Norðurslóð - 29.09.2005, Page 1
Áskriftarsíminn er
466 1300
Líflegar sameiningar-
umræður á dagur.net
Umræður og skoðanaskipti um sameiningu sveitarfélaga á Eyja-
fjarðarsvæðinu hafa verið að færast í aukana að undanförnu í kjöl-
far málefnaskrár og fundaherferðar samstarfsncfndar um samein-
ingu Eyjafjarðar.
Eyfirski fréttavefurinn dagur.net sem haldið er úti af aðstand-
endum Norðurslóðar og Bæjarpóstsins hefur haldið mjög rækilega
utan um allar fréttir og umræður um sameiningarmálin. Meðal ann-
ars er þar að finna fréttir af kynningarfundum, skýrslur vinnuhópa
og allar greinar sem skrifaðar hafa verið um sameiningarmálin að
undanförnu. Á vefnum gefst mönnum kostur á að bregðast við
skrifum eða taka upp þráðinn í framhaldi umræðna á fundunum
og eru umræður því oft hinar líflegustu. Svarfdælingar hafa ekki
látið sitt eftir liggja í þeirri umræðu og hafa flykkst út á ritvöllinn.
Félagsmálaráðuneytið hefur séð ástæðu til að senda öllum fjölmiðl-
um landsins ábendingu um þennan vef. Bendum við öllum sem vilja
kynna sér málin og freista þess að mynda sér skoðun fyrir kosning-
arnar 8. nóvember að fara inn á vefinn.
Snj óframleiðslukerf-
ið í gang í október
- nema snjóar hamli framkvœmdum
Svarfdælsk byggð & bær
29. ÁRGANGUR
Fimmtudaglr 29. september 2005
9. TÖLUBLAÐ
Eftir áhlaupiö. Öxin sem stóðu hnarreist fyrir helgi voru beygð og brotin eftir norðanhretið og nokkuð Ijóst
að kom þeirra kemur að litlu gagni sem fóður.
Komuppskeran ónýt
Vélarbilun í þreskivél olli því að
svarfdælskir bændur misstu korn
sitt undir fönn og er tvísýnt um
að uppskera verði nokkur. Þrjá-
tíu sentimetra jafnfallinn snjór
ásamt bleytu lagðist eins og farg
yfir akrana um helgina en spáð
er leiðindum áfram.
Kornskurður hófst á Flrís-
um sl. miðvikudag og stóð til að
skera linnulaust alla kornakra á
svæðinu, um 35-40 hektara, áður
en yfirvofandi hret skylli á. Þreski-
vélin er í eigu Fjarðarkorns sem
er sameignarfélag bænda á Eyja-
fjarðarsvæðinu, þ. á m. nokkurra
bænda í Svarfaðardal. Ekki vildi
betur til en svo að vélin bilaði
þegar skornir voru ca. 5 hektarar
og máttu bændur því horfa upp
á akra sína óskorna þegar hretið
gekk í garð. Fjarðarkorn hefur
yfir að ráða tveim öðrum vélum
en þær voru uppteknar inni í firði.
Viðgerð á vélinni var ekki lokið
fyrr en á laugardag en kornið
verður ekki skorið nema í þurr-
viðri þannig að bændur máttu
bíða og horfa á það blóðugum
augunum hvernig stöðugt bætti á
snjóinn um helgina og ekki bætti
svo úr skák þegar byrjaði að
blota og snjófargið þyngdist og
þéttist þannig að kornið lagðist
allt í duftið. Bændur eru að von-
um óhressir með þetta og hafa
rætt um það sín á milli að kaupa
hingað eina vél. Notuð þokka-
leg þreskivél kostar um 2 millj-
ónir króna. Að sögn Dagbjartar
Jónsdóttur á Sökku var hin besta
uppskera á Hrísaakrinum eða
um 5 tonn á ha sem er síst lakara
en á því blessaða kornræktarári
2004. Mjög vel leit út með fleiri
akra í dalnum eins og á Hofsár-
kotsengjum og á Ytra Hvarfi.
