Norðurslóð - 20.06.2013, Page 1

Norðurslóð - 20.06.2013, Page 1
37. ÁRGANGUR Fimmtudagur 20. JÚNÍ. 2013 6. TÖLUBLAÐ Hœ Itó og jibbíjei sungii leikskólabiirn á Dalvík framan við Ráðbúsið á fóstudaginn i tilefni komandi þjóðhátiðar og þess að sólin skín svo skœrt upp á hvern einasta dag. A skíðum í Fjallinu 17. júní Að morgni 17 júní héldu þau Jón Arnar Sverrisson, garðyrkjustjóri og Ingigerður og Kristín Júlíusdætur með skíði á bakinu upp á skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli alla leið upp í miðja efri lyftu og renndu sér eina salíbunu niður að Brekkuseli í tilefni þjóðhátíðardagsins. „Þetta var mjög gaman. Veðrið var svo gott og færið var bara ágætt. Við þurftum aðeins að renna okkur á lyngi á milli skafla en það var ágætur snjór mestalla leiðina". sagði Jón Amar í samtali við Norðurslóð. Ekki er vitað til þess að skíðamenn hafi áður rennt sér á þjóðhátíðardaginn á skíðasvæðinu. Snjó hefur tekið hratt upp í blíðviðrinu undanfarinn hálfan mánuð og mikill munur á svæðinu Ingigerður og Jón Arnar léttklwdd ogþjóðleg ó Böggvisstaðafjalli 17. júní og þann 1. júní sl þegar það var sagt frá því að svæðið hafi verið síðast opið almenningi. Mest var opið í júni. Þá var það opið í tvo það þó til gamans gert til að geta tíma og nýtti hópur fólks sér það. Nykurinn vaknar Hlaup kom í Grundarlæk 9. júní sl. og flæddi lækurinn þegar mest iét beggja vegna bæjarins og mátti litlu muna að ilóðið kæmi á útihús með ófyrirséðum skaða. Lækurinn bar með sér töluvert af aur og fór það að hluta til yfir heimatún á Grund. Betur fór en á horfðist enda hlaupið frá sögulegu sjónarmiði tiltölulega smátt. Svo heppilega vildi til að beltagrafa var i grrennd og ver henni ekið í skyndi þangað sem lækurinn flæddi upp úr farvegi sínum þar sem Grundargilið opnast. Klöpp er þar í læknum sem oft hefur bægt vatninu frá því að stefna á bæinn við svipaðar aðstæður en nú flæddi vatnið yfir klöppina og myndaði kvísl sem rann sunnan við Bæinn. Grundarlækur kemur sem kunnugt er úr Nykurtjöm og eru hlaup í honum engin nýlunda. Af því er sprottin sú þjóðtrú að nykur búi í jöminni sem bylti sér á vorin með þessum afleiðingum. Flóð í Gmndarlæk hafa valdið Gmndarbændum miklum búsiljum í gegnum tíðina og var jörðin í eyði um tíma á nítjándu öld af þeim sökum. A seinni árum hafa menn þó oftast geta komið í veg fyrir flóð með því að moka rás fram úr skaflinum sem gjaman myndar stíflur í lækinn við mynni Nikurtjamar. Friðrik Þórarinsson bóndi á Gmnd segir snjólétta vetur síðustu ára hafa valdið því að ekki hefúr þurft að moka og hafi menn því verið orðnir fullkæmlausir um hættuna sem af læknum getur stafað. Væntanlega verði farið í einhverjar varanlegar fyrirbyggjandi aðgerðir fyrir veturinn. Meira er fjallað um sögu Gmndarlækjar á bls. 3 og 4 hér í blaðinu. Þrír ungar komnir Álftahjónin á Hrísatjörn eru komin með þrjá unga. Haukur Snorrason hefur fylgst með heimilislífinu hjá hjónunum frá því hann náði frægri mynd af kerlunni í vor sem birtist á forsíðu Moggans þar sem kerla hafði orpið einu eggi á kaldan klakann á tjöminni. I framhaldinu var ekið með hálm handa hjónunum sem þau nýttu sér til hreiðurgerðar og hefur kerla síðan legið sem fastast á. Haukur hlúði að „ísegginu" sem best hann mátti og kom því svo undir kerluna. „Ég merkti það með krossi og er nú nokkuð spenntur að sjá hvort það hafí ungast út sagði Haukur í samtali við Norðurslóð. Ekki hafði honum tekist að komast að hreiðrinu því karlinn ver það með kjafti og klóm. Ljósm. Snorrason Byggðasafnið gefur út Iítið kver um Kristján Eldjárn Óbirt efni lítur dagsins lj ós Byggðasafnið Hvoll hefur sent frá sér fjórða kverið í ritflokknum „Litil kver“ og nefnist það Lítið kver um Kristján Eldjárn og Svarfaðardal. Höfundur þess er Þórarinn Eldjárn. Áður hefúr komið út á vegum safnisins; lítið kver um handverksmenn í Svarfaðardal, á Upsaströnd, Dalvík og Árskógsströnd eftir Þórarinn Hjartarson, Lítið kver um skemmtun og dœgradvöl í Svarfaðardal og nágrenni eftir Atla Rafn Kristinsson og Lítið kver um Jóhann K. Pétursson Svarfdœling eftir Jón Hjaltason. Kverin em öll til sölu á Byggðasafninu og kosta 500 kr en öll saman kosta þau kr 1500. „I formála kversins segir Iris Olöf, safnstjóri að samkvæmt lögum beri byggðasöfnum að leggja rækt við sögu síns starfssvæðis og sinna rannsóknum á henni. Á næstu árum verði haldið áfram að taka fyrir afmörkuð efni tengd sögu svæðisins, þau rannsökuð og niðurstöðumar gefnar út í þessu formi. „Þórarinn Eldjám rithöfúndur, sonur Kristjáns, hefur valið og tekið saman efnið sem birtist hér í þessu litla kveri. Eins og við er að búast tekur hann efnið sínum tökum og er útkoman einkar fróðleg og skemmtileg.“ segir í lok formálans. Persónuleg efnistök I kverinu rekur Þórarinn ævi Kristjáns með sérstakri áherslu á uppvaxtarárin í Svarfaðardal. BYGGÐASAFNIÐ HVOLI, DALVÍK Litiö kver um Kristján Eldjárn og Svarfaöardal M.a. birtir hann margar áður óbirtar frásagnir úr dagbókum og minnisbókum Kristjáns af mönnum og málefnum í Svarfaðardal á þessum ámm og hugleiðingar hans í kring um þær, einnig bréfaskipti Krisjáns við foreldra sína og Hjört bróður sinn frá Kaupmannahöfn og Grænlandi þar sem hann var við fomleifauppgröft. Þá eru stiklað á stóru yfir fræðastörf Kristjáns sem tengjast Svarfaðardal, fomleifarannsóknir, greinaskrif og útgáfa. Einnig er þar að fínna merkilegt orðasafn úr kompu Kristjáns þar sem .tínd em til staðbundin orð og orðatiltæki sem svarfdælir höfðu á takteinum í æsku hans. Síðast en ekki síst er þar að finna óbirt ljóð sem Kristján orti til heimabyggðar sinnar í Kaupmannahöfn þann 1. nóvember 1941. Opnunartími: Mán. - fðs. 10-19 Matvöruverslun - rétt hjá þér laug. 10-18 sun. 13-17 Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.