Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:Mán. - föst. kl. 09-18
Laugardaga kl. 11-15
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLLHERBERGIHEIMILISINS
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,
FRAMHLIÐUM,KLÆÐNINGUMOGEININGUM,
GEFAÞÉR ENDALAUSAMÖGULEIKAÁ
AÐSETJASAMANÞITTEIGIÐRÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
„Þá verður að segjast eins og er að
okkur svíður að látið sé í það skína að
verið sé að loka vegna framtaksleys-
is okkar, þegar allir sem koma að
málinu koma vita fullvel að það er
einfaldlega ekki unnt að reka þessa
starfsemi sómasamlega með þeim
fjárframlögum sem greidd hafa
verið,“ segir í yfirlýsingu frá Guðna
Kristjánssyni, framkvæmdastjóra
Kumbaravogs. Umræðan um
Kumbaravog hefur staðið yfir í
nokkra daga í kjölfar ákvörðunar
velferðarráðuneytis um að rekstri
hjúkrunarheimilisins skuli hætt að
fullu 31. mars þar sem embætti land-
læknis telji að rekstur Kumbaravogs
uppfylli ekki lágmarkskröfur um
mönnun, húsnæði, aðstöðu, tæki og
búnað til reksturs heilbrigðisþjón-
ustu.
„Við á Kumbaravogi ráðum ekki
við að halda elstu húsunum við. Það
þarf reyndar ekki að leita lengi í ís-
lensku heilbrigðiskerfi til að finna
viðhaldserfiðleika. Það kemur ekki
til vegna viljaleysis rekstraraðila
heldur vegna skorts á fjárveitingum.
Rétt er að undirstrika að hver einast
króna sem ríkið hefur greitt til
Kumbaravogs, hefur runnið til
rekstrar og viðhalds,“ skrifar Guðni
enn fremur. Hann segir fjárveiting-
ar ekki hafa haldið í við verðbólgu og
þær geri litlum heimilum erfiðara
fyrir vegna stærðaróhagkvæmni þar
sem greiðslan sé áþekk burtséð frá
því hvort um sé að ræða stóra ein-
ingu í nýlegu húsnæði eða litla ein-
ingu í gömlu húsnæði. Það fé sem
greitt sé samkvæmt gjaldskránni
dugi einfaldlega ekki til að reka til-
tölulega litlar einingar þar sem við-
haldsþörf sé töluverð.
Reyndu að þrauka
Stjórnendur Kumbaravogs
ákváðu síðastliðið haust að tilkynna
ráðuneytinu að rekstri yrði hætt.
Nánast samdægurs var þó ákveðið
að hætta við að hætta, þar sem loks
átti að staðfesta bætt greiðslukerfi
fyrir öll hjúkrunarheimili í landinu –
sem nefnt er rammasamningur.
Guðni segir að þrátt fyrir að nýja
kerfið sé til bóta sé það svo þungt í
vöfum að ekki sjáist enn í janúar á
þessu ári hvort það breyti rekstrar-
grundvelli verulega. „Rekstur hjúkr-
unarheimila er dýr, og kröfur hratt
vaxandi. Þótt reglurnar um
greiðslur séu kallaðar samningur
eru greiðslurnar í raun ákveðnar
einhliða af ríkinu og hjúkrunar-
heimilin hafa aldrei samið um þessi
gjöld.“
Kom flatt upp á heimilismenn
Guðni harmar hvernig heimilis-
mönnum var tilkynnt um stöðu mála.
Hann segir að 29. desember hafi lög-
fræðingur velferðarráðuneytisins
hringt í sig um tíuleytið og tilkynnt
að starfseminni yrði lokað.
„Sama dag var mættur fulltrúi
ráðuneytisins með bréf og afhenti
heimilismönnum sem hér búa einum
af öðrum, og tilkynnti þessa lokun,
og að öllum yrðu boðin önnur vist-
unarúrræði. Hvorki starfsfólk né að-
standendur heimilismanna voru
látnir vita. Það aldraða fólk sem hér
býr varð undrandi og ráðvillt og
betra hefði verið að undirbúa þetta
allt betur.“
Flestir á sama svæði
Heimilismenn á Kumbaravogi
hafa gert grein fyrir því hvar þeir
vilji dvelja eftir að starfsemin hættir.
