Norðurslóð - 25.07.2013, Page 3
3 - Norðurslóð
Bakka-Baldur í pólskri ævintýrasögu
Baldur Þórarinsson frá Bakka
og Dalvíkurbær skipa stóran
sess í nýútkominni skáldsögu
eftir pólska rithöfundinn Janina
Ryszarda Szymkiewicz. Bókin
heitir á frummálinu Islandia
jak z bajki sem þýðir cinfaldlcga
Island œvintýrasaga. I grein
sem birtist um bókina í blaðinu
Reykjavík Grapevine segir
að hún marki tímamót í sögu
stærsta minnihlutahóps landsins,
pólverja, þar sem hún er fyrsta
bókin sem gefin er út á pólsku á
íslandi.
Jania Ryszarda Szymkiewicz er
óvenjuleg um margt. Hún starfaði
til fjölda ára sem skipstjóri á stórum
millilandaskipum og sigldi um öll
heimsins höf. Hún er með BA-gráði
í siglingafræði (navigation) frá The
Maritime University of Szczecin
sem er afar virtur sjómannaskóli í
Póllandi.
Til Islands kom hún fyrst fyrir
átta árum og hefur síðan ferðast
víða um landið. Hún starfaði m.a.
við fískvinnslu í Vestmannaeyjum
og hjá Samherja á Dalvík í sjö
mánuði árið 2009. Samhliða því
skrifaði hún þessa bók sem er
eins konar sannsöguleg leiðsögn
um Island. Hún er byggð á eigin
reynslu og þeim mögnuðu og
stundum dulmögnuðu áhrifum sem
landið hefur haft á hana. Þar er að
finna lýsingar á einstæðu íslensku
landslagi og sannar sögur af fólki.
M.a. ýmsar sögur af Islendingum,
sagðar af Islendingum sjálfum.
Þama er sagan um Guðlaug
Friðþjófsson og frækilegt sund
hans og einnig sagan af Baldri frá
Bakka í Svarfaðardal og hestinum
hans hinum megin á hnettinum.
Til fundar við stórstjörnu
Janina heillaðist svo af
kvikmyndinni um Bakka-Baldur
að hún varð að hafa þá sögu með
í bókinni. Hún endursegir hana
þar með ljóðrænum efnistökum og
leggur sérstaka áhersla á andlegt
samband manns og hests - Baldurs
og nafna hans.
Kristín Björk Gunnarsdóttir sem
kennir íslensku íyrir útlendinga
á vegum SIMEY þekkir Janinu í
gegnum starf sitt.
„Hún var heilluð af myndinni"
segir Kristín „og spurði mig einu
sinni hvort ég gæti nokkuð hjálpað
sér að ná sambandi við þennan
einstaka Baldur. Þegar ég sagði
henni að við værum bræðraböm
ætlaði hún ekki að trúa sínum eigin
eyrum. Og þegar við svo fómm
að hitta hann úti í Svarfaðardal
var hún að sjálfsögðu uppáklædd ,
með nýjan varalit og hreinlega að
farast úr spenningi eins og þegar
menn em í þann veginn að hitta
stórstjömur hvíta tjaldsins“
Síðasti kafli bókarinnar heitir
einfaldlega Dalvík. Þar hittir
aðalpersóna bókarinnar Loka og
Oðin og fleiri persónur úr norrænni
goðafræði og gyðjan Freyja bjargar
lífi hennar. Menningarhúsið Berg
og bókasafn Dalvíkur koma við
sögu þar sem söguhetjunni opnast
nýir undraheimar.
Bókin hefur hlotið þó nokkra
umfjöllun bæði í blaðinu Reykjavík
Grapevine eins og áður segir og í
Iceland Review þar sem sérstaklega
er mælt með henni fyrir pólska
ferðamenn. Janina segist hafa
skrifað bókina ekki hvað síst til
að kynna Island fyrir samlöndum
sínum hér. A Islandi búa 9500
Pólverjar og pólskir ferðamenn
koma í hópum til landsins. I
Kvikmyndin Bakka-Baldnr lieillaði Janinu
Arctic Sea Tours í sókn
Hvalaskoðun allt árið
Mikil aukning hefur verið í
hvalaskoðun frá því í fyrra. Freyr
Antonsson segir kaup á nýjum
hvalaskoðunarbát í vor hafa
algerlega sýnt sig að vera rétt
ákvörðun. Stöðugur straumur
ferðafólks kemur til Dalvíkur
gagngert til að skoða hvali og
verður ekki fyrir vonbrigðum.
Vertíðin byrjaði 5. maí hjá Arctic
Sea Tours og varla hefur fallið úr
ferð síðan þá. Famar em þrjár og
upp í fjórar fastar ferðir á dag og
farþegaíjöldinn er allt frá tveim og
upp í 70 manns í ferð. Freyr segir
farþegafjöldann vera búinn að ná
heildafjölda farþega í fyrra þó enn
sé eftir vika af júlí og allur ágúst.
