar Húsa-
bakkaskóla óskuðu tveir bæj-
arfulltrúar framsóknar úr Svarfaðardal, þau Gunnhildur Gylfa-
dóttir aðalfulltrúi og Þorsteinn Hólm Stefánsson varafulltrúi, eftir
lausn frá störfum í bæjarstjórn. í stað Gunnhildar hefur Helga
B. Hreinsdóttir tekið sæti sem aðalmaður í bæjarstórn. Þá mun
Þorsteinn Björnsson taka við sæti Gunnhildar sem formaður land-
búnaðarnefndar en Jóhannses Hafsteinsson tekur sæti Þorsteins
Hólm í félagsmálaráði.
Heitir páskar en
erfiðir skíðafólki
Fátt var um gesti í Böggvisstaða-
fjalli um páskahelgina enda
snjórinn bæði lítill og lélegur
og með naumindum að hægt
væri að halda lyftum gangandi.
Að meðaltali voru svona um
50 manns í fjallinu yfir þessa
mestu skíðahelgi ársins en að
jafnaði eru þar 2-500 manns
yfir páskadagana að sögn Jóns
Halldórssonar hjá skíðafélaginu.
Ástandið var orðið tvísýnt
fyrir páska en til að kóróna það
gekk hitabylgja yfir landið og
mældist hitinn á Dalvík um 15°C
á laugardaginn fyrir páska. Jón
segir að reynt verði að halda lyf-
tunni gangandi áfram en gangi
ekki að halda úli skíðaæfingum í
næstu viku verður að öllum lík-
indum pakkað saman.
Opnunartími:
Mán. - fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202