Norðurslóð - 25.07.2013, Side 1

Norðurslóð - 25.07.2013, Side 1
Strandveiði Svarfdælsk byggð & bær 37. ÁRGANGUR Fimmtudagur 25. JÚLÍ. 2013 7. TÖLUBLAÐ Þessa œgifógru sumamœtiirmynd tók Haukur Snorrason á dögunum og fœrði Frey Antonssyni útgerðarmanni hvalaskoðunarbátanna Mána og Draums að gjöf. Ný ókeypis göngukort Út eru komin ný göngukort fyrir Dalvík og nágrenni sem dreift er ókeypis til ferðafólks og annarra sem áhuga hafa á stuttum göngum í grennd við Dalvík. Kortið er unnið af Dalvíkurbyggð í samvinnu við Ferðafélag Svarfdæla. Að sögn Margrétar Víkingsdóttur upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar hefúr orðið áberandi aukning í fyrirspumum eftir léttum stikuðum gönguleiðum. „Fólk sem kemur og vill eyða hér dagparti spyr gjaman um stuttar gönguleiðir sem hægt er að ganga án mikillar fyrirhafnar. Við ákváðum því að svara þessari þörf og gefa út svona kort. Samhliða hafa ferðafélagsmenn stikað leiðir sem ekki vom þegar stikaðar". Kortið hefur mælst vel fyrir meðal starfsfólks í ferðaþjónustunni sem stöðugt þarf að svara spumingum af þessum toga en getur núna rétt fólki kortið og gönguleiðimar nánast á silfurfati. Kortið er á íslensku og ensku á því sjást hinar og þessar stikaðar gönguleiðir í grennd við Dalvík og þar er einnig að finna GPS-punkta fyrir leiðimar. Gríðarleg aukning hefúr orðið á ferðum gönguhópa í ijalllendinu hér á undanfömum ámm. I síðustu viku var ijöldi gönguhópa í ijöllunum í kring um dalinn, sumir með leiðsögn og aðrir á eigin vegum. Júlíkvótinn búinn Strandveiðum á svæði B frá Strandabyggð að Grýtubakkahreppi var hætt þann 18. júlí sl og hefjast ekki aftur fyrr en í ágúst. Bátar héðan öfluðu vel síðustu dagana fyrir lokun og náðu flestir aflahámarki fyrir daginn sem er um 774 kg af óslægðum þorski að sögn Óla Þórs Jóhannssonar hafnarvarðar. Veiðamar fóm hægt af stað og vantaði um 100 tonn upp á að kvótinn fyrir júnímánuð næðist á svæði B. Sá kvóti fluttist yfir í júlí og nú er sá kvóti sem sagt upp veiddur. Kvótinn fyrir ágúst er um 300 tonn og verður væntanlega flótveiddur, kannski strax fyrstu vikuna. Björgvin, Björgúlfur og Kaldbakur hafa landað til skiptis þorski í Dalvíkurhöfn. Kaldbakur fór á makríl um miðjan mánuð og nú er Björgúlfur einnig komin á makríl vestur fyrir Breiðaíjörð. Sumarlokun frystihússins hefst núna í vikunni og verður lokað fram yfir fiskidag. Fiskidagurinn nálgast Biskupinn Agnes M. Sigurðardóttir biskup og Freddy Mercury koma hvort með sínum hœtti að ftskidagshelginni Fiskidagurinn mikli verður haldinn á Dalvík í þrettánda sinn þann 10. ágúst nk. og er allur undirbúningur vel á veg kominn. Júlíus Júlíusson fiskidagskóngur segir erfitt að taka út einhverja dagskrárliði sem hápunkta þessa fiskidags. Von er á biskupi Islands séra Agnesi Sigurðardóttur til að blessa samkomuna á föstudagskvöldið. „Vonandi kemur hún í þetta sinn. í fyrra varð hún að hætta við og við urðum að kalla út „biskupslíki“en nú á ég von á að við höfúm alvöru biskup á svæðinu“. Samherji fagnar 30 ára afmæli sínu í ár og mun að því tilefni bjóða og Freddy gestum Fiskidagsins upp á Freddy Mercury heiðurstónleikana sem slógu svo rækilega í gegn í Eldborgarsal Flörpu og Hofi í fyrra. Nú verða tónleikamir settir upp með fúllum mannskap og tæknibúnaði við höfnina á Dalvík og skarta