Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
30-70% afsláttur
Útsalan
er hafin
Verið velkomin
Peysur, bolir,
buxur, kjólar,
slæður og
treflar
SVIÐSLJÓS
Þorsteinn Ásgrímsson Melén
thorsteinn@mbl.is
Stefnt er að því að á þessu ári hefj-
ist framkvæmdir við nýtt fjögurra
stjörnu 300 herbergja hótel á horni
Suðurlandsbrautar og Grensás-
vegar, en það yrði næst stærsta
hótel landsins í herbergjum talið
og örlítið stærra í fermetrum talið
en Fosshótelið á Höfðatorgi, sem í
dag er stærsta hótel landsins.
Unnið er að samningum við er-
lenda hótelkeðju
um rekstur hót-
elsins, en keðjan
rekur ekki önnur
hótel hér á landi.
Heildarfjárfest-
ing vegna verk-
efnisins er um 10
milljarðar króna
og áætlað er að
opna það fyrir
sumarið 2019.
Það er Fasteignafélagið G1 ehf.
sem er eigandi fasteigna og lóða á
Grensásvegi 1, þar sem nýja hót-
elið mun rísa. Eigendur þess eru
félögin Miðjan og Þríhamrar. Guð-
mundur Ásgeirsson er fram-
kvæmdastjóri félagsins, en Jón Þór
Hjaltason er stjórnarformaður.
Jón Þór er jafnframt eigandi Miðj-
unnar ásamt eiginkonu sinni.
Skeifan að breytast
Jón Þór segir í samtali við mbl.is
að þetta sé væntanlega fyrsta
skrefið í átt að breytingum í Skeif-
unni, en undanfarin ár hefur tals-
vert verið rætt um að breyta svæð-
inu eftir brunann hjá Fönn og eftir
að fram komu hugmyndir um
heildarendurskipulagningu á
Skeifu-reitnum. „Skeifan er að
breytast, en það mun taka tíma,“
segir Jón Þór.
Sem fyrr segir verða 300 her-
bergi á hótelinu og þá verða þar
veitingastaður og tveir barir, þar
af einn á efstu hæð, svokallaður
„skybar“. Samtals er um að ræða
16.283 fermetra ofanjarðar auk
þess sem um 1.550 fermetrar í
kjallara verða undir starfs-
mannaaðstöðu, sundlaug og heilsu-
laug. Þá verður um 3.200 fermetra
bílakjallari. Samtals er rými utan
bílastæða því um 17.830 fermetrar
sem er það rýmsta hér á landi.
10 milljarða verkefni
Á reitnum er í dag húsnæði
Kvikmyndaskóla Íslands auk rann-
sóknarhúsnæðis sem Mannvit not-
aði og dælustöðvar Veitna. Stóra
húsið sem hýsir skólann verður rif-
ið, en hin tvö húsin látin standa. Þá
er bílakjallari sem Mannvit lét
gera undir hluta hússins og verður
notast við hann að hluta við hótelið
að sögn Jóns Þórs.
Fasteignafélagið G1 mun byggja
og eiga nýja húsið. „Við erum ekki
að fara að reka hótel sjálfir,“ segir
Jón Þór kíminn. Viðræður hafa
staðið yfir við alþjóðlega hót-
elkeðju í nokkurn tíma og hafa
bæði viljayfirlýsing og ramma-
samningur verið undirrituð varð-
andi reksturinn. Gert er ráð fyrir
að lokasamningur verði frágenginn
á næstu vikum. Að sögn Jóns Þórs
er horft til 20-25 ára leigusamn-
ings, en nýtt rekstrarfélag mun sjá
um reksturinn og leigja eignina af
G1.
„Þetta verður rúmlega 10 millj-
arða verkefni,“ segir Jón Þór,
spurður um heildarkostnað vegna
framkvæmdanna. Þetta verður því
meðal stærstu einkaframkvæmda
hér á landi undanfarin ár.
Í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur
frá 2013 er horft til þess að þróun-
ar- og samgönguás borgarinnar
verði frá miðbænum, upp Borg-
artúnið og Suðurlandsbraut og
gegnum Höfðana. Jón Þór bendir á
að Skeifan og hótelreiturinn séu
þar alveg í miðjunni. „Hótelkvótinn
í 101 er búinn, þar er ekki hægt að
fá meira pláss,“ segir hann og bæt-
ir við að miðborgin sé þenjast út og
undanfarið hafi Suðurlandsbrautin
farið í gegnum endunýjun lífdaga
sinna og framundan séu breytingar
í Skeifunni. Staðsetning hótelsins
sé því mjög góð hvað varði að vera
miðsvæðis, tengingu við framtíðar
almenningssamgöngur og svo ná-
lægð við Laugadalinn.