Hretið kemur einnig niður
Veitingahúsið Sogn hefur verið
lokað um tíma en að sögn Guð-
nýjar Láru Ingimarsdóttur sem
keypti staðinn af Sigurlínu Kjart-
ansdóttur ásamt eiginmanni sín-
um Kristjáni Kristjánssyni þurfa
nýir eigendur að afla allra leyfa
upp á nýtt og tekur það sinn tíma
í kerfinu. Lára vonast til að hægt
verða að opna fljótlega upp úr
mánaðamótum. „Reyndar hefur
Hörður Torfa sótt um að halda
hér tónleika 2. okt og verðum
við líklega að bjargast við bráða-
birgðaleyfi þá.“
Lára segist stefna að því að
hafa opið einhverja stund á hverj-
um degi og bjóða upp á létta
rétti og bakkelsi en ekki verður
ráðinn kokkur að sinni. Opið
verður í hádeginu frá 11:30-14 og
gefst þá gestum kostur á að gæða
sér að hinum margumræddu SS-
skólamáltíðum frá Hvolsvelli
eða súpu sem matreidd verður
á staðnum. Á fimmtudögum og
sunnudögum verður auk þess
opið frá 6 til 10 á kvöldin og á
föstudögum og laugardögum frá
á öðrum haustverkum bænda.
Margir eiga enn kartöflur í jörðu,
skítadreifing er varla hafin, geld-
neyti eru úti og enn vantar fé af
fjalli. Veðurstofan spáir áfram-
haldandi kalsatíð.
6 og eitthvað frameftir. Eins og
fyrr er hægt að leigja salinn undir
samkvæmi og þá er stefnt að því
Framkvæmdir við dæluhús fyrir
snjóframleiðslukerfið í Böggvis-
staðafjalli eru hafnar og var haf-
ist handa við að steypa sökkla í
síöustu viku. Húsið sem stend-
ur við Stórhólstjörn verður að
mestu hulið, grafið inn í hól og
segir Oskar Oskarsson formað-
ur skíðafélagsins að með fram-
kvæmdunum fækki raunar sýni-
legum mannvirkjum á svæðinu
því auk dælubúnaðar fyrir snjó-
framleiðslukerfið hýsi byggingin
spennustöð fyrir svæðið.
Nýr 500 kw spennustöð leysir
af hóli 150 kw stöð sem fyrir er
við efra lyftuhúsið sem hverfur
þá.Til stendur að steypa plötuna í
næstu viku og á sama tíma verður
byrjað að grafa niður vatnsrörin
meðfram lyftunni. Rörin koma í
12 m lengjum samtals 1050 metr-
ar og eiga að ná nokkuð upp fyr-
ir efra lyftuhús. Á þeim verða 7
brunnar með jöfnu millibili sem
hægt er að tengja snjóbyssurnar
að bjóða upp á jólahlaðborð og
aðrar uppákomur þegar fram í
sækir.
Veitingahúsið Sogn
SS-matur og súpa í hádeginu
Eigendaskipti hafa orðið að Veitingahúsinu Sogni en eftir sem áður
verður eflaust hœgt að fá sér ölkollu þar í góða veðrinu á fiskidaginn
eða kaffisopa innandyra þegar öðruvísi viðrar.
Grunnurinn að dœustöðinni er að
taka á sig mynd.
við. Tvær snjóbyssur eru á leið-
inni til landsins og verða þær síð-
an fluttar á milli brunnanna eins
og þurfa þykir. Framkvæmdum
á öllum að vera lokið fyrir mán-
aðamót okt/nóv. Gárungar hafa
hins vegar rætt það sín á milli hér
að líklega þurfi ekkert að tengja
byssurnar því eins og áður hef-
ur gerst fer óðara að moksnjóa
þegar Dalvíkingar ætla að hefja
snjóframleiðslu.
Meiri áhugi
á skólamál-
tíðum en
reiknað
var með
Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar
ræddi reynsluna af nýju fyrir-
komulagi skólamáltíða á fundi
fyrir skömmu og eru væntingar
góðar af fyrstu reynslu. Unnið
er að því að festa vinnuferlið
í sessi, en ljóst er að umfangið
er meira en reiknað var með
þar sem um 80% nemenda í
Dalvíkurskóla nýta sér þjón-
ustuna en í útboði var reik-
nað með 60%. Því er ljóst að
bregðast þarf við aukningunni
á ýmsum sviðum, svo sem í
auknu starfsmannahaldi og
bættri aðstöðu, og er nú verið
að leggja mat á þörfina.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202