m.a. þrem dalvískum stórstjömum; Eyþóri Inga, Matta Matt og Friðriki Ómari auk Eiríks Haukssonar og Huldu Bjarkar Garðarsdóttur. Eftir tónleikana býður Samherji upp á flugeldasýningu sem væntanlega verður vel í lögð í tilefni afmælisins. Ýmis fleiri nýmæli verða þessa fiskidaghelgi sem of langt mál er upp að telja. Heimasíða fiskidagsins er www.fiskidagur. muna.is Sparisjóðir Svarfdæla og Þórshafnar sameinast Dómsmáli 29 stofnfjáreigenda lokið með sátt Sparisjóður Norðurlands heitir nýr sparisjóður sem til varð eftir sameiningu Sparisjóðs Svarfdæla og Sparisjóðs Þórshafnar. Samruninn var samþykktur á aðalfundum beggja sjóðanna sem fram fóru þann 4. júlí sl. Þar með lýkur væntanlega 129 ára sögu Sparisjóðs Svarfdæla og 70 ára sögu Sparisjóðs Þórshafnar. Jónas Sparisjóðsstjóri Sameining sjóðanna hefur verið í undirbúningi frá ársbyrjun skv. fréttatilkynningu. Þar kemur einnig fram að enn frekari sameiningar séu í skoðun. Starfsstöðvar nýja sjóðsins eru fimm; á Dalvík, Þórshöfn, Kópaskeri, Hrísey og Raufarhöfn. Stjóm sjóðsins er skipuð Hólmgeiri Karlssyni, stjómarformanni, Auði Höm Freysdóttur, varaformanni, Sigurði Skúla Bergssyni, Jóni Inga Sveinssyni og Kristínu Kristjánsdóttur. Starfsmenn Sparisjóðs Norðurlands eru nú sautján. Heildareignir Sparisjóðs Norðurlands em um 6.000 milljónir, eigið fé um 530 milljónir og eignarhlutfallið 16,3 %. Höfuðstöðvar Sparisjóðs Norðurlands verða á Dalvík og mun Jónas Mikael Pértursson gegna starfi Sparisjóðsstjóra. Ragnar Þorgeirsson sparisjóðsstjóri á Þórshöfn verður útibússtjóri þar og staðgengill sparisjóðsstjóra. Hólmgeir Karlsson segir að með þessum gjömingi sé stigið stórt skref til að verja sparisjóðakerfið. Það sem mestu skiptir er að með sammna sjóðanna tveggja eykst til muna útlánageta þeirra og um leið sparast umtalsverðar upphæðir í rekstri sjóðanna, eða 30-35 milljónir árlega sem eingöngu sé tilkominn vegna spamaðar í opinbemm gjöldum, kostnaði við endurskoðun og kostnaði til eftirlitsaðila ásamt því að fækkað er um eina stjóm. “Meginverkefni þessa sparisjóðs verður að ná að virkja betur á ný nærsamfélögin bæði á Þórshafnar- og Dalvíkursvæðinu. Okkur sem að þessu störfum er ljóst mikilvægi þess að fá sparisjóðina til að vaxa og eflast á ný með þeirri hugmyndafræði þeirra að geta ræktað og sinnt betur en nokkur önnur fjármálastofnun sínu nærsamfélög í hinum dreifðari byggðum” segir Hólmgeir. Fallið frá dómsmáli Máli 29 stofnfjáreigenda Sparisjóðs Svarfdæla gegn sjóðnum og fyrrverandi stjrón hans var í tengslum við sameiningu sjóðanna lokið með sáttagjörð. Þetta voru þeir aðilar sem ekki tóku lán hjá Saga Capital á sínum tíma og fengu þar af leiðandi ekki afskrift lána sinna í janúar 2012. Sáttatilboðið kom frá Sparisjóði Þórshafnar og var svipað því sem þessum aðilum var boðið þegar Sparisjóður Höfðhverfmga gerði tilboð í SPSV í jan sl. en því tilboði var hafnað. Segja má að með sáttinni fái hver og einn þessara 29 aðila 35-40% af höfúðstóli, þ.e. upphaflegu verði hlutarins. Af 3.500.000 kr hlut fást þannig 1,3- 1,4 millj. kr. til baka svo fremi sem fallið verði frá málshöfðun. Sáttin er gerð utan réttar og skapar því ekki réttarfordæmi. Opnunartími: Mán. - fðs. 10-19 Matvöruverslun - rétt hjá þér laug. 10-18 sun. 13-17 Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.