Norðurslóð - 30.06.2005, Page 1
Svarfdælsk byggð & bær
29. ÁRGANGUR FlMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2005 6. TÖLUBLAÐ
Á Jónsmessunótt
Heiðar Helguson
semur við Fulham
Þær fréttir bárust frá Englandi að nafntogaðasti knattspyrnumaður
Dalvíkur, Heiðar Helguson, hefði verið seldur frá liði sínu,
Watford, og myndi leika með úrvalsdeildarliðinu Fulham á næstu
leiktíð sem hefst um miðjan ágúst. Kaupverðið mun hafa verið um
150 milljónir íslenskra króna.
Heiðar hefur leikið vel undanfarin ár með Watford og þegar
ljóst var að hann hugsaði sér til hreyfings undraði engan að ýmis
úrvalsdeildarlið bæru í hann víurnar. Eftir að hafa verið orðaður
við mörg lið undirritaði hann samning við Fulham þar sem hann á
að leysa af hólmi engan annan en Andy Cole.
Heiðar verður þriðji íslenski leikmaðurinn sem leikur í úrvals-
deildinni en þar hittir hann fyrir samherja sína úr íslenska land-
spiðinu, þá Eið Smára Guðjohnsen hjá Chelsea og Hermann
Hreiðarsson hjá Charlton. Samningurinn er til fjögurra ára og hef-
ur þann kost fyrir Heiðar að hann þarf ekki að flytja því Fulham
hefur bækistöðvar í Lundúnum.
Sparkvöllur vígður um hclgina
Um næstu helgi verður hinn nýi sparkvöllur á Dalvík formlega tek-
inn í notkun en hann er sem kunnugt er gjöf frá KSÍ en uppsetning-
in kostuð af Sparisjóði Svarfdæla. Áætlað er að framkvæmdum
ljúki nú um mánaðamótin og koma erlendir iðnaðarmenn hingað
til að leggja gervigrasdúkinn. Völlurinn verður vígður við hátíð-
lega athöfn um helgina og eru vonir bundnar við að sjálfur Heiðar
Helguson taki fyrstu spyrnuna á hinum nýja velli.Vonandi tekst
honum að losna úr önnum atvinnumennskunnar til þess að vígja
nýja völlinn.
Frystihúsið
Sextíu tonna
múrinn fallinn
Það ríkti sannkölluð jónsmessugleði við varðeldinn hjá Tungurétt að kveldi jónsmessudags 23. júní sl. Hesta-
menn efndu til hópreiðar á gleðina, Ferðafélag Svarfdœla stóð fyrir göngu upp að Skriðukotsvatni en Kven-
félagið Tilraun sá um veitingar í skúrnum.
Vegfarendum sem leið áttu fram-
hjá frystihúsinu á Dalvík um
helgina varð starsýnt á stæður
67.000 ferðmenn í Dalvíkurbyggð
Ný skýrsla um fjölda ferðamanna í byggðarlaginu
Út er komin skýrsla sem ber
nafnið Ferðamenn á Dalvík 2001-
2004 en fyrirtækið Rannsóknir
og ráðgjöf ferðaþjónustunnar
(Rögnvaldur Guðmundsson) sá
um að vinna skýrsluna fyrir Dal-
víkurbyggð. Samkvæmt skýrsl-
unni var Ijöldi erlendra ferða-
manna í Dalvíkurbyggða á síðasta
ári í kringum 17.000 manns og
fjöldi innlendra ferðamanna er
áætlaður um 50.000 manns. Meg-
intilgangurinn með skýrslunni var
að fá heildarsýn yfir gestakomur
hingað á sl. árum og hvort og þá
hvar lielstu sóknarfærin liggja.
Samkvæmt upplýsingum Mar-
grétar Víkingsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa Dalvíkurbyggðar byggja
þær niðurstöður um innlenda og
erlenda ferðamenn til Dalvík-
ur sem kynntar eru í skýrslunni
á tveimur könnunum. Meðal
Islendinga voru gerðar síma-
kannanir, ein á ári, þar sem úr-
tak í hvert sinn var 1200 manns
á aldrinum 18-78 ára og er svar-
hlutfall á bilinu 68-71 %. Á meðal
erlendra ferðamanna eru lagðar
fyrir kannanir sem bera nafnið
Dear Visitor, en þær eru lagðar
fyrir flugfarþega í Leifsstöð og
meðal Norrænufarþega á Seyð-
isfirði. Alls svöruðu 6046 erlend-
ir ferðamenn könunninni 2004.
Þegar skoðaðar eru niðurstöð-
ur fyrir erlenda ferðamenn
kemur í Ijós að árið 2004 komu
17.000 gestir til Dalvíkur. Stærst-
ur hluti þeirra kom á tímabilinu
júní-september eða um 14.000
manns. Ekki er munur á komu
erlendra ferðamanna til Dalvík-
ur eftir kyni eða aldri, en reikn-
aður meðalaldur gesta er rúm-
lega 42 ár. Þegar skoðaðar er
frá hvaða löndum þeir erlendur
gestir eru sem koma hingað má
sjá að stærstur hluti þeirra er frá
Mið-Evrópu, alls 3.800, Suður-
Evrópu, alls 3.700, og Norður-
löndunum, alls 2.700. Um það
bil 83% erlendra ferðamanna
Framhald á bls. 2.
af sæplastkerjum sem mynduðu
háan skjólgarð sunnan við frysti-
húsið. Innan þeirrar víggirðingar
geisaði sl. föstudag grillveisla sem
frystihúsið halði heitið starfsfólki
sínu ef næðist að vinna 60 tonn af
fiski á einum vinnudegi.
Það gerðist raunar fjórum
sinnum á hálfum mánuði svo
veislugestir 155 að tölu, höfðu
fjórfalda ástæðu til að fagna. Þess
má geta að fyrir breytingarnar á
frystihúsinu 1997 fóru 60 tonn í
gegn um húsið á viku.
Að sögn Gunnars Aðalbjörns-
sonar frystihússtjóra bættust 50
skólakrakkar við starfsmanna-
fjöldann þegar skólar hættu í vor
og er það góð búbót fyrir bæði
frystihúsið og ekki síður skól-
aæskuna. Frystihúsinu verður
lokað vegna sumarleyfa 28. júlí
og stendur lokunin yfir í hálfan
mánuð fram til 11. ágúst.
Sláttur
haflnn
Sláttur hófst í Svarf-
aðardal þann 23.
júní. Gunnsteinn
Þorgilsson varfyrst-
ur bœnda til að bera
Ijá í gras að þessu
sinni. Ekki hefur þó
viðrað sérlega vel
til heyskapar fram
til þessa og verið
bœði kalt og vcetu-
samt. Nú eftir helg-
ina hefur hins vegar
glaðnað til og er
von á að heyskapur
komist senn á fullan
skrið.
Ráðherrahópreið á bikarmóti í Hringsholti
Ámi Matthiesen sjávarútvegsráðherra tók þátt í setningarhátíð Bik-
armóts Norðurlands í hestaíþróttum sem fram fór við Hringsholt um
síðustu helgi. Hér sést hann ríða heiðurshring í fylgd norðlenskra hest-
amanna áður en hann setti mótið. Sjá nánar um bikarmótið á bls. 5.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202