Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 Morgunblaðið/RAX Flott Svava með soninn Dag Snorra í fanginu, við hlið Hildar systur sinnar og kærastarnir, Narfi Þorsteinn Snorrason og Axel Kári Vignisson. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta á upphaf sitt að rekja til þess aðfyrir einu ári sátum við systur viðeldhúsborðið heima hjá mér ásamtkærustunum okkar og vorum að smakka ólíkustu bjóra, íslenska og erlenda. Ég fór að skoða innihaldslýsingarnar og komst að því að í íslenskum bjór er ekki margt íslenskt nema vatnið. Vissulega hafa ein- hverjir notað íslenskt bygg til bjórgerðar, en það er ekki mikið. Við fórum að spá í humla- plöntunni og lesa okkur til og komumst að því að humlaplantan vex mjög norðarlega, til dæmis í Danmörku. Fljótlega eftir þessar vangaveltur ákváðum við að senda inn umsókn til framleiðnisjóðs landbúnaðarins, sem veitir styrki til nýsköpunar í landbúnaði. Við sóttum um styrk til að rækta humla til bjórgerðar og fengum hann. Þá varð ekkert aftur snúið, við urðum að ganga alla leið,“ segir Svava Þor- leifsdóttir sem ásamt kærasta sínum, Narfa Snorrasyni, og systur sinni, Hildi Guðrúnu Þorleifsdóttur, og kærasta hennar, Axeli Kára Vignissyni, fagnaði fyrstu uppskeru síðast lið- ið haust. Erum sveitastelpur innst við beinið Þær systur ólust upp á á bænum Hvera- bakka á Flúðum í Hrunamannahreppi, en þar eru foreldrar þeirra garðyrkjubændur, þau Þorleifur Jóhannesson og Sjöfn Sigurðar- dóttir, sem rækta tómata. „Við systur erum báðar búsettar í Reykjavík og erum að fást við allt annað en garðyrkju, ég er landslagsarkitekt og Hildur Guðrún er í meistaranámi í lögfræði. En við erum sveitastelpur innst við beinið og nýtum hvert tækifæri til að fara heim að Flúðum. Pabbi var mjög spenntur fyrir þessu til- raunaverkefni okkar og lánaði okkur stórt plastgróðurhús og síðast liðið vor plöntuðum við humlarótum í tvöhundruð og fimmtíu potta inni í þessu gróðurhúsi heima á Flúðum. Af humlunum eru blómkollarnir notaðir til bjór- gerðar, svo jurtin verður að blómstra og til þess þarf hún sól og hlýju. Okkur var sagt að fyrsta árið kæmi engin uppskera, því þá færi öll orkan hjá humlunum í að róta sig, en okkur til gleði blómstraði stór hluti humlanna í lok sumars. Við systur stóluðum á pabba með að vökva plönturnar og líta eftir þeim, en við reyndum að fara eins mikið austur og við gát- um. Þessar plöntur eru ótrúlega duglegar og harðgerar og það var gaman að fylgjast með þeim, þær spruttu hratt og vel og gróðurhúsið endaði á að verða eins og frumskógur, plönt- urnar fóru út um allt og það var nánast myrk- ur inni í gróðurhúsinu, það var þakið plöntum að innan.“ Bæði ferskir humlar og þurrkaðir Þar sem humlarnir blómstruðu fyrr en búist var við varð óvænt uppskera í sumarlok Sveitastelpur inn við beinið Önnur er landslagsarkitekt og hin er í meistaranámi í lög- fræði, en þær eru með græna fingur, enda ólust þær upp á garðyrkjubýli. Systurnar Svava og Hildur hafa ásamt kærustum sínum hafið ræktun á íslenskum humlum til bjórgerðar. Byrjun Hildur með humlarætur við upphafið, plantað í potta. Gróska Þorleifur Kári sonur Svövu, við gróskumikla humlana. og gátu þau fyrir vikið sent prufur af uppsker- unni í brugghúsið Borg hjá Ölgerðinni síðast liðið haust. Svava segir að blóm humlanna gefi hið beiska bjórbragð og yfirleitt séu humlarnir þurrkaðir til bjórgerðar. „Við prófuðum að láta nota humlana ferska í bjórgerðina, eins og víða er gert er- lendis þegar uppskerutíminn er á haustin. En hluti af humlunum okkar var líka þurrkaður, svo það er verið að prófa hvort tveggja, ferska og þurrkaða. Bjórinn er tilbúinn og voru allir mjög sáttir við útkomuna en um fimm hundr- uð lítrar af bjór komu úr þessari fyrstu upp- skeru okkar.“ Prófa að rækta líka utandyra „Nú ætlum við að sjá til með framhaldið, hvort við förum sjálf af stað með eitthvert vörumerki, okkar eigin bjór. Kannski göngum við alla leið og látum framleiða fyrir okkur, fyrst við erum á annað borð að þessu. En það er heilmikil vinna á bak við þetta og það þarf mikið magn af humlum. Við höfum sagt í gríni við pabba að hann verði bara að hætta í tómataræktun svo við getum lagt undir okkur öll gróðurhúsin til humlaræktunar,“ segir Svava og hlær og bætir við að erlendis séu humlarnir ræktaðir undir berum himni. „Við ætlum líka að prófa að rækta nokkra humla utandyra, í skjóli á sólríkum stað. Það verður gaman að fara af stað aftur í vor og skipu- leggja þetta allt betur, og reyna að fá sem mesta uppskeru. Þessi planta er mjög sólelsk og það kom mest af blómum á plönturnar okk- ar sem voru í suðurhlið gróðurhússins, þar sem sólar naut. Við þurfum að finna út úr því hver næstu skref verða. Við ætlum fljótlega að vera með kynningu á bjórnum okkar og vænt- anlega fer hann á einhverja bari til sölu, á kút- um með krana, en ekki í gleri, það verður seinna.“ Vor Svava milli potta að vori, Þorleifur faðir hennar í gætt. Blómlegt Blóm humlanna eru notuð til bjórgerðarinnar og þau gefa hið beiska bjórbragð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.