Norðurslóð - 26.05.2005, Page 1
29. ÁRGANGUR
Fimmtudagur 26. maí 2005
5. TÖLUBLAÐ
Sýningarbás Dalvíkurbyggðar vakti verðskuldaða at-
hygli á sýningunni Norðurland 2005 í íþróttahöllinni
á Akureyri um hvítasunnuhelgina. Á básnum gafst
gesturn kostur á að skoða heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Sér-
stök kynning var á korta- og þjónustukerfi sveitarfélags-
ins sem fyrirtækið Snertill hefur unnið fyrir bæjarfélagið.
Gestum sýningarinnar gafst kostur á að taka þátt í léttum
spurningaleik varðandi Dalvíkurbyggð og voru verðlaun-
in annars vegar ferð til Dalvíkur fyrir 5 manna fjölskyldu
með viðkomu á byggðasafninu, sundlauginni og innifal-
inni hvalaskoðun frá Hauganesi og hins vegar ferðakistill
frá Sæplasti. Alls tóku 230 manns þátt í leiknunr. Að sögn
Margrétar Víkingsdóttur upplýsingafulltrúa var ekki annað að heyra á gestum en að það kynni vel að
meta það sem fyrir augu bar í básnum. Á minni myndinni má sjá sýningarbás Sælgætisgerðarinnar Mola.
Byggðasafnið Hvoll opnað
Forsetinn og Upsakristur
Byggðasafnið Hvoll á Dalvík
verður formlega opnað eftir
vetrarlokun n.k. finimtudag 28.
maí kl. 14. Forseti íslands herra
Olafur Ragnar Gímsson verður á
staðnum og opnar með pompi og
prakt nýj a Kristj ánsstofu. Þá mun
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður athjúpa eftirgerð af
Upsakristi sem fengin hefur verið
að láni frá Þjóðminjasafninu á
sýninguna Mannlíf og munir í
Dalvíkurbyggð sem einnig verð-
ur formlega opnuð við þetta
tækifæri.
Ohætt er að segja að byggða-
safnið Hvoll hafi gengið í gegn-
um allsherjar yfirhalningu frá
því nýr safnstjóri Iris Olöf Sigur-
jónsdóttir tók þar við lyklavöld-
um. Búið er mála, skipta um gólf-
efni, lagfæra glugga og ýmislegt
smálegt á 1. og 2. hæð auk þess
sem geymslurými hefur verið
innréttað í viðbyggingu. I fyrra-
vor var opnuð sýning í tilefni 70
ára afmælis Dalvíkurskjálftans,
Jóhannsstofa hafði þá einnig
verið endurnýjuð og sömuleiðis
náttúrugripaherbergi.
Kristjánsstofa hér að ofan en til
hœgri sér í þjóðbúning kvenna.
Nú hefur Kristjánsstofa einn-
ig verið endurnýjuð og sýning-
armunum fjölgað. „Hugsunin er
sú að persóna Kristjáns Eldjárns
fái hér rneira vægi í stað hinnar
formlegu uppstillingar á forset-
anum og embættismanninum,“
segir Iris Olöf.
Á sýningunni Mannlíf og
munir í Dalvíkurbyggð sem sett
hefur verið upp á annarri hæð
safnsins gefur að líta mikið af
þeim munum sem þar voru fyr-
ir en hins vegar eru færri eintök
sömu gerðar. í stað 40 hefla og
30 saga eru þannig nú e.t.v. fjór-
ir heflar og fjórar sagir til sýnis.
Afgangurinn er vandlega flokk-
aður og merktur í geymslurými
safnsins. Með því móti fær hver
munur notið sín að sögn írisar
og sýningin verður markvissari
og væntanlega sterkari upplifun
fyrir þann sem skoðar hana.
Síðustu skólaslit
á Húsabakka
Síðustu skólaslit Húsabakkaskóla verða í dag, fimmtudaginn 26.
maí kl. 11. Nemendur og kennarar skólans luku skólaárinu með
skólaferðalagi til Reykjavíkur þar sem m.a. var farið í Þjóðleik-
húsið, á Þjóðminjasfnið, sögusafnið í Perlunni og Hús skáldsins
að Gljúfrasteini. Einnig var farið í sjóferð, keilu, í bíó og púlsinn
tekinn á Smáralindinni.
Nú að loknum skólaslitum tekur við vinna hjá kennurum og
starfsfólki skólans við að pakka bókum og kennslugögnum niður í
kassa og undirbúa flutning nemenda í Dalvíkurskóla. Reiknað er
með að bækur, kennslugögn og tæki fari flest í Dalvíkurskóla en
einhverjir hlutir sem Dalvíkurskóli hefur ekki not fyrir fer hugsan-
lega í Árskógarskóla eða á leikskólana. Þannig má reikna með að
húsgögn og kennslugögn úr leikskólanum og úr yngstu bekkjum
Húsabakkaskóla fari á nýia 5 ára deild sem er í undirbúningi við
Krílakot.
Að sögn Ingileifar Ástvaldsdóttur skólastjóra í Húsabakka-
skóla er það haft að leiðarljósi við flutninginn að búnaður Húsa-
bakkaskóla fylgi börnunum í Dalvíkurskóla en þó svo að eftir
verið ailur búnaður sem lýtur að öðrum rekstri á Húsabakka en
grunnskólanum. Þannig verði megnið af borðum og stólum eftir í
kennslustofum, allur búnaður í mötuneyti og allt varðandi rekstur
gistingar og auk þess tölvubúnaður og annað sem þarf fyrir eina
meðal skrifstofu.
Dalbær:
Sparisj óðurinn
gefur hljóðfæri
Á flmmtudaginn í síðustu viku
afhenti Friðrik Friðriksson spari-
sjóðsstjóri fyrir hönd Sparisjóðs
Svarfdæla Dalbæ, heimili aldrað-
ara hljóðfæri að gjöf. Hér er um
að ræða vandað ragmagnshljóð-
færi sem getur ýmsist verði píanó
eða orgel og reyndar brugðið sér
í hlutverk fleiri hljóðfæra ef því
er að skipta. Mímiskórinn, kór
aldraðra, söng nokkur lög við
athöfnina undir stjórn og undir-
leik Magnúsar G. Gunnarssonar.
Einnig sungu Felix Jósafatsson
og Steinar Steingrímsson dúett
og spilaði Magnús undir hjá
þeim líka.
Það var Bj örgúlfur Lúðvíksson
forstöðumaður Dalbæjar sem
veitti hljóðfærinu viðtöku fyrir
hönd heimilisfólksins og sagði
að gjöf þessi væri kærkomin
þar sem hljóðfæri sem fyrir
voru dygðu ekki til þeirra verka
sem þeim var ætlað. Það kom
fram við athöfnina að útgerð
Stefáns Rögnvaldssonar EA gaf
píanóstól við hljóðfærið og
Vélvirki ehf. undirstöður undir
hljóðfærið.
Friðrik Friðriksson sparisjóðsstjóri af-
hendir Dalbœingum nýja hljóðfœrið.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202