Morgunblaðið - 05.01.2017, Side 15
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta 2017 er reiknuð í tveimur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 834.707 kr. ............................ 36,94%
Af fjárhæð umfram 834.707 kr. ....... 46,24%
Frádráttur vegna lífeyrisréttinda
Heimill frádráttur vegna greiðslu launþega til almennra
lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni.
Frádráttur vegna séreignarsparnaðar er 4%.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 52.907 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 2002 og síðar greiða 6% af tekjum yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa
að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning á
staðgreiðslu. Fari laun yfir 834.707 kr. hjá einum
launagreiðanda þarf að reikna 46,24% staðgreiðslu af
launum hjá öðrum launagreiðendum.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 6,85%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Framtal og álagning
Barnabætur
Barnabætur með fyrsta barni hjóna eru 205.834 kr. og
með hverju barni umfram eitt 245.087 kr. Með fyrsta barni
einstæðs foreldris eru þær 342.939 kr. og með hverju barni
umfram eitt 351.787 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna eru 5.400.000 kr. hjá hjónum
og 2.700.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Bæturnar skerðast
um 4% af tekjum umfram þessi mörk fyrir eitt barn, 6%
fyrir tvö börn og 8% ef börnin eru þrjú eða fleiri.
Viðbótargreiðsla með hverju barni yngra en 7 ára er 122.879
kr. og skerðist um 4% af tekjum umfram ofangreind mörk.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta er 400.000 kr. fyrir einhleyping, 500.000 kr.
fyrir einstætt foreldri og 600.000 kr. fyrir hjón/sambúðarfólk.
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri en
7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að hámarki
800.000 kr. hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá einstæðu foreldri
og 1.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki.
Skerðing vegna tekna er 8,5% af tekjustofni.
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að
skerðast við nettóeign 4.500.000 kr. og falla niður þegar hún
nær 7.200.000 kr.
Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við
nettóeign 7.300.000 kr. og falla niður þegar hún nær
11.680.000 kr.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Frítekjumark vegna vaxtatekna er 125.000 kr. á einstakling.
Frádráttur vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæði til
búsetu leigjanda er 50% af leigutekjum. Frítekjumark gildir
ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en
íbúðarhúsnæði.
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra er 10.956 kr. á einstaklinga
sem fæddir eru 1947 og síðar og eru með tekjur yfir 1.678.001
kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Útvarpsgjald
Útvarpsgjald er 16.800 kr. á einstaklinga sem fæddir eru 1947
og síðar og eru með tekjur yfir 1.678.001 kr. á ári. Undanþegin
eru börn innan 16 ára aldurs.
Skattlagning lögaðila
Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnufélaga
er 20% við álagningu 2017.
Tekjuskattur annarra lögaðila er 36% og gildir það m.a. um
sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú.
Álagning einstaklinga
Álagning opinberra gjalda einstaklinga fer fram
1. júlí 2017.
Skattar, gjöld
og bætur