Stærsta svítan 115 fermetrar
Unnið verður að áframhaldandi
fjármögnun verkefnisins næstu
vikur, en Jón Þór segist vonast til
þess að arkitektavinna geti hafist í
næsta mánuði. Við taki svo 2-3
mánaða verkfræðivinna, en von-
andi verði hafist handa við að rífa
núverandi hús í sumar. Miðað við
áætlanir sé svo gert ráð fyrir því
að hótelið verði tilbúið í apríl eða
maí árið 2019, eða að framkvæmdir
sjálfar muni ekki taka meira en um
24 mánuði. Á bak við verkefnið
standa auk Fasteignafélagsins G1,
Batteríið Arkitektar, verk-
fræðistofan Mannvit og ráðgjafa-
fyrirtækin Covenant Capital og
Front ráðgjöf.
Hótelið verður rúmlega fjögurra
stjörnu, að sögn Jóns Þórs, en
stærð á minnstu herbergjum verð-
ur 26 fermetrar og almenn her-
bergi frá 26 upp í 46 fermetra. Þá
verður stærsta svítan heilir 115
fermetrar .
Spurður um það að fara í fram-
kvæmdir sem þessar nú þegar
gengi krónunnar hefur styrkst
nokkuð undanfarið og í ljósi
áhyggna manna af áhrifum af slíkri
styrkingu á ferðaþjónustuna segir
Jón Þór að rekstrargrundvöllurinn
ætti eftir sem áður að vera traust-
ur. Bendir hann á að mikil um-
frameftirspurn hafi verið eftir hót-
elherbergjum undanfarin ár og að
hótel ættu að standa traust jafnvel
þótt ferðamönnum myndi fækka
eitthvað, sem hann telur þó ekki
líklegt.
Segir hann þessa miklu umfram-
eftirspurn hafa verið brúaða með
leigu íbúða undanfarið. „Þetta hef-
ur reddast með Airbnb, en þar
verður væntanlega skellur núna
eftir áramótin,“ segir Jón Þór og
vísar þar til breytinga á reglugerð-
um um útleigu íbúðahúsnæðis sem
tók gildi núna eftir áramót.
Nýtt 300 herbergja hótel rís
Áforma nýtt hótel á horni Grensásvegar og Suðurlandsbrautar 10 milljarða króna fjárfesting
Núverandi húsnæði rifið Hótelið 17.830 fermetrar að flatarmáli Rís fyrir sumarið 2019
Teikning/Batteríið Arkitektar
Hótel Svona gæti hún litið út, hótelbyggingin sem mun rísa á horni Grensásvegar og Suðurlandsbrautar, gegnt Glæsibæ.
Grunnkort: Borgarvefsjá
Nýtt
hótel
Laugardalur
Ork
uhú
sið
Gr
en
sá
sv
eg
ur
Skeifan
Árm
úli
Suðurlandsbraut
Glæsibær
ÁT
VR
Jón Þór Hjaltason
Hitaveita Reykjavíkur byggði upphaflega dæluhús á lóðinni að Grens-
ásvegi 1 árið 1965. Er það samtals 710 fermetrar að stærð. Árið 1976
reisti fyrirtækið svo höfuðstöðvar sínar á lóðinni í 1.663 fermetra bygg-
ingu. Var öðru samliggjandi húsi bætt við árið 1983, en það er 1.745 fer-
metrar. Við bættist svo rannsóknarstofa árið 1986 upp á 347 fermetra.
Samtals var því stærð húsnæðis á reitnum orðin 4.465 fermetrar í rekstri
Hitaveitunnar.
Síðar sameinaðist Hitaveitan Orkuveitu Reykjavíkur, en rekstur hita-
veituhlutans var áfram í húsinu. Árið 2001 keypti verkfræðistofan Hönn-
un svo húsnæðið af Orkuveitunni en flutti þó ekki inn í það fyrr en árið
2003 þegar Hitaveitan hafði komið sér fyrir í nýju húsnæði Orkuveit-
unnar á Bæjarhálsi.
Á árunum 2007 til 2008 sameinuðust svo verkfræðistofurnar VGK,
Hönnun og Rafhönnun undir merkjum Mannvits og varð húsnæðið að höf-
uðstöðvum sameinaðs fyrirtækis. Um mitt ár 2014 flutti Mannvit svo höf-
uðstöðvar sínar í Urðarhvarf 6, en það húsnæði hafði Faghús, dótturfélag
Miðjunnar, áður reist. Á móti var Grensásvegur 1 keyptur af Mannviti og
komst í hendur G1 og Miðjunnar. Í kjölfarið tók Kvikmyndaskóli Íslands
húsið á leigu, en leigusamningur skólans rennur út í júní á þessu ári.
Hiti, Mannvit og kvikmyndir
HÓTELIÐ RÍS Á HITAVEITUREITNUM VIÐ GRENSÁSVEG