Hvalaskoðun allt árið
Freyr segist stefna á að halda úti
einni ferð á dag í allan vetur. „Það
er kominn tími til að við prófum
þetta“ segir Freyr. „Það er orðinn
svo mikill vetrartúrismi og við fáum
stöðugar fyrirspumir allan veturinn
svo við bara sjáum hvað gerist."
Arctic Sea Tours hefur boðið upp
á fólksflutninga til og frá Akureyri
í tengslum við hvalaskoðunina og
mun halda því áfram. Freyr segir
þó litla ijölgun í þeim ferðum.
Fólk komi mest á eigin vegum.
Það hafi líka áhrif að nú er boðið
til hvalaskoðunar frá Akureyri og
samkeppnin er orðin meiri þaðan.
„Við emm að bjóða upp á
mikla upplifun fyrir fólk og það
fara allir mjög ánægðir frá okkur.
Hvalaskoðunin ein og sér er
náttúmlega einstök upplifun fyrir
flesta en svo bjóðum við öllum að
renna fyrir þorski, flökurn hann
á leiðinni heim og grillum svo
herlegheitin þegar við komum í
land. Þetta kann fólk að meta“.
Margar tegundir
Aðstæður til hvalaskoðunar hafa
verið frábærar í sumar. Hnúfubakur
hefur sést í yfir 90% ferða. Um
daginn vom 16 háhymingar utan
við Hrólfssker. Um borð vom
Símon og Júlli sem hafa að baki 16
ára reynslu í hvalaskoðun og höfðu
aldrei séð annað eins. Steypireiður
með kálf sást rétt austan við Hrísey,
hnísur og höfmngar em vaðandi um
allt.
Freyr segist bjartsýnn á
veturinn og framtíðina. Það verði
spennandi að vita hvemig til tekst
með vetrarferðir. Hann sé með
hugmyndir að fleiri ferðum og
vömm og vonandi gefist tími til að
þróa þær hugmyndir.
a! m
I
11 ffl
[L 4
Baldur og Janina
Bókarkápan -Island œvintýrasaga
þessu skyni stofnaði hún eigið
útgáfufyrirtæki hér á landi en
bókin er prentuð í Odda ehf. Hún
segist vonast til að bókin verði
einnig þýdd á íslensku og ensku.
Hún og maðurinn hennar hafa
Janina Ryszarda Szymkiewicz
einnig stofnað ferðaskrifstofu sem
leggur áherslu á að markaðssetja
Norðausturland fyrir pólska
ferðamenn. Fyrirtæki hennar heitir
Baldur travel - að sjálfsögðu
Menninagarhúsið Berg
Fjölbreytt Fiskidagshelgi
I Menningarhúsinu Bergi
verður þétt dagskrá dagana
fyrir Fiskidaginn mikla að
sögn írisar Daníelsdóttur
forstöðumanns. Nú stendur þar
yfir sýning Þorra Hringssonar
og hefur staðið frá byrjun
mánaðarins. Um er að ræða
17 landslagsmyndir og spilar
umhverfið í Aðaldal þar stórt
hlutverk.
Þegar sýningu Þorra lýkur
verður sett upp sýning færeyska
listmálarans Össurs Mohr. Hún
opnar á miðvikudaginn 7. ágúst
nk. Össur er einn af þekktustu
málumm Færeyinga um þessar
mundir og hefur haldið sýningar
á verkum sínum í galleríum um
víðan heim. Verk eftir Mohr em
til á opinberum söfnum bæði
í Færeyjum og Danmörku og
víðar á einkasöfnum. Bækur
um list hans hafa verið gefnar
út í Færeyjum og Danmörku
og hann er hvarvetna á meðal
sýnenda þar sem færeysk list
er kynnt á erlendri gmnd.
Össur býr í Fuglafirði og er í
Færeyjum þekktur af því að mála
Leirvíkurfjallið á milli Leirvíkur
og Fuglafjarðar, upp aftur og
aftur í djúpbláum, grænum og
skerandi hvítum litum. Hann
lýkur aldrei myndinni því íjallið
breytist stöðugt eftir því hvemig
veður og birta breytast.
Nokkrir tónleikar verða einnig
í Bergi dagana fyrir fiskidag. A
fimmtudag og fostudag verða
femir fjölskyldutónleikar þar
sem Valgerður Guðnadóttir
og Þór Breiðijörð syngja
úrval laga úr teiknimyndum,
söngleikjum og kvikmyndum.
A Fimmtudagskveldið stígur
á stokk dalvíkingurinn Júlía
Amadóttir og lætur gammninn
geysa í Bergi. Ef veður leyfir
verða tónleikamir á útipallinum
en annars inni í salnum. Fleira
mun gerast í Bergi þessa daga
að sögn Irisar. Ætlunin er að
sýna hluta af myndinni Brotið
sem fjallar um mannskaðaveðrið
í apríl 1963 ,og einnig mun
Kristján Guðmundsson sem
slasaðist í vinnuslysi á Dalvík í
maí 2011 halda fyrilestur sinn
um jákvæðni og baráttuna við að
ná bata. Fyrirlesturinn verður á
fimmtudeginum.