Unnur Þormóðsdóttir, formaður
færni- og heilsumatsnefndar heil-
brigðisumdæmis Suðurlands, sagði í
samtali við Morgunblaðið að 22 af 29
heimilismönnum hefðu valið að vera
áfram á sama svæði en ráðuneytið
mun sjá um að útvega hinum sjö
pláss á öðrum landshlutum.
Fjárveitingar
dugðu ekki fyr-
ir viðhaldsþörf
Heimilisfólki tilkynnt um lokun án
samráðs við starfsfólk og aðstandendur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lokun Starfsemin hættir í mars.
Erla Rún Guðmundsdóttir
erlarun@mbl.is
„Rýmingin hefur gengið vonum
framan. Við erum 2-3 vikum á und-
an áætlun [...] og verðum líklegast
bara búin að klára allt í lok þess-
arar viku,“ segir Sigurður Reyn-
aldsson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs hjá Högum. Þegar
verslun Debenhams var opnuð fyrir
15 árum var hún „fyrsta erlenda
deildaskipta stórverslun á Íslandi,“
að því er fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins um áformin.
Næstum allt farið
Rýmingarútsalan hófst í Deben-
hams fyrir nokkrum vikum en ætl-
unin var að hún stæði út janúar.
„Við vorum búin að plana að leita
til samtaka eins og Rauða krossins
með restar en mér sýnist það ótrú-
lega vera að gerast. Næstum því
hver einasta flík virðist ætla að
seljast. Það er alveg magnað.“
Auk fatnaðar og annarra smáv-
ara selur Debenhams nú notaðar
innréttingar og gínur úr versl-
uninni.
„Okkur er mikið í mun að ná að
endurnýta eitthvað af öllum þess-
um dýrmætu eignum sem annars
myndu enda á haugunum þannig að
það er ánægjulegt að sjá hve marg-
ir tóku við sér og gerðu góð kaup.“
Að sögn Sigurðar kosta nýjar
gínur 50-100 þúsund krónur en hjá
Debenhams er hægt að fá þær á 5-
10 þúsund. „Menn eru að borga
kannski 10% af raunkostnaði og
margir sem eru að breyta búðum
og stækka hafa gert reyfarakaup
hérna.“
Kaflaskil
Sem fyrr segir var Debenhams
fyrsta verslun sinnar tegundar á
Íslandi og því má segja að
ákveðnum kafla í íslenskri versl-
unarsögu sé að ljúka. „Við erum
með marga öfluga starfsmenn sem
hafa verið með okkur alveg frá
fyrsta degi og þetta eru erfiðar
stundir fyrir marga. Mér finnst
magnað að sjá hvað þetta starfsfólk
hefur staðið sig vel í að klára verk-
efnið með okkur. Maður tekur ofan
fyrir fólki, hvað allir hafa sýnt
þessu mikinn skilning. Það hefur
verið mjög flott að sjá hvað við eig-
um margt öflugt og gott fólk,“ seg-
ir Sigurður.
Morgunblaðið/Golli
Gínuher Á 15 árum hafa ýmsar flíkur prýtt þær fjölmörgu gínur sem nú fá
samastað í öðrum verslunum. Hér er verið að safna gínunum saman.
„Margir hafa gert reyfarakaup hérna“
Debenhams með rýmingarútsölu á gínum og innréttingum Hægt að fá gínur á 5-10 þúsund krónur
Vínartónleikar voru haldnir á Hrafnistu í Reykjavík í
gær. Söngvararnir Elmar Gilbertsson tenór og Guðrún
Ingimarsdóttir sópran komu í heimsókn ásamt Önnu
Guðnýju Guðmundsdóttur undirleikara. Þau höfðu áð-
ur haldið tónleika á Hrafnistuheimilunum í Reykja-
nesbæ, Hafnarfirði og Kópavogi.
Morgunblaðið/Eggert
Stjörnur vínartónleikanna á Hrafnistu